SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Page 8

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Page 8
8 27. mars 2011 David Luiz er ekki eini Brasilíumaðurinn sem gert hefur sig gildandi í liði Englandsmeistara Chelsea á liðnum vikum. Miðvellingurinn Ramires, sem einnig kom frá Benfica, í ágúst á síðasta ári, hefur leikið betur og betur með hverjum leiknum. Fæstum leist raunar á kappann, sem ber sama eft- irnafn og sjálfur Pelé, do Nascimento, þegar hann skaut fyrst upp kollinum í úrvalsdeildinni. Þótti hann heldur holdgrannur og ólíklegur til afreka. Heilu leik- ina snerist aumingja Ramires mest í kringum sjálfan sig. Í stað þess að skella honum flötum á bekkinn brá Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Chelsea, hins vegar á það ráð að láta drenginn spila áfram og freista þess að láta hann vinna sig út úr vandræð- unum. Ítalinn hlýtur að hafa séð eitthvað í kapp- anum, alltént borgaði hann 22 milljónir punda fyrir hann. Ramires hefur smám saman verið að launa Ancelotti traustið og markið sem hann gerði um liðna helgi gegn Manchester City, eftir að hafa snúið illilega á einn besta varnarmann deildarinnar, Vin- cent Kompany, staðfesti úr hverju hann er gerður. Ramires að rísa úr öskustónni Ramires, 24 ára, er allur að koma til í liði Chelsea. Hann hefur leikið 20 landsleiki fyrir Brasilíu. Reuters E ftir skrykkjótt gengi í vetur vonuðust stuðningsmenn enska úrvalsdeildarliðs- ins Chelsea innilega eftir því að nýi leik- maðurinn, sem bættist í hópinn í end- aðan janúar, myndi berja í brestina og beina liðinu aftur á sigurbraut. Þeim hefur orðið að ósk sinni. Það eina sem enginn sá fyrir er að maðurinn heitir ekki Fernando Torres, heldur David Luiz. Langt er síðan leikmaður hefur byrjað með slík- um hamagangi og látum í ensku úrvalsdeildinni. David Luiz hefur gengið inn í rútínerað lið Chelsea og lyft því á hærra plan – svo að segja einn og óstuddur. Alltént er téður Torres ekki ennþá sest- ur undir árar – sólar sig bara á ströndinni. Hans tími mun þó eflaust koma. Ég er mættur, látið mig hafa boltann! Í liði þeirra blástakka er hver ráðríki hundurinn upp af öðrum, Terry, Lampard, Drogba, Essien. Nefnið þá bara! Ætla mætti að nýliðar þyrftu tíma til að laga sig að liðinu áður en þeir láta til sín taka. Gleymst hefur að segja David Luiz það. Strax í fyrsta leik, þegar hann kom inn á í tapi gegn Liv- erpool, sýndi þessi 23 ára gamli Brasilíumaður að hann er ekki kominn til Englands til að horfa á og mæna upp í mikilmennin. Hann dregur vagninn. „Ég er mættur, látið mig hafa boltann!“ er húð- flúrað á ennið á honum. Þannig lagað. Strax í fyrsta leiknum sem hann lék frá byrjun, gegn Fulham á útivelli, var David Luiz valinn maður leiksins. Varðist af fimi (gleymum þessu helv. víti sem hann gaf) og brá sér borubrattur í sóknina svo fát kom á andstæðinginn. Í næsta deildarleik þar á eftir, gegn sjálfum for- ystusauðnum, Manchester United, gekk David Luiz enn lengra – jafnaði leikinn með viðstöðu- lausu skoti úr teignum. Hallaði sér sallarólegur yfir knöttinn og þrumaði honum í netið. Hvaða miðherji sem er hefði orðið stoltur af þeirri afgreiðslu. Leikurinn vannst. David Luiz gerði sveitungum þeirra Fergusona, Manchester City, viðlíka skráveifu um liðna helgi. Nú með smekklegri kollspyrnu. Aftur var kappinn maður leiksins. Eftir þessa þýðingarmiklu sigra eygir Chelsea ennþá veika von um að halda meist- aratign sinni. Þeir bláu eru nú níu stigum á eftir Manchester United en eiga leik til góða, auk þess sem sveitirnar eiga eftir að kljást innbyrðis. David Luiz mun á hinn bóginn koma að litlu gagni í glímu sömu félaga í Meistaradeild Evrópu enda ógjaldgengur í því móti eftir að hafa leikið þar með Benfica í riðlakeppninni. Meistari með Benfica í fyrra Ýmsir hafa velt fyrir sér hvers vegna svona mark- nefjaður maður með aðra eins knatttækni leiki ekki framar á vellinum. Sú tilraun hefur raunar verið gerð, hjá æskufélagi hans, Vitória í Brasilíu. Með vondum árangri. Síðan hefur David Luiz haldið sig við miðvörð- inn og vaxið við hverja þraut sem fyrir hann hefur verið lögð. Hápunkturinn á ferlinum var án efa síðasta tímabil, þegar Benfica landaði sínum fyrsta meistaratitli í Portúgal í fimm ár. Og hver var maður mótsins? Þið megið sjálf geta! David Luiz fagnar glæsilegu skallamarki sínu gegn Manchester City. Reuters Bjart er yfir biðu- kollunni á Brúnni David Luiz hefur komið eins og stormsveipur inn í lið Chelsea Vikuspegill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Didier Drogba, Ashley Cole og félagar hjá Chelsea hafa tekið David Luiz með kostum og kynjum. Reuters David Luiz Moreira Marinho fæddist í Diadema í Brasilíu 22. apríl 1987 og verður því 24 ára í næsta mánuði. Hann hóf ferilinn hjá Vitória í heima- landinu en gekk til liðs við Benfica í Portúgal 2007. Chelsea keypti hann fyrir 25 milljónir sterlingspunda í jan- úar síðastliðnum. David Luiz hefur leikið fimm lands- leiki fyrir hönd þjóðar sinnar. Reuters Kostaði 25 m. punda www.noatun.is Fermingarveislur Nánari upplýsingar á noatun.is eða í næstu Nóatúns verslun. 1990 KR./MANN VERÐ FRÁ AÐEINS

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.