Morgunblaðið - 14.01.2010, Síða 42
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
SÝND MEÐENSKU TALI ÍREGNBOGANUM
HHH
„...hefur sama sjarma til
að bera og forverinn“
-S.V., MBL
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI
Missið ekki af þessari byltingarkenndu stórmynd
frá James Cameron leikstjóra Titanic.
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
TILNEFNINGAR
TIL GO LDEN GL OBE VERÐLAUNA
BESTA MYND - BESTI LEIKSTJÓRI - BESTA TÓNLIST - BESTA LAG
HHHH+
-Ó.H.T., Rás 2
HHHHH
-H.K., Bylgjan
HHHHH
-T.V., Kvikmyndir.is
HHHHH
-H.S., MBL
HHHHH
-V.J.V., FBL
HHHH
-Á.J., DV
The Road kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
Taking Woodstock kl. 8 - 10:30 B.i. 14 ára
Alvin and the Chipmunks (enskt tal) kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Alvin og Íkornarnir (ísl tal) kl. 6 LEYFÐ
Julie and Julia kl. 5:30 - 8 - 10:35 LEYFÐ
Did you hear about the Morgans kl. 10 B.i. 7 ára
Mamma Gógó kl. 8 LEYFÐ
Alvin og Íkornarnir kl. 6 LEYFÐ
Avatar kl. 6 - 9 B.i. 10 ára
Mamma Gógó kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ
Alvin og Íkornarnir (ísl tal) kl. 5:50 LEYFÐ
Avatar 3D kl. 10:10 B.i.10 ára
Avatar 2D kl. 9 B.i.10 ára
Whatever Works kl. 5:50 - 8 B.i.7 ára
A Serious Man kl. 10:10 B.i.12 ára
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
YFIR
80.000
MANNS
HUGH GRANT OG SARAH JESSICA PARKER FARA Á KOSTUM Í FRÁBÆRRI GAMANMYND
HHH
„Myndin er mann-
leg og fyndin“
-S.V., MBL
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með K
Hugverkastuldur er glæpursem er stundaður í öllumlistgreinum. Hver kann-
ast ekki við umræðuna í tónlistar-
og kvikmyndaiðnaðinum um
hversu mikið tapið er vegna ólög-
legs niðurhals og ólöglegrar fjöl-
földunar og sölu ár hvert. Mál-
verkafölsunarmál teljast til
stórglæpa, menn sitja inni í ára-
raðir ef þeir eru fundnir sekir um
að hafa fjölfaldað verk einhverra
meistara. Minna er talað um
hönnunarstuld og fölsun í fataiðn-
aði en reglulega koma þó upp mál
þar sem fatahönnuðir saka aðra í
faginu um að stela sinni hönnun
og selja undir eigin nafni. Svo við
tölum nú ekki um allar gervi-
Prada-, -Dior- og -Chanel-
töskurnar sem hægt er að kaupa
upp úr bílskottum í flestum
heimsborgum. Svo eru það fyr-
irtækin sem fjöldaframleiða föt,
þau fylgjast með því sem stóru
tískuhúsin gera og hvaða línur
þau leggja fyrir hverja árstíð og
apa það upp í svipaðar, klæðilegri
og ódýrari flíkur sem almenn-
ingur hefur efni á að kaupa.
Hönnunarstuldur er ódýr leið
til að græða á sköpun og vinnu
annarra. Eitt er samt að fá inn-
blástur frá öðrum hönnuðum í
sína eigin hönnun, annað er að
stela henni.
Íslendingar hafa alltaf veriðduglegir við að bjarga sér og
hefur verið stundaður víðtækur
hönnunarstuldur í heimahúsum
hérlendis um langa hríð.
Skemmst er að minnast Emami-
kjólsins sem sló í gegn fyrir
tveimur árum. Allt í einu fóru
konur að draga fram saumavélina
til að eignast einn slíkan, fæstar
tímdu þær að borga fyrir hann en
Emami er tískumerki tveggja
ungra íslenskra systra og var
kjóllinn þeirra fyrsta hönn-
unarvara í sölu.
Eftir að prjónaæði greip land-
ann og lopapeysur urðu að tísku-
vöru hefur verið nokkuð mikið
um það að íslensk lopahönnun sé
stæld. Farmers Market-peysurnar
hafa verið þar efstar á blaði og
skammast sín enginn fyrir að við-
urkenna að hafa stolið þeirra
uppskriftum.
Heyrst hefur að konur séuorðnar svo kræfar í stuld-
inum að þær hiki ekki við að fara
inn í þær verslanir sem selja þess-
ar vörur og taka fram peysuna
sem þær langar til að eignast,
leggja hana á verslunarborðið og
telja lykkjurnar upphátt fyrir
framan afgreiðsludömuna og
skrifa samviskusamlega niður á
blað svo ekkert klikki þegar
stolna peysan er prjónuð.
Ef Farmers Market myndi gefa
út prjónabók þar sem uppskrift-
irnar að þeirra peysum væru að-
gengilegar öllum þeim sem bók-
ina keyptu, eins og t.d. Álafoss
gerir, væri sjálfsagt mál að
prjóna slíkar peysur, en þeir
bjóða ekki upp á það. Farmers
Market er þeirra merki, þetta er
þeirra mynstur og þeirra hönnun.
Ekki myndi neinum, eða a.m.k.
mjög fáum, detta í hug að ganga
inn í gallerí með penna, blað og
myndavél og byrja að skissa niður
og taka myndir af því málverki,
eða þeim listmun, sem þá langar
til að eignast. Fara svo heim og
gera nákvæmlega eins verk. Sá
yrði úthrópaður falsari. Sá sem
prjónar Farmers Market-
lopapeysur er jafn mikill falsari,
peysurnar eru jafn höfundarétt-
arvarðar og málverk sem hangir
uppi í galleríi. Glæpurinn er líka
enn alvarlegri þegar málverkið
eða peysan er fjöldaframleidd af
þjófnum og seld til gróða.
Svo má líka spyrja sig hvortkom á undan, hænan eða egg-
ið? Hönnun Farmers Market
byggir á gamla íslenska lopa-
peysumynstrinu og má eflaust
finna svipuð mynstur í gömlum
eða nýjum prjónablöðum. Það
réttlætir að mínu mati samt ekki
nákvæma eftiröpun á þeirra
hönnun. Prjónafólk ætti að hafa
meiri metnað en svo, finna upp
eigin mynstur eða bara prjóna
eftir löglegum uppskriftum.
Auðvitað er skiljanlegt að allir
vilji eignast það sem er í tísku án
þess að þurfa að greiða mikið fyr-
ir það. Ef þú getur gert eins flík
heima fyrir helmingi lægra verð,
hvers vegna ekki? Vegna þess að
hönnunarstuldur er jafn alvar-
legur glæpur og annar stuldur.
ingveldur@mbl.is
Hönnunarstuldur í heimahúsum
Farmers Market Fyrirsæta klædd ullarpeysunni Stóra-Fljót og kjólnum
Heiði frá íslenska hönnunarfyrirtækinu Farmers Market.
AF HÖNNUN
Ingveldur Geirsdóttir
»Eftir að prjónaæðigreip landann og
lopapeysur urðu að
tískuvöru hefur verið
nokkuð mikið um það
að íslensk lopahönnun
sé stæld.