SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Blaðsíða 37

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Blaðsíða 37
27. mars 2011 37 Haraldur Sigurðsson „annar“ segir þá sem sigrast á krabbameini öðlast rétt á mottu á ársgrundvelli. – Hefurðu safnað lengi? „Ætli það sé ekki frá því í mottumars í fyrra – með því að klippa það svolítið.“ – Er þetta orðinn lífsstíll? „Það má segja að það sé hætta á því, vegna þess að hýj- ungurinn sem maður byrjar að fá er oftast óttalega ræf- ilslegur í fyrstu, en þegar lengra lætur getur komið á menn dálítið karlmannlegri mynd – annars lags myndugleiki.“ – Færðu viðbrögð? „Já, já, alls konar viðbrögð. Þau eru allavega, allan skal- ann frá a til ö. Allt frá því að ég sé nú kominn með veiðihár og sé orðinn hárprúðari, hvort ég ætli ekki að safna ljóns- makka líka, og svo eru hinar raddirnar, sem segja að þetta sé fullmikið í átt að staðalmynd karlmennskunnar, sem er ekkert sérstaklega í tísku í dag – reyndar frekar óvinsæl.“ – En þú lætur það ekkert á þig fá? „Nei, þetta er fyrir góðu málefni. Mér hefur stundum orð- ið svarafátt, því þetta er nú töluverð breyting á ásjónu manns. En ég hef með sjálfum mér búið til þá reglu, svo ég geti svarað þeim sem spyrja, að ég sé á þeirri skoðun að þeir karlar sem hafa fengið krabbamein, lifað það af og sigrað ættu í þessu átaki að öðlast sjálfkrafa rétt til að bera skeggið á ársgrundvelli. En nú veit ég ekkert hvort þetta er í reglunum í þessu átaki.“ Staðalmynd sem er ekki í tísku Guðmundur Ingi Rúnarsson segir marga kærulausa en að átakið ætti að vekja þá. – Ertu búinn að safna lengi? „Síðan 1. mars.“ – Hvernig viðbrögð færðu? „Yfirleitt mjög góð. Nærstöddum fannst svolítið erfitt að venjast þessu fyrst um sinn, en hafa skilning á átak- inu. Ég held að þeim hinum sömu finnist spennandi þegar það verður farið. En flestir taka bara vel í þetta. Ég fór á veitingastað um daginn og þar bauð vertinn mér upp á kaffið eftir matinn – af því að ég var með mottu. Hann sagðist ekki geta safnað sjálfur, en sagði þetta vera sína leið til að styrkja átakið.“ – Ætlarðu kannski að halda henni? „Nei, ég var búinn að semja um að hún færi, en ég ætla að halda út mánuðinn. Ég hugsa að mitt aprílgabb verði að láta hana hverfa.“ – Heldurðu að átakið veki menn til umhugsunar? „Já, ég hugsa það. Þetta vakti mikla athygli í fyrra og mér sýnist það ekkert minna í ár. Ég held að margur sé kærulaus og spái ekki mikið í hlutina, en þetta ætti að vekja menn.“ Þurfti ekki að greiða kaffið A f og til má heyra í útvarpinu auglýsingar þar sem ökumenn á Austurlandi eru hvattir til að aka gætilega og vera vel á verði vegna hrein- dýra sem við viss skilyrði halda sig við vegina. Þúsundir dýra verða árlega ýmiskonar mengun að bráð. Augljósustu dæmin eru olíumengun við strendur, þar sem olíuskip hafa farist. Þá stafar dýrum veruleg hætta af margs konar efnum sem notuð eru í iðnaði og landbúnaði. Þá fljúga þúsundir fugla á rúður og símalínur. Við strend- ur Íslands fara þúsundir fugla í net, engin veit hvað þetta er mikið magn af fugli, en full þörf væri á að kanna það. Í nokkrum ríkjum í Bandaríkjunum verða fleiri hirtir fyrir bifreiðum en eru skotnir af veiðimönnum. Með hlýnandi veðurfari hefur ýmsum tegundum dýra fjölgað mjög mik- ið. Í Norður-Evrópu hefur villisvínum og hjörtum fjölgað gríðarlega. Í Noregi er búist við að á næsta ári veiði menn fleiri krónhirti en elgi og í Svíþjóð eru líkur á að veiði- menn veiði fleiri villisvín en elgi. Í Þýskalandi, Lúx- emborg, Tékklandi og víða í Frakklandi er farið að tala um villisvínin sem plágu. Í þessum löndum verður fjöldi um- ferðarslysa þar sem ökumenn aka á villisvín. Margir, ökumenn og farþegar látast í þessum slysum. Víða í Evr- ópu og í Bandaríkjum hafa samtök veiðimanna og ýmissa útivistarsamtaka miklar áhyggjur af þessum málum. Fjöldi dýra drepst, en það sem verra er mörg dýranna slasast og sleppa aftur út í náttúruna og eru marga daga að veslast upp þar til þau drepast. Á sínum tíma var því haldið fram í Noregi að svipaður fjöldi rjúpna dræpist við að fljúga á rafmagnslínur og girðingar, og eru skotnar. Síðara tíma rannsóknir sýna þó að þetta fær vart staðist, en talsverður fjöldi rjúpna drepst þó á þennan hátt. Norsku rafmagnsveiturnar hafa gripið til ýmissa aðgerða í þessu sambandi. Rafmagnslínur hafa verið færðar úr flug- leiðum fugla, þá hafa línurnar verið merktar eða settar á þær svo kallaðar fuglahræður. Talsvert er um það hér á landi að fuglar fljúgi á raflínur. Fugladauða í raflínukerf- inu má skipta í tvennt. Í fyrsta lagi fugla sem fljúga á raf- línu og í öðru