Morgunblaðið - 14.01.2010, Síða 35
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Bækur
Upp með húmorinn! Nú er
nauðsyn! 1105 gamansögur af Vest-
firðingum. 101 ný vestfirsk þjóðsaga
eftir Gísla Hjartarson, 808 sögur í
átta bókum. 99 vestfirskar þjóðsögur,
297 sögur í þremur bókum. Allar 11
bækurnar í setti kosta 9.800,- kr.
Sendingarkostnaður innifalinn.
Þessar Vestfirðingasögur þurfa að
vera til á sem flestum bæjum til
heimabrúks. Upplögð afmælisgjöf!
Sendið okkur tölvupóst eða sláið á
þráðinn. Vestfirska forlagið.
jons@snerpa.is - Sími 456-8181.
Dýrahald
Hundagallerí auglýsir
kíktu á heimasíðu okkar:
www.dalsmynni.is
Sími 566 8417,
bjóðum visa og euro raðgreiðslur.
Gisting
AKUREYRI
Höfum til leigu 50, 85 og 140 fm
sumarhús 5 km frá Akureyri, öll
með heitum potti og flottu útsýni yfir
Akureyri. Bjóðum einnig upp á íbúðir
á Akureyri. www.orlofshus.is
Leó, s. 897- 5300.
Atvinnuhúsnæði
Iðnaðarhúsnæði - Leiga
Til leigu er nýstandsett og endurnýjað
340 fm iðnaðarhúsnæði við
Hyrjarhöfða, 110 Rvk. Mikil lofthæð,
rúmgott malbikað útisvæði.
Upplýsingar í síma: 896 9629.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratugareynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Námskeið
Þyngdaráskorun að hefjast
í næstu viku
Mæling 1x í viku, mælum, vigtum.
Förum yfir næringarfræðina.
Námskeið 12 vikur. Kostar 6500 kr.
Peningaverðlaun í lok fyrir bestan
árangur. Uppl. Anna, s. 822-1035,
sportas@sportas.is
Tómstundir
Plastmódel í miklu úrvarli.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum gull til að smíða úr.
Spörum gjaldeyri. Heiðarleg
viðskipti. Aðeins í verslun okkar
Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Ýmislegt
Teg. 42022 - mjög fallegur
blúnduhaldari í BCD skálum á kr.
3.950,- buxur í stíl kr. 1.950,-
Teg. 6579 - mjúkur og flottur í CDE
skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl
kr. 1.950,-.
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
laugard. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Útsala
Útsala
Útsala
Skarthúsið,
Laugavegi 44
Sími 562 2466
Bílar óskast
Isuzu Rodeo
Óska eftir Isuzu Rodeo árg. '96-'04,
má vera í lélegu ástandi.
kvik@simnet.is, s. 899 5660.
Húsviðhald
Tökum að okkur að leggja PVC
dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands-
byggðinni einnig. Erum líka í
viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598.
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
FYRIR VEISLUNA
Leigðu borðbúnaðinn fyrir
þorrablótið, árshátíðina, ferm-
ingarveisluna eða hvaða veislu
sem er í Leigumarkaði BYKO
Mikið úrval af diskum, glösum
bollum og hnífapörum.
Leigjum einnig út borð, stóla
og veislutjöld.
Nánari upplýsingar hjá LM
BYKO í síma: 515-4020
Til leigu
María Guðrún Þorláksdóttir
✝ María GuðrúnÞorláksdóttir,
var fædd í Reykja-
vík, 21. apríl 1932.
Hún lést á Lungna-
deild Landspít-
alans í Fossvogi
þann 28. desem-
ber sl. Foreldrar
hennar voru hjónin
Þorlákur Jónsson, kaupmaður og síðar
skrifstofustjóri Ráðningarstofu Reykja-
víkurborgar, f. 23.12. 1888, d. 20.12.
1977, og kona hans Steinunn Eyvinds-
dóttir, f. 23.9. 1895, d. 14.5. 1969. Systk-
ini Maríu eru: 1) Sigríður, f. 5.7. 1920, d.
15.1. 2008. 2) Jón rennismíðameistari, f.
