Morgunblaðið - 14.01.2010, Page 34
34 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
Minningar á mbl.is
Hannes Árni
Wöhler
Höfundur: Árni Bergþór
Sveinsson
Jón Kornelíus
Jónsson
Höfundur: Jón Kornelíus
Gíslason
Hallur Helgason
María Guðrún
Þorláksdóttir
Höfundar: Steinunn María
Jónsdóttir og synir
Guðfinna Guðmundsdóttir
Sveinfríður
Jóhannsdóttir
Höfundur: Guðbjörg Jóna
Ursula
Hermannsson
Höfundar: Anna Björk Sig-
urðardóttir
Guðrún Ólafsdóttir
Ólöf Unnur Sigurðardóttir
Þorvaldur
Steingrímsson
Höfundur: Þóra Sigurð-
ardóttir
Meira: mbl.is/minningar
Elsku afi minn. Ég
man mest eftir þér eft-
ir að þú varst hættur
að vinna og varst mest heima eitthvað
að bardúsa. Til dæmis á veturna að
lesa ljóðabækur eða kveikja upp í ofn-
inum svo það væri nú örugglega í
kringum 40° hiti inni í húsinu eða þá á
sumrin úti í sólbaði alveg frá sólar-
upprás og til sólarlags. Þið amma
komu oft með vestur í Tungu og það
var alltaf notalegt andrúmsloft í
kringum þig.
Á sama tíma og ég sakna þín er ég
ánægð að hafa getað kynnst þér. Þú
varst mikið náttúrubarn sem var svo
sannarlega frá Hornströndum og
hugur þinn leitaði alltaf þangað og þú
barst svo sannarlega mikla virðingu
fyrir þeim stað.
Þessa vísu lærði ég eitthvern tíman
eftir þig:
Út á kvína Keli rær,
þó kuli norðan svali,
oftast lítinn afla fær,
einn og tvo í hali.
Nú ertu farinn, afi minn, og von-
andi sjáumst við þegar þar að kemur.
Þín sonardóttir,
Gerður Ágústa (spékoppa.)
Svili minn og góður vinur til
margra ára, Þorkell Sigmundsson frá
Hælavík, er fallinn frá.
Fyrsta minning mín af Kela er við
Kaupfélagshornið á Ísafirði, fyrir um
58 árum, er ungt glæsilegt par koma
✝ Þorkell Sig-mundsson fæddist
í Hælavík á Horn-
ströndum 11. janúar
1925. Hann lést í
sjúkraskýlinu í Bol-
ungarvík 28. desem-
ber síðastliðinn. Þor-
kell var jarðsunginn
frá Hólskirkju í Bol-
ungarvík laugardag-
inn 9. janúar sl.
á bresku Royal mótor-
hjóli, en þar voru þau
Keli og Hulda á ferð.
Þorkell vinur minn var
myndarmaður á velli,
sterkbyggður og fríður
sýnum, hæglátur, vel
innrættur og náttúru-
greindur.
Sá sem er fæddur í
Hælavík, og hefur
kynnst og alist upp við
hrikaleg björg Horn-
stranda, kynnst sterk-
um hafstraumum og
ægikrafti vetrarvinda,
upplifað fegurð og kyrrð sumarsins,
notið og fallið fyrir því fegursta sól-
setri sem land okkar hefur uppá að
bjóða veður ætíð með hugann við
þetta einstaka landslag og þannig
bundinn átthögum sínum og uppruna
um alla ævi. Það var því engin til-
viljun eða undrunarefni að Keli og
Hulda hófu sinn fyrsta búskap að
Horni, á þeim undurfagra stað, ásamt
því að vera meðal þeirra ábúenda
sem síðastir fóru. Fjölskyldan á þar
sumarhús, svokallað Frímannshús,
sem er þeim mikils virði og kallar
fram margar gamlar og góðar minn-
ingar. Eftir búskaparárin á Horni
fluttu þau til Bolungarvíkur og
bjuggu fyrst í einni af fjórum verbúð-
um er stóðu á Kambinum. Þar var
merkileg og sögulega byggð, vegg-
irnir með eyru, lágt til lofts og þröng
húsakynni en ótrúlega hlýleg. Síðar
fluttu þau á Traðarstíginn, núverandi
heimili þeirra.
Margar góðar minningar koma
fram þegar litið er yfir farinn veg og
þær fjölmörgu samverustundir sem
fjölskyldur okkar áttu rifjaðar upp.
