Morgunblaðið - 14.01.2010, Page 44
Lukkuriddarar Málverk eftir list-
málarann Jón Henrysson.
Listmálararnir ellefu sem verk eiga á sýning-unni Ljóslitlífun eiga það sameiginlegt aðhafa alist upp við sjónmenningu sem ein-kennist af myndasögum, teiknimyndum,
tölvugrafík og götulist og áhrifa þessarar menningar
gætir í verkum þeirra með ýmsum hætti, að sögn sýn-
ingarstjórans Hafþórs Yngvasonar, sem jafnframt er
forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur. Þessi einkenni
eða áhersla í verkum listmálaranna skilur þá frá fyrri
stefnum. Listamennirnir eru Davíð Örn Halldórsson,
Gabríela Friðriksdóttir, Guðmundur Thoroddsen,
Heimir Björgúlfsson, Helgi Þórsson, Jón Henrysson,
Ragnar Jónasson, Sara Riel, Sigga Björg Sigurð-
ardóttir, Sigtryggur Berg Sigmarsson og Þórdís Að-
alsteinsdóttir.
Sýning í Nýló kom á óvart
Hafþór segir hugmyndina að sýningunni hafa kvikn-
að hjá sér árið 2007, þegar verk þriggja af málurunum
voru á sýningu í Nýlistasafninu. „Þarna var allt í einu
málverk uppi á vegg og það er mjög óvenjulegt af þess-
ari kynslóð því langflestir vinna með vídeó, hljóð og
tónlist og margir af þessum myndlistarmönnum sem
eru á sýningunni vinna þannig líka. Þetta kom mér á
óvart og þegar ég fór að sjá fleiri og fleiri listamenn
sem voru að mála í sama anda, af sömu kynslóð, þá
kviknaði þessi hugmynd.“
Hafþór segir málarana ellefu koma inn með aðrar
áherslur en eldri kynslóðir, þótt þeir myndi ekki hreyf-
ingu eða fylgi sameiginlegri stefnu. „Það er auðséð að
þau hafa verið að horfa á teiknimyndir og myndasögur,
tölvugrafík o.s.frv. þannig að það er mikið unnið með
flata litfleti, ótónaða liti, oft hreina og óblandaða liti og
dálítið grafískt og dálítið tengt aðferðum popplista-
mannanna. Nema hvað að þarna er ekki verið að vinna
með poppímyndir, ekki verið að fá lánaðar ímyndir úr
tímaritum o.s.frv. …“
– Þær koma þá úr eigin hugarheimi?
„… úr eigin hugarheimi og það var dálítið athygl-
isvert þegar ég var að tala við þau, að öll voru höll
undir súrrealismann og þetta er einhvers konar popp-
súrrealismi, myndmálið kemur innan frá en formmálið
tengist myndasögum og teiknimyndum.“
Hvað efnisval varðar má nefna að sum verkin eru
máluð með iðnaðarmálningu á gróf tréspjöld, önnur
með listamannableki á fíngerðan pappír og önnur beint
á veggi safnsins.
Umbreyting fyrir tilstilli ljóss
Titillinn Ljóslitlífun er nýyrði sem varð til með því
að snúa öðru atkvæðinu í ljóstillífun svo að úr varð
„lit“, eða orðið „litur“ í þolfalli. Titillinn vísar til um-
breytingar sem verður fyrir tilstilli ljóss sem má taka
sem margræða líkingu fyrir málun. Titillinn kom upp í
samræðum Hafþórs við Jón Henrysson, einn listamann-
anna.
Sýningin verður í þremur sölum safnsins, A, B og C,
og verður opnuð kl. 21 annað kvöld. helgisnaer@mbl.is
„Einhvers konar poppsúrrealismi“
Verk ellefu málara af yngri
kynslóðinni verða á sýning-
unni Ljóslitlífun í Hafnarhúsi
„Myndmálið kemur innan
frá en formmálið tengist
myndasögum og teiknimynd-
um,“ segir sýningarstjóri
Morgunblaðið/Golli
Hafþór og málararnir Safnstjórinn stillti sér upp í gær með listmálurunum sem verk eiga á sýningunni Ljóslitlífun.