23.7. 1922, d. 27.2. 1998. 3) Björgvin
Óskar lögfræðingur, f. 1.2. 1925. 4) Hall-
veig húsfrú, f. 29.9. 1934, d. 30.5. 2007.
Bróðir þeirra sammæðra 5) Alfred Clau-
sen málarameistari og söngvari, f. 7.5.
1918, d. 26.11. 1981.
María Guðrún giftist í ágúst 1957 Jóni
Adolfssyni, d. 12.10. 1982, versl-
unarstjóra Sveins Egilssonar hf. og var
hann einn eigenda Ford umboðsins.
Börn þeirra eru: 1) Steinunn María, f.
19.2. 1956, var gift Sighvati Arnarssyni,
tæknifræðingi. Synir þeirra eru: Jón, f.
31.3. 1984, og Einar Björgvin, f. 26.5.
1997. Þau skildu 2002. 2) Árni Þór vél-
fræðingur, f. 10.3. 1959, kvæntur Rann-
veigu Björnsdóttur, sjúkraliða. Þeirra
börn eru: Helena María, f. 6.5. 1985, Eva
Björk, f. 12.9. 1987, og Daniel Örn, f. 3.3.
2000. Helena María er gift Gísla Reyn-
issyni og eiga þau tvær dætur, þær heita
Elísabet Lena, f. 19.7. 2005, og Una Rós,
f. 20.7. 2007.
María ólst upp á Njálsgötu 51b við
gott atlæti í stórri og samheldinni fjöl-
skyldu. Á sínum yngri árum stundaði
hún tónlistarnám og lærði dans. Hún
starfaði við ýmislegt um ævina. Vann
nokkur sumur sem gjaldkeri í verslun
Sveins Egilssonar hf. Rak í nokkur ár
Tískuverslunina GoGo í Aðalstræti ásamt
frænku sinni Rannveigu Ólafsdóttur. Í
rúm 20 ár rak hún verslunina Remediu
hf. og síðustu 5 árin undir heitinu Sjúkra-
vörur ehf. eða þar til rekstri lauk sl vor.
Útför Maríu Guðrúnar var gerð í kyrr-
þey frá Fossvogskapellu þann 7. janúar
sl.
Meira: mbl.is/minningar
✝ Ursula FriedaJuliana Her-
mannsson fædd-
ist í Berlín þann
18. febrúar 1923
og lést þann 27.
desember 2009.
Ursula var dóttir
hjónanna Friedu
(fædd Beckmann)
og Richard Funk póstfulltrúa þar. Eig-
inmaður hennar var Svavar Her-
mannsson, f. 16. janúar 1914, d. 28.
mars 1980, efnaverkfræðingur í Reykja-
vík. Hann var sonur Ragnheiðar Gísla-
dóttur, f. 6. apríl 1884, d. 21. ágúst
1979, kennara, og Hermanns Þórð-
arsonar, f. 19. febrúar 1881, d. 1. febrúar
1962, kennara.
Börn: 1) Sólveig Angelica, f. 30.1.
1947, tryggingastærðfræðingur, maki
Robert Alexander Foster hagfræðingur,
þau skildu. 2) Bernhard, f. 30.1. 1953,
svæfingahjúkrunarfræðingur, maki Ólöf
Unnur Sigurðardóttir, félagsráðgjafi, f.
18. nóvember 1957. Börn: 1) Tómas
Karl, f. 18. desember 1987, 2) Friðrik Elí,
f. 22. nóvember 1989.
Ursula fluttist til Íslands árið 1945,
þá rúmlega tvítug, með eiginmanni sín-
um sem hafði stundað nám í Dresden.
Þau ákváðu að fara frá stríðshrjáðri
Berlín rétt fyrir fall borgarinnar í lok
seinni heimstyrjaldar. Þau fóru fyrst til
Danmerkur og sigldu svo þaðan til Ís-
lands með Esjunni. Eins og hún sagði
sjálf frá: „Hrygg og fagnandi í senn,
með djúpum söknuði eftir ættlandi
mínu og með ljúfri von til fósturlands-
ins, fylgdi ég manni mínum inn í hina
nýju tilveru.“ (Ursula Hermannsson.