Ógleymanlegar eru ferðir okkar á
Hornstrandir, sem og fjölmargar
styttri og lengri ferðir um landið auk
utanlandsferða.
Lengst af stundaði Keli sjó-
mennsku og réri þá oftast einn á trill-
unni sinni, Fáki ÍS 5, sem hann hafði
miklar mætur á. Snemma á vorin var
trillan öll máluð, eikin vandlega skaf-
in, pússuð og lökkuð. Ég hafði oft
þann starfa að merkja fyrir hann
nafn og númer. Eitt sinn bað hann
mig vinsamalegast að fara á sokkana,
dekkið væri nefnilega hreint og ný
lakkað. Þannig hugsaði hann afar vel
um skip sitt og starf. Þetta lýsir einn-
ig viðhorfi hans til gamalla gilda; þ.e.
fara vel með, vera nýtinn og hafa allt
á hreinu. Þá var einstaklega ánægju-
legt að fá að fara í róður með honum á
góðviðrisdegi því þar var á ferð góður
sjósóknari, maður sem þekkti til
verka, veðurs og fiskimiða. Aldrei
kom honum til hugar að veiða smá-
fisk, stórfiskur skyldi það vera.
Keli var ljóðelskur og fór oft utan-
bókar með ljóð og önnur vísnabrot
fyrir vini sína. Sjálfur átti hann mjög
gott með að setja saman vísur og ljóð
og gerði þá jafnan góðlátlegt grín að
sjálfum sér og ýmsum atburðum líð-
andi stunda.
Lillý, konan mín, kveður mág sinn
með söknuði og þakkar honum góða
vináttu og kynni frá fyrstu tíð.
Elsku Hulda, börn, barnabörn og
aðrir ástvinir. Við Lillý og fjölskyldur
okkar sendum ykkur innilegar sam-
úðarkveðjur. Minningin um góðan
dreng er meitluð í sjóð minninganna
og verður þar svo lengi sem aldur
leyfir. Góður Guð veri með ykkur.
Kæri vinur Keli, það var gott að
eiga þig að vini. Við þökkum þér sam-
fylgdina og öll skemmtilegu árin.
Farnist þér vel í för á fund forfeðr-
anna.
Blessuð sé minning Þorkels Sig-
mundssonar.
Ólafur Kristjánsson.
Með þessum orðum kveð ég Þorkel
Sigmundsson, Kela, sem kvæntur var
Huldu móðursystur minni.
Keli var borinn og barnfæddur
Hornstrendingur og gott dæmi um
hinn harðduglega og sjálfstæða Ís-
lending. Hann var ekta trillukarl og
hafði gegnum árin farið ótaldar svað-
ilfarir auk eggjaferða í Hornbjarg og
Hælavíkurbjarg. Keli var glæsimað-
ur á velli, líkamlega sterkur og vel á
sig kominn. Keli og Hulda voru síð-
ustu ábúendur í Hornvík en Horn-
bjarg og Hælavíkurbjarg eru meðal
fegurstu staða landsins. Þeir sem til
þekkja vita hversu harðbýlt er á þess-
um nyrstu stöðum norðan Djúps. Til
þess að komast af þarf þrautseigju,
dugnað og hörku. Áratugum saman
gerði Keli út trilluna Fák ÍS 5 og í
minningunni eru Keli og Fákur nán-
ast eitt. Um leið og voraði fór Keli að
Þorkell
Sigmundsson
Látin er í hárri elli
Guðríður Elísabet
Níelsdóttir, Bebí, eins og hún var
kölluð. Mínar fyrstu minningar um
hana Bebí, vinkonu mína, eru frá
því ég var smástelpa og hún meðal
annars bauð mér í göngutúr út í
frystihúsið í Brákarey. Það var æv-
intýri að fara þangað með Bebí.
Göngutúrarnir og ekki síður stund-
in þegar við gengum um húsið og
sungum er ógleymanleg. Bebí var
með afbrigðum barngóð. Seinna,
þegar við Flemming keyptum
Helgugötu 6, var gott að eiga þau
Bebí og Guðna fyrir nágranna.
Börnin okkar tvö sem þá voru fædd
hændust að þeim og voru löngum
stundum í heimsókn.
Ein saga verður að fylgja. Eitt
sinn var ég á leið heim með börnin
og hafði á orði, svona við sjálfa mig,
að mig vantaði kartöflur en ég von-
aði að Bebí gæti bjargað því. Set nú
Guðríður Elísabet
Níelsdóttir
✝ Guðríður ElísabetNíelsdóttir (Bebí)
fæddist á Valshamri í
Álftaneshreppi,
Mýrasýslu 10. októ-
ber 1922. Hún lést á
dvalarheimili aldr-
aðra, Borgarnesi 31.
desember síðastlið-
inn, 87 ára að aldri.