lagi fugla sem fljúga á þá hluta sem spenna er á og þá verður skammhlaup til jarðar. Þeir fuglar sem helst fljúga á raflínur eru álftir og gæsir, einnig rjúpur en þó í talsvert minna mæli. Aðrar tegundir koma þó líka við sögu. Í æðarvörpum, þar sem flug æðarfugls á rafvíra hef- ur verið til vandræða er reynt að merkja rafvíra með svo kölluðum fuglahræðum. Þeir fuglar sem einkum lenda á spennum eru hrafnar, aðrar tegundir einnig, til dæmis skógarþrestir. Ekki er vitað hvað margir fuglar fljúga á raflínur hér á landi. Aðeins er hægt að mæla þau slys sem verða ef rafmagnið fer af eða einhver sýnileg truflun verður á flutningi rafmagnsins. Minni fuglar eins og rjúpur valda engu tjóni á línunni með því að fljúga á hana. Líklegast eru það nokkur þús- und fugla sem drepast vegna þess að þeir fljúga á línur. Full ástæða er til að rannsaka þetta frekar og setja fugla- hræður á þær línur sem greinlega eru í flugleið fugla og sýnilegt er að margir fuglar fljúga á. Margir fuglar drepast á vegum landsins, einkum seinni hluta sumars, þegar ungarnir eru að yfirgefa hreiðrin. Glöggur unnandi ís- lenskra fugla kannaði þetta í nágrenni jarðar sem hann á vestur á fjörðum. Í ljós kom að á 18 km kafla var ekið á 24 fugla. Nánari athugun leiddi í ljós að á sólarhring var að meðaltali ekið á þrjá fugla. Vissulega er það misjafnt eftir legu vega hvað ekið er á marga fugla. Sjálfsagt ætti að vera að Vegagerðin léti rannsaka fugladauða á vegum landsins og þar sem mikil brögð eru að því að ekið er á fugla ætti að girða vegina eða setja undir þá ræsisrör sem fuglarnir færu í gegnum, þetta er víða gert erlendis, til dæmis í Frakklandi og Þýskalandi. Teistu hefur fækkað mjög á síðustu árum, helsti orsakavaldurinn er minkurinn en talsvert af teistu fer í net grásleppuveiðimanna. Full þörf er á að gera sérstakt átak í að fræða sjómenn um fugla- dauða í net og fá þá til að merkja netin eða auðkenna svo að fuglinn fari síður í þau. Árlega er ekið á um 15 hreindýr fyrir austan, það er því full ástæða til að hvetja veiðimenn á Austurlandi til að aka varlega. Slys í náttúrunni Fuglar Sigmar B. Hauksson – Hvað hefurðu safnað lengi? „Ég tók forskot í febrúar, þá lét ég mottuna bara vaxa frjálst, var ekki með neina mótun. Svo rakaði ég mig 1. mars, en skildi eftir smámottu og hökuhýjung til þess að fá eitthvert lag á þetta. Síðan hefur maður reynt að hugsa vel um mottuna og raka og snyrta eftir þörfum.“ – Færðu viðbrögð? „Ég hef nú fengið ágætis viðbrögð hjá fólki yfirhöfuð. Það er þetta klassíska með konuna, ekki mikil ánægja, en eins og ég hef oft sagt við hana, þá er eitthvað karl- mannlegt við þetta. Ekki það að ég komist upp með að þetta vera með mottuna áfram. Ætli ég taki hana ekki af mér um mánaðamótin. En þetta er gott málefni.“ – Hvaða áhrif hefur þetta á móralinn? „Mjög góð áhrif. Mér finnst eins við séum komnir dálítið aftur í tímann, því margir á stöðinni eru með mottu, og ég myndi segja að það bætti móralinn og skapaði skemmti- lega stemningu.“ – Heldurðu að átakið veki menn til umhugsunar? „Já, ég held það svei mér þá. Flestir eða allir tengja þetta við mottumarsinn og búið er að kynna þetta í fjöl- miðlum, þannig að kastljósið hefur beinst að krabbameini hjá körlum. Síðan á ég og aðrir lögreglumenn sem taka þátt í þessu bæði ættingja og vini sem hafa greinst með krabbamein, og svo hafa lögreglumenn bæði sigrast á og lotið í lægra haldi fyrir því, þannig að við erum meðvitaðir um það.“ Þetta klassíska með konuna Þorgeir Elíesersson segir stemmninguna vera eins og aft- urhvarf til fortíðar. – Hvað hefurðu safnað lengi? „Frá 1. mars.“ – Ertu fagmaður í að safna skeggi? „Nei, nei, þetta er í fyrsta skipti sem ég safna því. Ég er algjör áhugamaður. Ég prófaði það reyndar í fyrra, en það var öðruvísi.“ – Færðu viðbrögð? „Margvísleg,“ segir hann og hlær. „Það er greinilegt að ég vek athygli. En oftast er það nú bara jákvætt.“ – Oftast? „Nema hjá konunni minni, hún bíður eftir að þessu ljúki.“ – Á hverju merkirðu það að þú vekir athygli? „Það er horft mikið inn í lögreglubílinn og það liggur við að það hafi truflandi áhrif á umferðina.“ – Hefur þetta jákvæð áhrif á móralinn? „Já, bara jákvæð áhrif. Það kemur keppnisskap í menn.“ – En það eru ekki allir … „Með svona þykka? Nei, það eru víst ekki allir sem hafa þennan eiginleika eða hæfileika – eða hvað sem maður á að kalla það.“ – Heldurðu að átakið veki menn til umhugsunar? „Já, alveg örugglega.“ Horft inn í lögreglubílinn Sveinbjörn Hilmarsson er með sérstakan „eiginleika eða hæfileika“ að safna skeggi.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.