(1946) Lokuð sund, Kynleg brúðkaups-
ferð. Ritstj. Matthías Jónasson, Reykja-
vík. Ísafoldarprentsmiðja hf.)
Hún bjó alla tíð eftir það á Íslandi og
starfaði m.a. sem ritari hjá bandaríska
sendiráðinu, Loftleiðum, Smith og Nor-
land, á Keflavíkurflugvelli og hjá Atlas
hf. Á námsárum stundaði hún nám í
verslunarskóla og í blaðamennsku bæði
í Berlín og í Tékklandi.
Ursulu var sungin sálumessa í Krists-
kirkju, Landakoti, laugardaginn 9. jan-
úar 2009 í kyrrþey. Samdægurs var
jarðsett á Hvammi í Norðurárdal.
Meira: mbl.is/minningar
Ursula Hermannsson
Hún tekur bros-
andi á móti mér þeg-
ar ég kný dyra, lág-
vaxin, fínleg og
tiplandi á hælaháum
töfflum, vel tilhöfð með glettið
blik í augum. „Sæl, elskan,
komdu inn. Hún er ekki alveg
tilbúin, hún er í baði.“ Svona tók
Anna Jóhannsdóttir æðioft á móti
mér þegar við Anna Margrét
dóttir hennar ætluðum út á lífið,
ungar og kátar. Hún lét mig ekki
standa eina í forstofunni, ýmist
dró hún mig til sætis eða kom
annað veifið og ræddi við mig um
heima og geima, hafði áhuga á
því sem ég sagði, lét mig finna að
ég væri velkomin. Anna var fal-
leg kona og vel af Guði gerð. Hún
hafði ríka kímnigáfu, gerði bæði
grín að sjálfri sér og ýmsu í sam-
félaginu, tók sig ekki of hátíðlega
en var afar vönd að virðingu
sinni. Þegar ég hugsa um heim-
ilislífið á Hlíðarbraut 3 á árunum
1957-1962, þegar ég var þar
heimagangur, þá fylgir því ákveð-
in fortíðarþrá. Allt í föstum
skorðum, húsakynnin þröng, en
hjartarúm nægt, efnin viðunandi
en sjálfsagt ekki meira en það, þó
var engu líkara en allt væri til
alls því að nægjusemi var í fyr-
irrúmi. Þetta var fyrir tíma sjón-
varps, þegar fólk fór enn í heim-
sókn t.d. á laugardagskvöldum
sér til gamans.
Oft kom fyrir þegar við ungu
stúlkurnar komum heim úr bíó að
afgangar af eplaköku úr raspi
væru í boði og kveikt væri á kerti
undir forláta kaffikönnu úr gleri
á borðstofuborðinu. Tengsl við
ættingja vestanhafs leiddu til
Anna J.
Jóhannsdóttir
✝ Anna J. Jóhanns-dóttir fæddist í
Hafnarfirði 14. júlí
1920. Hún lést á Sól-
vangi þann 4. janúar
síðastliðinn.
Útför Önnu fór
fram frá Fríkirkjunni
í Hafnarfirði 12. jan-
úar 2010.
þess að ýmsir munir
sáust á heimilinu
sem ekki voru ann-
ars staðar, s.s. laug-
ardagsskór hús-
freyjunnar, úr glæru
plasti með skrauti
og háum hælum,
hreinasta Holly-
wood-góss. Kannski
voru Eyþór og Lolla
nýfarin, hjónin sjálf
þó enn á fótum með
tónlist á stórum og
veglegum radíófóni.
Rómantík og heim-
ilisfriður breiddu vængi sína yfir
litlu stofuna.
Hjónaband Önnu og Ellerts
hlýtur að hafa verið fullkomið.