Útför Bebíar fór
fram frá Borgar-
neskirkju 9. janúar sl.
kjöt í pott og fer síðan
að aðgæta með börn-
in. Kemur þá ekki
stúlkan mín tveggja
ára með poka. Hún
kom við hjá Bebí og
kallaði gegnum bréfa-
lúguna að mömmu
vantaði kartöflur og
að sjálfsögðu setti
Bebí nokkrar í poka.
Svona var Bebí, ein-
stök og ætíð til bjarg-
ar, og hlógum við oft
að þessu uppátæki
litlu stúlkunnar.
Síðar flytjum við á Hvammstanga
og ekki stóð á vinum okkar af
Helgugötu 4, þau brunuðu í heim-
sókn norður fyrir heiði og upp í
Varmaland þegar við komun suður
yfir heiði. Alltaf var notalegt að fá
þau heimsókn, auk þess sem þau
tóku til hendinni ef þess var þörf.
Okkar samskipti voru ætíð bara á
einn veg, frábær.
Elsku Guðni og Halli. Við
Flemming og börnin okkar sendum
ykkur innilegustu samúðarkveðjur.
Við kveðjum Bebí með þakklæti og
virðingu í huga.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn.)
Kristín Ingibjörg Baldursdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns
míns, föður, sonar, bróður, mágs og tengdasonar,
ÓMARS LOGA GÍSLASONAR,
Ásakór 11,
Kópavogi,
sem lést á líknardeild Landspítalans, Kópavogi,
þriðjudaginn 22. desember.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landspítalans í Kópavogi,
fyrir frábæra umönnun og kærleik í okkar garð. Einnig viljum við þakka
öðru heilbrigðisstarfsfólki sem annaðist hann í veikindum hans.
Starfsfólki Heilsuleikskólans Urðarhóls þökkum við fyrir þeirra framlag
til erfidrykkjunnar og öðrum sem hjálpuðu okkur á þessum erfiðu
tímum. Hlýhugur og stuðningur ykkar hefur verið ómetanlegur.
Ingibjörg Sigurðardóttir,
Kolbrún Ýrr Logadóttir,
Þorgeir Logason,
Thelma Sylvía Logadóttir,
Gísli Logi Logason,
Gísli Felixson,
Einar Gíslason, Soffía Þorfinnsdóttir,
Efemía Gísladóttir, Skúli Ragnarsson,
Sigríður Kolbrún Bjarnadóttir, Guðmundur Aronsson
og fjölskyldur.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur
hlýju og heiðruðu minningu okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu, langömmu og langalang-
ömmu,
ÁSTU JÓNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Sóltúns fyrir mjög góða umönnun.
Óskar Sigurðsson, Brynja Kristjánsson,
Hörður Sigurðsson, Svala Birgisdóttir,
Gunnar Sigurðsson, Anne-Marie Sigurðsson,
Marta Guðrún Sigurðardóttir, Magnús Sigsteinsson,
Jón Sigurðsson, Margrét Einarsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
GUÐRÚN STURLUDÓTTIR,
Hjallaseli 41,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn
15. janúar kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Kristín Þórisdóttir, Þorkell Samúelsson,
Reynir Þormar Þórisson, Sveinborg Jónsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför elsku-
legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
KRISTÍNAR BJARNADÓTTUR,
Óðinsgötu 15,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks A3 á Hrafnistu.
Gunnar Þór Geirsson, Anna Guðrún Hafsteinsdóttir,
Bjarni Geirsson, Þuríður Björnsdóttir,
Jón Hróbjartsson, Margrét Dan Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
PÉTUR SIGURÐSSON
fyrrv. framkvæmdastjóri,
Breiðdalsvík,
lést á hjúkrunarheimili aldraðra, Höfn Horna-
firði, þriðjudaginn 5. janúar.
Útför hans fer fram frá Heydalakirkju laugardaginn
16. janúar kl. 11.00.
Bergþóra Sigurðardóttir,
Arnleif Pétursdóttir, Manfred Kleindienst,
Jóhanna Pétursdóttir, Sveinn F. Jóhannsson,
Sigurður Pétursson, Ólöf Kristjánsdóttir,
Hreinn Pétursson, Linda H. Guðmundsdóttir,
Pétur Pétursson, Ingunn H. Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.