Skólablaðið

Volume

Skólablaðið - 01.11.1987, Page 28

Skólablaðið - 01.11.1987, Page 28
Ritdómur Skólablaðsins 1987, 2. tbl., 62. árg. Forsíðumynd síðasta tölublaðs Skólablaðs M.R. er allsérstæð. En þar má sjá gamla mynd af ungri stúlku í baðfötum sem brosir fram- an í „væntanlega" lesendur. Má segja að myndin sé alger andstæða við efni blaðsins. Mætti af henni ráða að ritstjórnarmenn taki sig ekki of alvarlega, en við lestur blaðsins kemur þó annað í ljós. Eins og segir í Editor dicit, setti ritstjórnin markið hátt og er blaðið í heild mjög efnismikið. Eru í því margar fræðandi greinar, viðtöl, smásögur og svo auðvitað ljóðin sem eru ómissandi hverju Skóla- blaði. Vantar því ekki að blaðið er mjög menningarlegt. En við það fær það heldur þungt yfirbragð. Mætti vera meira „léttmeti" og er lítið um hinn „dæmigerða" skóla- humor. En vendum okkar kvæði í kross og lítum nánar á: Mistök frá upphafi er fyrirsögnin við grein inspectors, Ragnheiðar Traustadóttur. Kemur hún þar skil- merkilega á framfæri skoðunum sínum á því fyrirbæri sem nefnist FF eða Félag ffamhaldsskólanema. Hvar, ef ekki á síðum Skólablaðs- ins, er vettvangur inspectors til að upplýsa nemendur um það sem er að gerast í skólamálum? Dándimaður eftir Kristján Þ. Hrafnsson er óvenjulegur pistill um einn heiðursmann skólans. Pistillinn er óvenjulegur að því leyti að greinarhöfundur segir frá persónu- legum kynnum sínum af heiðurs- manninum í skáldsagnarformi, en bætir persónulegum einkennum hans og upplýsingum þar að lút- andi inn í skýrsluform. Verður greinin því skemmtilegri aflestrar. Viðtalið við Söruh Wachenheim, bandarískan skiptmema, er for- vitnilegt. Fær maður nokkra hug- mynd um Söruh og viðhorf hennar og er alltaf gaman að kynnast hvaða augum útlendingar líta land og þjóð. Er kennsla á íslandi á eftir tíman- um? er umfjöllun Elínar Halldórs- dóttur um skýrslu OECD um ís- lenska skólakerfið. Gerir hún fyrst grein fyrir skýrslunni en tekur síð- an til nánari umfjöllunar laun og ábyrgð kennara. Þetta er vissulega áhugavert umfjöllunarefni, ekki síst vegna kennaraverkfallsins sem þá stóð yfir. Þó hefði verið gaman að sjá ýtarlegri umfjöllun um fleiri atriði skýrslunnar. Vinátta eftir Elsu Valsdóttur fjall- ar í rauninni um vináttu tveggja stúlkna, saklausu sveitastúlkunnar og borgarbarnsins, og segir hvern- ig sú vinátta þróast. Sagan er ein- föld og er boðskapur sögunnar augljós, þ. e. boðskapurinn um hina sönnu vináttu. Hún er ágætlega skrifuð og eru efnistök í góðu lagi. Vetrarmorgunn eftir Melkorku T. Ólafsdóttur er athyglisverð saga. Skáldskapurinn er fremur ljóðrænn á köflum og vel skrifaður. Sambúðin við landann eftir Jón H. Egilsson er ekki skemmtileg af- lestrar, Sagan birtir vangaveltur gamals M.R.-ings, sem er heldur þreyttur og bitur. Ég ætla að vona að hann eigi sér enga fyrirmynd. Oft hefur verið kvartað um að alltaf sé fjallað um sama fólkið í Skólablaðinu. Er því viðtalið, sem ber yfirskriftma: Hvernig er að vera í M.R.? — góð tilraun ritnefndar til þess að tala við þá sem láta lítt til sín taka í félagslífinu. Mætti jafnvel vera meira af slíku efni, þ. e. a. s. viðtöl við/eða umfjöllun um núver- andi nemendur skólans. Kafka er stuttaraleg frásögn sem segir frá starfsferli Kafka. Á eftir fylgir Stýrimaðurinn í ágætri þýð- ingu Hrafns Lárussonar. Hefði þó verið ánægjulegt ef fjallað hefði verið nánar um verk Kafka, þar sem þau hafa haft mikil áhrif á sagnagerð nútímans. Firnd eftir Árna J. Magnús er hafsjór af setningum sem engan veginn fara saman. Sumar eru allt að því fáránlegar, s. s.: „Sumarið bar fleiri osta í skauti sér," „Sleipir veggirnir urðu laufasjöunum of víða til ama." Og oft má finna andstæður í setningunum, s. s. þurr rign- ing ... o. s. frv. Útkoman verður því gjörsamlega óskiljanleg. En allt virðist þetta gert með ásetningi og ber óneitanlega vitni um fjörugt ímyndunarafl og storkun höfundar gagnvart hinu hefðbundna formi hugsunar og tjáningar. Þetta er út af fyrir sig afrek ef menn kunna að meta framúrstefnu og frumleik. í blaðinu eru fjögur viðtöl við fyrrverandi nemendur M.R., sem eiga það sameiginlegt að hafa lagt út á listabrautina að loknu stúdents- prófi. Allt eru þetta ágætis-viðtöl, og er gaman að sjá hvernig þetta fólk lítur á M.R. svona eftir á. Mætti kannski benda á orð Kristínar Guð- mundsdóttur: „Hvað er frelsi, ef ekki skóli?" Á eftir viðtalinu við Wilhelm Em- ílsson fylgir smásaga eftir hann sem ber nafnið Brautarteinar. Sag- an er vel skrifuð og oft nokkuð myndræn lýsing. Þó finnst mér hún nokkuð óskýr. Upphaf leiklistar, eftir Sigurð Arnarson, er áhugaverð grein um leiklistina. Það er ekki verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur í grem Jóhönnu Vigdísar Árnadóttur um Sergei Rachmanmoff. Þó að fyr- irsögnin hljómi dálítið þunglama- €inn morguninn datt mér í hug oð finnast þoð óþolondi en vor róðið fró því. — Bragi Ólofsson 28

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.