Skólablaðið - 01.11.1987, Síða 46
ætli ég hafi ekki verið með svona
200 ljóð — en úr þeim valdi ég svo
rúmlega 20.
Svo ad við snúum okkur aftur að
tónlistinni, Bragi, þú byrjaðir í
Versló á sínum tíma. Hvemig var
að vera þar og um leið í pönksveit?
Ég var nú í Versló áður en Purrkur-
inn byrjaði, og ég skipti fljótlega
yfir í M.H.; Versló var ekki mín
deild, Ég held það sé jafnvel verra
með M.R., en Versló að því leyti að
sumt fólk, sem farið hefur í gegnum
M.R. hefur aldrei beðið þess bætur
— það getur ekki slitið sig frá hon-
um, er hreykið af því að hafa verið í
M.R., Jbara af því að það er M.R.
Þetta fólk lifir ekki sínu lífi sem
manneskjur, heldur sem Emmerr-
ingar. — En M.H. hafði sína galla
líka, og nóg af þeim. Mér leiddist
þar, svona frekar,
í sambandi við Sykurmolana, hvað
vomð þið að gera á Englandi?
Við héldum nokkra tónleika, tókum
upp tvö lög á stóru plötuna, og svo
voru tekin við okkur viðtöl, aðal-
lega Einar og Björku. Þetta tókst
ágætlega; við fengum t. d. ágæta
dóm í blöðum. Það stóð til að við
færum í mánaðarferðalag um Eng-
land, en við hættum við það og för-
um þess í stað út í desember, í
svona vikutíma. Þá spilum við á
nokkrum mikilvægari tónleikum.
Við viljum viðhalda þessari ís-
lensku „mýstík". Ef við gerum Bret-
ana of vana okkur kynni hún að
hverfa. Þess vegna búum við líka
hér heima, a. m. k. fyrst um sinn,
Eruð þið súrrealísk rokksveit, eins
og þið hafið þóst vera í viðtölum
erlendis?
í rauninni ekki, þetta er bara
merkimiði sem við sáum fram á að
við yrðum að taka okkur, vegna
þess að Bretarnir myndu hvort sem
er flokka okkur undir eitthvað; og
súrrealismi er skásta flokkunin sem
okkur datt í hug. — Við erum súr-
realísk í sumum textunum okkar.
Hvað er fram undan hjá ykkur?
Það er í sjálfu sér lítið að gera fram
að jólum fyrir utan þessa Englands-
ferð í desember. Við höldum líka
nokkur skemmtikvöld Smekkleysu
og spilum eitthvað í skólum. Platan
kemur út í desember hérna, janúar
eða febrúar erlendis, — En síðan
förum við til Bandaríkjanna í apríl í
mikið hljómleikaferðalag, kannski
til Hawaii í leiðinni.
Að lokum:
Eru allir Sykurmolar ómissandi?
Já.
Ég og sumaiið
í sumar áttum ég og sumarið
hrollvekjandi unaðsstundir.
í látbragði sálarinnar
talaði ég við það, skynjaði sólarupprásma.
Sumarið og ég skildum ekki útlönd
en við gátum grátið saman
í ómi miðnætursólarinnar.
Allt í emu átti ég svo stóran
hlut í sumrinu.
Sumarið brosti bara, hallaði undir flatt
og sagði að það væri allt í lagi.
Sumarið fór í gær og emu minnmgarnar
eru rósrauðar varir þess.
Þegar sumarið kemur aftur
ætla ég að taka á móti því
og hvlsla:
— Hvar hefurðu verið?
Jóhann Matthíasson
46