SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Blaðsíða 18

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Blaðsíða 18
18 27. mars 2011 S aga Eystrasaltsríkjanna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litháens, á tuttugustu öldinni er saga um frelsisbaráttu. Þau lýstu öll yfir sjálfstæði sínu árið 1918 og fengu það formlega viðurkennt skömmu síðar. Sjálfstæðið dugði þó ekki nema í tvo ára- tugi í þeirri lotu. Árið 1940 innlimuðu Sovétríkin löndin þrjú með hervaldi í samræmi við Molo- tov-Ribbentrop-samninginn sem Sov- étmenn og Þjóðverjar gerðu sín í millum við upphaf seinna stríðs. Forsendur þess samnings brustu sem kunnugt er fljótt og ári síðar voru Eystrasaltslöndin farin að lúta stjórn Þjóðverja eftir innrás þeirra í Sovétríkin. Þegar Þjóðverjar hörfuðu loks árið 1944 tóku Sovétmenn aftur við stjórnartaumunum í löndunum. Sovétmenn mættu mestri mótspyrnu í Litháen og ekki tókst að bæla vopnaða andstöðu skæruliða niður fyrr en 1953. „Stalín þraut þolinmæði og sendi her- flokka í skógana til að eyða skæruliðum. Líkin voru svo sett á torgin í þorpunum og látin rotna þar til að minna íbúana rækilega á, hver hefði völdin,“ segir Arn- ór Hannibalsson, prófessor emeritus, sem gjörþekkir sögu þessa svæðis. Það breytir ekki því að undir niðri kraumaði áfram löngun til sjálfstæðis – í löndunum öllum. Snemma á níunda áratugnum fékk sú barátta byr undir báða vængi. „Þá var orðið ljóst að Sovétvaldið gat ekki lengur endurnýjað sig,“ segir Arnór. „Þegar ég var í Moskvu árið 1982 jaðraði við hung- ursneyð og hafði höfuðborgin þó algjöran forgang. Öllu var mokað þangað. Sovéski landbúnaðurinn gat ekki framleitt nægi- lega mikið af mat lengur og undir lok áratugarins þurfti Evrópusambandið að vera með neyðarhjálp í sjálfu risa- veldinu.“ Vildi endurlífga Sovétríkin Ört var skipt um leiðtoga í Sovétríkj- unum á öndverðum níunda áratugnum, Bresnjev, Andropov og Tsjernenkó söfn- uðust allir til feðra sinna og árið 1985 settist ungur maður í hásæti Stalíns, Mikhaíl Sergejevítsj Gorbatsjev. Hlutverk hans var að endurlífga Sovétríkin. Það hugðist hann gera með „glasnost“ (opnun) og „perestroika“ (endur- skipulagningu). Gorbatsjev áleit að nóg væri að bjóða þjóðunum innan Sovétríkj- anna betri kjör. Það var misskilningur. „Gorbatsjev slakaði meðal annars á rit- skoðun en án hennar gat kerfið ekki virkað. Hið frjálsa orð varð banabiti Sov- étríkjanna, alræðið þolir ekki hið frjálsa orð,“ segir Arnór. „Undir niðri kraumaði líka þjóðernishyggja. Stjórnvöld í Kreml stefndu að því leynt og ljóst að eyða öll- um öðrum tungumálum en rússnesku og því undi fólkið illa, ekki síst í Eystrasalts- löndunum. Að vísu var ástandið orðið mjög slæmt í Lettlandi, dauft var yfir öllu menningarstarfi, lettneskan alveg að deyja út og Riga að verða rússnesk borg.“ Hann segir trúmál einnig hafa spilað stóra rullu. „Í Sovétríkjunum var sá sem tók þátt í safnaðarstarfi eða lét yfir höfuð sjá sig í kirkju umsvifalaust hrakinn úr vinnu. Þetta ástand áttu trúaðir erfitt með að sætta sig við.“ Vilji þjóðanna þriggja var einn – að endurheimta sjálfstæðið og lýðræðið. Litháar voru í fylkingarbrjósti, stofnuðu þjóðarhreyfingu til stuðnings „perest- roiku“, Sajudis, og kommúnistaflokkur landsins lýsti yfir sjálfstæði sínu við litla hrifningu ráðamanna í Kreml. 11. mars 1990 kom svo nýtt þjóðþing saman í Vil- níus og lýsti yfir sjálfstæði Litháens. Gor- batsjev brást illa við þeim gjörningi en engu tauti varð við Litháa komið. Vildi ekki trufla Gorbatsjev Leiðtogar Litháa leituðu logandi ljósi að ríki til að styðja sjálfstæðisbaráttu sína og horfðu einkum og sérílagi til Bandaríkj- anna. Héldu að stuðningur þeirra yrði auðsóttur enda viðurkenndu þau ekki innlimunina 1940. Annað kom á daginn. „Þáverandi forseti, Bush eldri, þvertók fyrir nokkurn stuðning. Vildi ekki trufla vin sinn Gorbatsjev í lýðræðisumbót- unum og mæltist til þess að menn hættu öllu sjálfstæðisbrölti,“ segir Arnór. „Þá snéru Litháar sér að Svíum en mættu litlum skilningi. Það er svo sem ekkert skrýtið, Svíar viðurkenndu innlimun Eystrasaltsríkja í Sovétríkin.“ Enda þótt Gorbatsjev hafi ætlað sér að halda Sovétríkjunum saman með góðu greip hann til örþrifaráða þegar ólgan magnaðist og sendi skriðdrekasveit inn í Vilníus. Stormaði hún að sjónvarpsturn- inum í borginni og náði honum á sitt vald. „Það skilur enginn hvers vegna þeir tóku bara sjónvarpsturninn, venjulega taka menn stjórnarráðið, járnbraut- arstöðina, pósthúsið og flugvöllinn líka,“ segir Arnór. „Þegar skriðdrekasveitin renndi að Sjónvarpsturninum var kallað í gjall- arhorn að Þjóðbjargarnefndin hefði tekið völdin í landinu en enginn vissi hvað þessi „Þjóðbjarganefnd“ var. Til að láta kné fylgja kviði keyrði skriðdreki inn í mannfjöldann og drap fjórtán manns. Síðan var byrjað að sjónvarpa á litháísku og rússnesku.“ Heima á Íslandi fylgdist Arnór Hanni- balsson grannt með framvindu mála, meðal annars í gegnum gamlan vin sinn og skólabróður frá Moskvu, Genzelis að Litháar fylgdust spenntir með sjónvarpsávarpi Jóns Baldvins Hannibalssonar í beinni útsendingu. Lettneskir herlögreglumenn standa vaktina við innanríkisráðuneyti Lettlands. Skömmu síðar var skotið á þá.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.