SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Blaðsíða 2

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Blaðsíða 2
2 27. mars 2011 Við mælum með … 27. mars Fyrsti þátturinn af fjórum í nýrri íslenskri sakamálaseríu, Tíma norn- arinnar, verður sýndur í Ríkissjónvarpinu að kvöldi sunnudags kl. 20.10. Leikstjóri þáttanna er Friðrik Þór Friðriksson en þeir eru byggðir á sam- nefndri bók eftir Árna Þórarinsson um Einar blaðamann. Með aðal- hlutverkið fer Hjálmar Hjálmarsson. Sakamál í sjónvarpinu 8 Biðukollan á Brúnni Brasilíumaðurinn David Luiz hefur komið eins og stormsveipur inn í lið Chelsea í enska boltanum og landi hans, Ramires, er að hressast. 13 Stuðlar að trjárækt Umslag sérhæfir sig í að koma gögnum á prenthæft form, pakka þeim og póstleggja. Þar segja menn pappírsnotkun stuðla að skógrækt. 28 Þjóðin, landið og lýðveldið Sýning á ljósmyndum Vigfúsar Sigurgeirssonar frá árunum 1928 til 1958 verður opnuð á Minjasafninu á Akureyri í dag. 31 Lék orðið „ástríða“ Hilda Jana Gísladóttir, sjónvarpskona á Akureyri, velur nokkrar myndir úr myndaalbúmi sínu. 34 Náttúran kveikjan Matreiðslumeistarinn Völundur Snær Völ- undarson er með mörg járn í eldinum, rekur meðal annars veitingastað á Bahamaeyjum. 36 Halda sig á mottunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er meðal efstu liða í átakinu mottumars sem lýkur um helgina. Heilsað er upp á skeggprúða lagaverði. 40 Brett og sparslað Það getur verið gaman að prófa nýjar snyrtivörur og nú fara hillur að fyllast af spennandi nýjum sumarlitum. Lesbók 44 Töfraraunsæi og tígriskonan Mikið er látið með bandaríska rithöfundinn Téu Obreht vestan hafs um þessar mundir og fyrsta skáldsaga hennar lofuð. 24 Augnablikið Þ eir voru ekki eins stórir og ég átti von á. Skýjakljúfarnir. Bíddu, og er þetta allt? Er þetta virkilega Times Square? Ég átti von á ókleifri mannmergð, öskrum og brjálæði, hundruðum lögregluþjóna, eiturlyfja- fíklum og ótíndum þjófum. Þess í stað stóðu þarna auð borð og stólar þar sem hægt var að hvíla lúin bein. Ein lögga var í seilingarfjarlægð, kjamsandi á kleinuhring, sultuslök. Og ég fór ekki upp í Emp- ire State og sá ekki einu sinni frelsisstyttuna. Svona var ferðalag mitt til New York um síðustu helgi – já, svona var eitt besta ferðalag sem ég hef tekið mér fyrir hendur í árafjöld. Ég er 37 ára gamall og var að fara í mína fyrstu ferð til þessarar nafntoguðu borgar. Skandall! Svo margir af vin- um mínum og kunningjum voru búnir að fara að ég var farinn að skammast mín, fannst ég orðinn alvarlega utangátta. Svo þegar ég loksins kemst er upplifunin … tja svo sannarlega öðruvísi en ég átti von á. En svona fara bíómyndirnar með mann í bland við væntingar byggðar á því hversu ROSA- LEG þessi borg sé. Ég hélt ég væri að fara að ganga inn í einhverja kolbrjálaða geimmynd þar sem skýjakljúfarnir væru margir kílómetrar að hæð og mannfjöldinn í borginni yfirmáta svakalegur með tilheyrandi dónaskap og sturlun. (Þú þarft víst að fara til Tókýó til að upplifa þetta. Mínus dónaskap að vísu. Veit ekki með sturlun.) Þannig að þessi yfirmáta slaka stemning sem einkenndi flestallt þarna kom mér á óvart. Ástandið í borginni hefur að vísu ekki alltaf verið svona, síður en svo. Sum hverfin þarna hafa á ákveðnum tíma verið lífs- hættuleg og þú varst að bjóða hættunni heim, hugnaðist þér að nýta þér neðanjarðarlestar- kerfið. En af hverju er ég að tala um þetta sem eitt best heppnaða ferðalag sem ég farið í lengi? Jú, ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að komast „aftur fyrir pallin“ eins og Færeyingar orða það, gisti hjá fólki sem þekkti borgina inn og út en þó einkum nærumhverfi sitt, Greenpoint-hverfið í Brooklyn. Rólegt og hlýlegt hverfi og ansi Pólverjavænt (mottan kom sér því vel). Þar við hliðina er svo „hippstera“-hverfið Williamsburg, undirlagt af listamönnum og fólki sem gengst upp í allra handa svalheitum. Dvölin fór þess vegna í það að marinera sig upp úr þessu heimasvæði gestgjaf- anna, ég saug í mig andann jafnt og bítandi með því að spássera um göturnar, hanga á kaffihúsum og virða fyrir mér börn að leik. Í stað þess að æða um alla borg eins og hauslaus hæna, taugatrekkt- ur yfir því hvort ég næði nú ekki örugglega að komast yfir allt sem milljónaborgin hefur upp á að bjóða. Rembingurinn við að njóta nú örugglega alls þess sem í boði er í botn veldur því svo iðulega að maður nýtur ekki neins af því sem var lagt upp með. „Hamingjan er ferðalag, ekki áfangastaður“ segir einhvers staðar. Ég náði þessum sannleik í fyrsta sinn á ævinni. Og það í Nýju Jórvík! Er það vel. Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Greinarhöfundur innan um skýjakljúfa Nýju Jórvíkur. Ljósmynd/Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir Arnar og Eplið 31. mars Kurteist fólk, ný íslensk kvik- mynd eftir Olaf de Fleur Jóhann- esson, frumsýnd. Hún fjallar um óhæfan verkfræðing (Stefán Karl Stefánsson) sem lýgur sig inn í samfélag á Vesturlandi og þykist geta komið sláturhúsi staðarins í gang á ný. 24.-27 mars Hönnunar- Mars er fjög- urra daga hönnuna- rhátíð í Reykjavík þar sem dagskráin er barmafull af fjöl- breyttum og spennandi viðburðum af ýmsu tagi. Hönnuðir bjóða al- menningi að kynna sér heim hönn- unar með sýningum og fyr- irlestrum. Efnisyfirlit Forsíðumyndina tók Kristinn Ingvarsson af Birgittu Haukdal. Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans: Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirs- dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson. 38

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.