Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.11.1987, Side 35

Skólablaðið - 01.11.1987, Side 35
Draumur Ég hefði átt að vita betur. Ég gekk um götur Reykjavíkur, sá lítinn dreng og spurði: „Veistu hvað dauðinn er?“ Hann horfði á mig opinmynntur og hristi höfuðið. Ég gekk um götur Jerúsalem sá litla stelpu og spurði: „Veistu hvað dauðinn er?“ Hún horfði á mig með fjarlægri sorg og sagði: „Maðtmnn sem drap afa og ömmu í Þýskalandi.“ Ég gekk um götur Beirút sá lítinn dreng og spurði: „Veistu hvað dauðinn er?“ Hann horfði á mig társtokknum augum og sagði: „Hermaðurinn sem drap pabba og mömmu í rústunum.“ Ég gekk um götur Addis Ababa sá litla telpu og spurði: „Veistu hvað dauðinn er?“ Hún horfði á mig brostnum augum og sagði: „Ég er hann!“ Ég gekk um breiðstræti helvítis sá lítinn ára og spurði: „Veistu hvað dauðinn er?“ Hann horfði á mig logandi augum og sagði: „Þriðju dyr til vinstri." Ég gekk þangað inn sá litlu telpuna frá Addis Ababa spila kotru við sér eldri mann. ósæmilegt? Ég spurði: „Veistu hvað dauðinn er?“ Hún svaraði bara: „Ég vinn þig.“ H.L. í morgtm sat ég inni í draumaherberginu. Þar er allt hulið grárri þoku, eins og slikja hangi yfir öllu. Þar líður tíminn ekki. þar er ekkert rúm. Ég heyrði dapurlegt lag, tónar sem dönsuðu i sagganum á veggjimmn, gluggunum. Droparxúr blönduðust tárum mínum. Trúir þú því? þar er ég allt eða ekkert til skiptis. þess á milli er ég allt og ekkert. Trúir þú því enn? Um kvöld. Ég horfði á sólina: hún settist. Ég stóð upp og gekk í burtu með glýju í augum og blóð á hnakkanum, því nóttin var svört og framtíðin rann saman við hana, blindaði mig, myrkvaði allt, sem ekki var fast eða hafði ásynd kvalar — Samtal við dauðann .... brosti aðeins. Síðan sagði hann: „Hvernig líður þér?" „Er það svona að vera dauður?" „Já, nákvæmlega svona." „Skrýtið." „Nú, vissirðu það ekki?" „Nei, ég hef aldrei verið dauður fyrr." „Jæja, nú veistu hvernig það er. Hvernig líður þér?" spurði hann aftur. „Undarlega, mér finnst ekkert hafa breyst." „Já, þannig er það alltaf." „Er það virkilega svona, ég mema . . . ekkert meira?" ,Æi, þegiðu!" 35

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.