Europa, Kittycat and Potato Verk eftir
myndlistarkonuna Þórdísi Aðalsteinsdóttur.
Blastocyst Verk eftir Ragnar Jónasson.
Án titils Verk eftir Sigtrygg Berg.
Solid shiny superb Gegnheill gljáandi yf-
irburðar, verk eftir Heimi Björgúlfsson.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. JANÚAR 2010
„BJARNFREÐARSON KOM MÉR EKKI LÍTIÐ
Á ÓVART. MÉR FANNST HÚN GEGGJUÐ!“
KVIKMYNDIR.IS-T.V.
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FRÁ RAGNARI BRAGASYNI KEMUR
EIN BESTA GAMANMYND ÁRSINS!
GEORG, ÓLAFUR
RAGNAR OG DANÍEL
ERU KOMNIR Í BÍÓ!
FRÁBÆR MYND
FYRIR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
BJARNFREÐARSON
HHHH
MEINFYNDIN...
– FRÉTTABLAÐIÐ/
BERGSTEINN SIGURÐSSON
HHHH
ÞAÐ VAR LAGIÐ!
– DV/DÓRI DNA
Selma Björnsdóttir - Rúnar Freyr Gíslason
Magnús Jónsson - Laddi – Egill Ólafsson
JOHN TRAVOLTA OG ROBIN WILLIAMS FARA Á
KOSTUM Í ÞESSARI SPRENGHLÆGILEGU MYND
SÝND Í ÁLFABAKKA
FRÁBÆR SPENNUMYND Í ANDA SCREAM OG I
KNOW WHAT YOU DID LAST SUMMER
ÞÆR ÆTLA AÐ REYNA AÐ ÞAGA YFIR LEYNDARMÁLI DAUÐANS!
BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU
STEPHENIE MEYER
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI, 2 VIKUR Í RÖÐ!
SÝND Í ÁLFABAKKA
EINHVER FLOTTUSTU BARDAGAATRIÐI
SEM SÉST HAFA Í LAAANGAN TÍMA!
HÖRKU HASARMYND
SÝND Í ÁLFABAKKA
YFIR 55.000 GESTIR ELLEN PAGE úr
JUNO er stórkostleg
í þessari frábæru
mynd
Vertu þín eigin hetja
HHHH
“ELLEN PAGE ER STÓRKOSTLEG”
- NEW YORK DAILY NEWS
HHH
“MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ”
- ROGER EBERT
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA
OldDogs
/ KRINGLUNNI
SHERLOCK HOLMES FORSÝNING kl. 8 - 10:40 12
BJARNFREÐARSON kl. 5:40 - 8 - 10:20 L
WHIP IT kl. 8 - 10:20 10
PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ísl. tali kl. 6 L
PRINSESSAN OG FROSKURINN m. ensku tali kl. 6 L
/ ÁLFABAKKA
SHERLOCKHOLMES FORSÝNING kl.10:20 12 OLDDOGS kl. 6 L
SHERLOCKHOLMES FORSÝNING kl.10:20 VIP SORORITYROW kl. 8 - 10:20 16
WHIPIT kl.5:30-8-10:30 10 THETWILIGHT2NEWMOON kl. 8 12
BJARNFREÐARSON kl.5:40-6:20-8-9-10:30 L
BJARNFREÐARSON kl. 5:40 - 8 VIP
PRINSESSANOGFROSKURINN m.ísl.tali kl.5:50 L
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
Stórkostleg teiknimynd þar
sem Laddi fer á kostum í
hlutverki ljósflugunnar Ray
Frá höfundum
Aladdin og Litlu
hafmeyjunnar
kemur nýjasta
meistaraverk
Disney
Listamanna-
spjall 17. jan.
Listasafn Reykjavíkur
mun bjóða upp á lista-
mannaspjall tengt sýn-
ingunni Ljóslitlífun á
sunnudaginn kl. 15. Þá
munu Guðmundur
Thoroddsen, Heimir
Björgúlfsson og Ragnar
Jónasson spjalla við
gesti og svara spurn-
ingum þeirra. Nánar
má lesa um dagskrá
safnsins, sýningar og
listamenn á listasafn-
reykjavikur.is.