Þau voru vinir, félagar og afar
ástfangin; kunnu að halda í neist-
ann, spiluðu plötur á síðkvöldum,
ræddu bókmenntir og komu fram
hvort við annað af sömu prúð-
mennskunni og aðra. Ég á marg-
ar ljúfar minningar um samveru-
stundir með þessum mætu
hjónum, góðlátleg glettni sveif
yfir vötnum, örlítil kitlandi
stríðni, þó aldrei meiðandi, setti
svip sinn stundum á samræðurn-
ar sem snerust um allt milli him-
ins og jarðar. Einlægnin skapaði
trúnaðartraust og fullvissu um að
vera tekinn alvarlega, vera full-
gildur einstaklingur.
Þegar leiðir skilur vil ég þakka
Önnu Jóhannsdóttur fyrir að
opna heimili sitt og hjarta fyrir
mér, þrettán ára sveitastelpu að
vestan sem gerðist vinkona dótt-
ur hennar. Mynd hennar, já,
þeirra hjóna beggja, og minning
geymist. Lítt stoðar nú að harma
að hafa ekki ræktað tengslin bet-
ur seinustu árin. Börn og dýr
finna hvað að þeim snýr. Þegar
við hittumst á ný, þá setji Anna
hæga kaflann úr Tunglskinssón-
ötunni á fóninn, ég felli nokkur
tár yfir honum að vanda á meðan
hún hlær að mér eins og í gamla
daga, svo tökum við upp léttara
hjal.
Kristín Jónsdóttir.
skrapa, mála, lakka og gera Fák klár-
an fyrir sumarið. Róið var frameftir
hausti eins og veðrið leyfði. Keli var
yfirleitt með þeim fyrstu á sjó og
hvað síðastur í land, ekki vantaði
dugnaðinn á þeim bænum. Á veturna
stundaði Keli tilfallandi vinnu eins og
aðrir trillukarlar gerðu í Bolungar-
vík. Einn veturinn, fyrir um 45 árum,
var gamli Fákur tekinn í allsherjar
klössun, endurbyggður og lagfærður
frá stefni til skuts og smíðað var á
hann stýrishús. Þetta gerði Keli allt
með eigin höndum og notaði til þess
reynsluna af Ströndum þar sem
menn höfðu öldum saman smíðað
báta og notað til þess rekavið. Þá var
sett ný Lister Diesel vél í Fák, því
Keli sagði það bestu vélina og ekkert
annað kæmi til greina fyrir Fák.
Nokkrum áratugum síðar varð gamli
Fákur að lúta í lægra haldi fyrir svo-
kölluðum Færeyingi og þar á eftir
tók við nýr hraðfiskibátur.
Keli var pólitískur og hafði gaman
af kraftmikilli og háværri pólitískri
umræðu. Oft hafði ég hann grunaðan
um að vilja lífga upp á umræðuna,
kynda þar undir og æsa menn upp.
Ávallt var stutt í húmorinn. Ef ég
man rétt var Keli yfirleitt vinstra
megin í umræðunni, faðir minn
hægra megin en flestir í fjölskyldunni
höfðu þá skoðun á öllu milli himins og
jarðar og allir þurftu að láta í sér
heyra. Keli var mikill spilamaður og
oft var tekið í Kana og hann þá hvað
harðastur í sögninni. Keli hafði gam-
an af ljóðum og vísum ásamt því að
vera sjálfur hagyrtur. Ef ég man rétt
sá Hulda mest um innanríkismálin á
heimilinu, þ.m.t. að mála stofu og
ganga meðan húsbóndinn sat á eld-
húskolli og benti henni á hvað betur
mætti fara.
Eftirminnilegustu stundirnar með
Kela og Huldu eru án efa nokkur
ferðalög um Verslunarmannahelgar
norður í Hornvík. Þar var margt
brallað, veitt og skotið ásamt því að
ganga á fjöll og í næstu Víkur. Keli og
Hulda eiga 5 glæsileg börn og fjölda
afkomenda. Við vorum nokkur í fjöl-
skyldunni á svipuðum aldri og sam-
gangurinn var því mikill og kynnin
góð.
Huldu, börnum, tengdabörnum og
afkomendum sendi ég okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Eftir situr
minning um góðan mann sem nú hef-
ur kvatt. Guð verði með Kela og ykk-
ur öllum.
Kristján B. Ólafsson.