SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Blaðsíða 23

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Blaðsíða 23
27. mars 2011 23 menn sem sátu í setustofu í anddyrinu og voru að gera sig klára til að mynda fólkið á götunum. Þar var þekktur ljósmyndari og kvikmyndagerðarmaður, Andris Slapins, sem hafði myndað í Síberíu og líf inúíta í Sovétríkjunum ásamt félögum sínum Jur- is Podnieks og Gvido Zvaigzne. Þeir voru að gera heimildarmynd um átökin í Eystrasaltsríkjunum. Mig langaði að fræð- ast um þau svæði sem Slapins hafði ferðast um og spurði hann varfærnislega. Andris var fámáll en vingjarnlegur, sagði lauslega frá lífinu á þessum framandi slóðum. Hann var að gera sig kláran fyrir átök kvöldsins. Ég vildi ekki trufla þá en óskaði eftir að hafa samband seinna, hafði áhuga á að taka myndir og kynnast lífi sem ég þekkti ekki. Við yfirgáfum hótelið en vissum ekki að á sama tíma beið hin illræmda svarthúfu- sérsveit í felum á horninu beint á móti, tilbúin að skjóta. Það átti að valda usla og vara menn við að ganga of langt í frels- isbaráttunni. Það er til kort sem sýnir hvar þeir voru og klukkan hvað. Það átti að valda ógn og skelfingu meðal fólksins og vara aðrar þjóðir við því að skipta sér af málum Sovétríkjanna. Það átti að valda skelfingu í hverju Eystrasaltsríkjanna fyr- ir sig. Rúmum klukkutíma eftir að við yfir- gáfum Riga hófst skothríð svarthúfusveit- anna fyrir framan hótelið, tveir her- lögreglumenn og ungur Letti voru lífshættulega slasaðir og létust síðar af sárum sínum. Við höfðum tekið myndir af lögreglumönnunum skömmu áður. Skyndilega urðu kvikmyndatökumenn- irnir skotmörk þar sem þeir voru í garð- inum skammt frá hótelinu. Andris Slapins var skotinn fyrstur, svo Gvuido Zvaigzne. Andris gerði sér grein fyrir því að hann var að deyja og bað Podnieks að taka kvikmyndatökuvélina sína og mynda sig. „Þeir skutu mig í hjartað,“ sagði Slapins af veikum mætti. „Haltu áfram að taka myndir!“ Hann dó nokkrum mínútum síðar af sárum sínum. Zvaigzne lést af sár- um sínum tveimur vikum síðar. Podnieks drukknaði átján mánuðum síðar á und- arlegan hátt. Hendur á vélbyssum Í Vilníus var útgöngubann, samt var fólk úti og sat við eldana í kuldanum, tilbúið að verja þinghúsið. Inni biðu sjálfboða- liðar tilbúnir að verja ráðamenn með gömlum rifflum. Jón Baldvin hitti Lands- bergis og aðra ráðamenn í þinghúsinu og við fylgdumst með upptökum sem sýndu hvernig lífið var murkað úr fólki, keyrt yfir það á skriðdrekum og skotið af stuttu færi. Fjórtán manns féllu í valinn og margir voru særðir. Það var eiginlega þá sem maður gerði sér grein fyrir því að við værum í bráðri hættu ef árás yrði gerð – að enginn væri óhultur í þessu umhverfi, ekki einu sinni íslenski ráðherrann. Ör- yggisverðir voru með hendur á vélbyssum innan klæða, tilbúnir að verja Jón Baldvin og föruneyti hans. Orðrómur var um það að hugsanlega yrði gerð skotárás á bíla- lestina þegar hún ferðaðist milli landa. Þess vegna var keyrt á ógnarhraða á flug- hálum vegum til að forðast árás, öll at- burðarás var óútreiknanleg. Andrúmsloft var eins spennuþrungið í Tallinn. Jón Baldvin og Arnór bróðir hans áttu fundi með Lennart Meri og öðrum ráðamönnum um framvindu mála. Steypuklumpar blokkeruðu aðgang skriðdreka ef árás yrði gerð í borginni. Það var ákveðinn léttir að komast úr þessu spennuþrungna andrúmslofti en að sama skapi þægilegt að vita að Ísland hygðist, fyrst ríkja heims, viðurkenna sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna. Furðuleg uppákoma Allir íslensku fréttamennirnir, Pétur Gunnarsson, Hallur Hallsson, Ellert B. Schram, Þorfinnur Guðnason, Jón Ólafs- son og ég, hafa sína sögu að segja af þess- ari lífsreynslu. Stundum vorum við í hóp, stundum einir á götum úti að skrásetja þessa magnþrungnu tíma í heimssögunni. Sumir í orðum, aðrir í myndum. Á leiðinni heim til Íslands varð furðuleg uppákoma. Þegar við komum á völlinn var flugvélin okkar farin fyrir þó nokkru, því allt flug var við miðað við Moskvu- tíma og við því allt of seinir. Kaupa varð nýja farseðla út úr landinu, þeir gömlu voru úreltir og ekki teknir gildir. Gráhærð kona með heysátuhárgreiðslu taldi pen- inga svipbrigðalaus og rak svo viðkom- andi farþega í næstu lúgu. Þar var sama konan aftur, hafði bara fært sig til bak við vegginn, heimtaði aftur vegabréfið og taldi peningana fyrir farseðlinum þrisvar sinnum. „Nei, hæ, þú aftur!“ Henni stökk ekki bros þótt reynt væri að gantast við hana yfir fáránleikanum. Svona var bara kerfið, kerfi sem hafði verið byggt upp í mörg ár í gömlu Sovétríkjunum. Þegar ég rifja þetta upp velti ég fyrir mér hvort Ísland sé í dag að þróast meira og meira yfir í forsjárhyggju fyrir almenn- ing með tilheyrandi eftirliti hæfi- leikalausra manna með mikla titla og búa til kerfi sem mun springa á endanum eins og öll heimskuleg kerfi. Hvað það mun skemma mikið áður veit enginn. Getum við virkilega ekki lært af sögunni, og get- ur fólkið aldrei fengið frið fyrir öllum þessum kjánum, við þurfum þá ekki hér? Sami staður morguninn eftir, loftið er ennþá reykmettað og áhyggjur skína úr andlitum. Fullorðin kona við leiði náins ættingja í Vilníus.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.