Skólablaðið - 01.11.1987, Qupperneq 44
„SUMIR SEM FARIÐ
HAFAI GEGNUM M.R.
HAFA ALDREI BEÐIÐ
ÞESS BÆTUR"
— Bragi Ólafsson, skáld og Sykurmoli, tekinn tali —
Bragi, nú ert þú einkum þekktur
fyrir tvennt: annars vegar að vera
skáld og hins vegar að vera Sykur-
moli. — En fyrir hvað þekkir þú
sjálfur þig?
Ja, ég er nú ekki alveg viss um
það. Sykurmoli segirðu, og skáld.
— Ég var eiginlega alveg hættur
að spila á tímabili, en svo dróst ég
inn í þetta aftur, og núna tekur
þetta tíma frá skriftunum. Ég á erfitt
með að líta á mig sem skáld þótt ég
hafi gefið út bók. Og ég lít alls ekki
á mig sem tónlistarmann, heldur
frekar sem meðlim í hljómsveit.
Tónlistarmenn lifa og hrærast í tón-
list — en þannig er það ekki hjá
mér. En ef þú vilt endilega negla
mig niður . . . tja, ætli ég sé þá
ekki bara skáld . . .
Hvenær byrjaðirðu að skrifa og
spila?
Ég byrjaði svo til samtímis á
hvoru tveggja. Pá var ég 14 ára, í 2.
bekk í Hagaskóla. Ég byrjaði sem
sagt á undan pönkbylgjunni, sem
ég síðan dróst inn í með Einari
Erni. Það hefur líklega verið 1981.
Pönkið byrjaði mjög seint á íslandi.
Eiginlega var það Emar sem kom
þessari bylgju af stað. T. d. flutti
hann inn plötur og kynnti pönktón-
list fyrir Ása í Gramminu, sem þá
vann í Fálkanum. — En við Einar
stofnuðum Purrk Pillnikk. Það var
ansi gaman. Ætli hápunkturinn hafi
ekki verið hljómleikaferðalagið
með The Fall. — Nei annars, há-
punkturinn var Melarokkið '82. Við
hættum svo eftir það. Síðan spilaði
ég með Tolla í íkarusi áður en Syk-
urmolarnir komu til sögunnar. —
Áður en ég byrjaði í Purrkinum
spilaði ég svolítið á kassagítar í tríói
með Friðriki gítarleikara úr Purrk-
inum.
En skriftimar? Þú byijaðir strax í
Hagaskóla?
Já, en það var nú bara drasl sem ég
vildi helst gleyma. Síðan hætti ég
eiginlega alveg að skrifa í mörg ár.
Ég samdi að vísu nokkra texta fyrir
Purrkinn, en það telst varla með,
eða hvað? — Síðan um tvítugt byrj-
aði ég skyndilega að lesa bók-
menntir, og fór að skrifa upp úr því.
Ég las fyrst bækur sem vinir og
kunningjar bentu mér á. Um þetta
leyti vann ég á bögglapóststofu,
þar sem nægur tími var til sam-
ræðna og ágætur andi. Það má
kannski segja að þarna hafi mynd-
ast málfélag, m. a. um bókmenntir.
— Svo að ég hef lesið ansi mikið á
stuttum tíma.
Hvað lestu aðallega?
Ætli það sé ekki mest ljóð og um
ljóð, íslensk og erlend nokkurn
veginn til jafns. Annars finnst mér
fátt verulega spennandi í íslénskri
ljóðagerð. Dagur Sigurðarson er
kannski helsti áhrifavaldurinn á
mig. Honum kynntist ég fyrst 15 ára
og var mikill aðdáandi hans upp frá
því. Síðan kynntist ég Medúsu eða
leifunum af henni þegar ég var að
setja saman Dragsúg.
Þetta er ansi merkilegur hópur, og
það er dálítið sorglegt að hann hef-
ur verið mjög afskiptur, ef Sjón er
undanskilinn. T. d. hefur Medúsa
verið skilin næstum algerlega út
undan í safnritum eins og söfnunum
hans Eysteins. — Það stendur til hjá
Smekkleysu að gefa út samsafn af
ljóðum eftir vanrækt skáld. Raunar
ætlum við að reyna að auka útgáfu-
starfsemina hjá okkur, — hingað til
höfum við bara gefið út eftir mig og
Þór.
Er eitthvað fleira á döfinni hjá
Smekkleysu?
Já, það stendur t. d. til að setja upp
eins konar bókmennta- og plötu-
miðstöð, „workshop". Við myndum
þá opna litla kaffi- og bókastofu,
flytja inn áhugaverðar bækur sem
annars kæmust aldrei til landsins,
„neðanjarðarbókmenntir" frá Bret-
landi, Evrópu og Ameríku. — Bók-
menntastarfsemin hérna núna er
ansi fátækleg. Það eina, sem er í
gangi fyrir utan aðalstrauminn, er
Teningur. Hann er góð tilraun, en
eitt tímarit bara nægir ekki; það
þarf meiri breidd í þetta. En auð-
vitað er þetta allt saman mjög erfitt,
markaðurinn er svo lítill. T. d. getur
Teningur ekkert borgað fyrir efni.
Hvað með sjálfan þig? Er önnur
bók væntanleg?
Nei, ekki strax. Ég er með hug-
mynd að bók, en það eru kannski
tvö ár í að hún verði tilbúin. Það
þarf algert næði til að geta klárað
svona lagað; í það minnsta dugir
ekkert fyrir mig að vinna það í
íhlaupum, Dragsúgur varð til á
Spáni, þar sem ég hafði frið til að
einbeita mér að henni. — Annars
vona ég að næsta bók verði meiri
heild heldur en Dragsúgur. Hann
er eigmlega þrjár heildir plús við-
auki. Hann er svolítið sundurleitur,
efnið er frá tveimur tímabilum, fyrir
og eftir að ég kynntist Medúsu, þótt
ég fari lítið eftir því í kaflaskiptingu.
44