SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Qupperneq 10

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Qupperneq 10
10 27. mars 2011 H versu lágt ætla þau að leggjast í skotgröfunum næstu tvær vikurnar, talsmenn þess að Íslendingar sam- þykki Icesave-samninginn í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni hinn 9. apríl næstkomandi? Mér fannst talsmenn þess að við samþykkjum að greiða skuldir annarra og skuldbindum börnin okkar, barnabörnin og kannski líka barnabarnabörnin hljóta að vera komnir á botninn í mál- flutningi sínum í heilsíðuauglýsingum í dagblöðunum í gær, en þó ætla ég ekkert að fullyrða um það, því talsmennirnir, undir öf- ugmælinu „Áfram Ís- land!“, hafa ennþá tvær vikur til þess að toppa sjálfa sig í lágkúrunni og undirlægjuhættinum. Það þarf ekki einu sinni gallharðan and- stæðing þess að sam- þykkja Icesave-ólögin, til þess að gera verulegar athugasemdir við aug- lýsingu þessa nafnlausa hóps sem kennir sig við „Áfram Ísland!“. Í fyrsta lagi birtir hóp- urinn tvær súlur, þar sem í þeirri hærri, sem stendur fyrir já, kemur fram að 62% ætli að segja já og í hinni að 38% ætli að segja nei. Undir súl- unum tveimur er svo textinn: „Samkvæmt könnun Capacent ætla 62% þeirra sem þekkja innihald Icesave- samningsins vel að samþykkja hann.“ Það var og! Hver leggur mat á það hverjir þekkja samninginn vel? Hver gefur einkunnina þessi kann en þessi kann ekki? Hve- nær var þessi könnun Capacent gerð? Hversu stórt var úrtakið? Hversu margir aðspurðra svöruðu? Hvernig var spurt? Það er með ólíkindum að fyrirtæki eins og Capacent skuli láta bendla sig við slíka auglýsingu, jafn villandi, ómálefnaleg og leið- andi og hún er. En sennilega þarf það ekki að koma á óvart, því í hópi auglýsenda eru fulltrúar sem töluðu ákaft fyrir því í fyrra að Icesave-samningurinn sem hafnað var í þjóðaratkvæðagreiðslu yrði samþykktur. Hvar stæðum við í dag ef farið hefði verið að vilja slíkra já-manna? „Margir telja okkur ekki skylt að greiða Icesave-skuldina en við teljum það betri kost að samþykkja samninginn og ljúka málinu með sátt,“ er önnur setning í auglýsingunni makalausu sem er ekki síður gagnrýni verð. Það liggur fyrir að okkur er ekki skylt að greiða fyrir Icesave. Það liggur líka fyrir að þetta er ekki „Icesave- skuld“ okkar Íslendinga. Við tókum aldrei ákvörðun um að stofna Icesave. Við söfnuðum ekki innlánum frá auðtrúa og gráðugum Bretum og Hollendingum, sem fengu blikkandi dollaramerki í augun þegar Landsbankinn markaðssetti Icesave og lofaði mun betri ávöxtun en almennt gekk og gerðist í Bretlandi og Hollandi. Enn ein lygin og mótsögnin í auglýsingunni er: „Samþykkt samningsins styrkir lánshæfismat Íslands, erlent lánsfé fæst til uppbyggingar, hagvöxtur eykst og atvinnuleysi minnkar.“ Hvernig eru hinir nafnlausu auglýsendur þess umkomnir að full- yrða allt sem fullyrt er í ofangreindri setningu? Er það ekki hróp- leg þversögn að staðhæfa að lánshæfismat Íslands styrkist við það að auka skuldir ríkissjóðs? „Dómstólaleiðin er leið óvissu og áhættu,“ leyfa auglýsendur sér líka að fullyrða. Hvað með áhættuna af því að ákveða að borga tugi milljarða króna, sem hæglega gætu breyst í hundruð millj- arða króna með óhagstæðri gengisþróun? Hvers vegna ekki að fara dómstólaleiðina og hvað með það þótt sú vegferð stæði í ein- hver ár? Eru ekki auglýsendur, eins og skilanefnd Landsbankans, svo ofurbjartsýnir á góðar endurheimtur eignasafns Landsbank- ans sem ætti að standa undir uppgreiðslum á Icesave? Hvað liggur þá á? Reynist bjartsýnishjalið um góðar end- urheimtur eignasafnsins eiga við rök að styðjast, er þá ekki alveg ljóst að það þarf ekki að fara neina dómstólaleið? Við eigum vitanlega að segja NEI! Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is ’ Það er með ólík- indum að fyrirtæki eins og Capacent skuli láta bendla sig við slíka auglýsingu, jafn villandi, ómálefnaleg og leiðandi og hún er 07:18 Vekjarinn hringir og eftir stutt kúr kíki ég til veðurs um leið og fjallatindarnir eru burstaðir. Gulleitur himinn, stillt og fallegt, sennilega nokk- uð kalt. Strákurinn minn er klæddur og kominn á ról, glað- beittur í morgunsárið enda veisla framundan í skólanum, bæði íþróttir og aukaíþrótta- námskeið. Dóttirin steinsefur og nýtur aukalúrs með pabbanum. Við mæðginin tökum spjall yfir morgunverðarborðinu og hann tjáir mér að þegar hann verði unglingur verði hann að byrja að borða hamborgara og kleinu- hringi í skólanum, það sé al- gjörlega málið þegar maður er unglingur. Vænt glas af rauð- rófu- og sítrónusafa rennur ljúflega niður. Berin búin, eng- inn smoothie í dag. Við röltum í skólann, notalegur túr. Magnað verkefni sem maður kemur sér í sem foreldri. 10:00 Kem við hjá systur minni, stutt stopp og ljúf stund eins og alltaf, áður en ég held á fund á Jómfrúnni. Eigum gott spjall við Jakob Jakobsson, ann- an eigenda, sem í kjölfarið á sjónvarpsfrétt um fjárhagsvanda og dökkar framtíðarhorfur þátttöku Íslendinga á Fen- eyjatvíæringnum ákvað að leggja fé til verkefnisins. Vanda- málið sem íslenski skálinn stendur frammi fyrir verður umtalsefni okkar, og Jakob talar um hve mikilvægt það sé á slík- um tímum að halda þeirri reisn sem við höfum áunnið okkur og hvernig jafnvel litlu fyrirtækin í miðborginni ættu að leggja hönd á plóg við slík verkefni og rækta þannig Reykjavík sem að- laðandi menningarborg, jafnvel þótt beinn ágóði renni ekki í sama vasa og úr var gefið. 11:00 Geng inn á miðjan fyrirlestur Sigga Eggerts í Tjarn- arbíói. Stórstjörnufyrirlestraröð á HönnunarMars og troðfullt út úr dyrum. Annað sjálf Sigga, ró- bótarödd, sér um talið en Siggi stýrir myndefninu þögull við púltið. Það er einhver fallegur neisti í þessum dreng. Arkitekt- inn og súperstjarnan Winy Maas talar um paradís og hvernig hann vill útrýma „re-“ úr orða- forða okkar og hugsuðurinn Jerszy Seymor veltir fyrir sér hvort innviðir eldfjalls og stjörnukerfis séu áþekkir, og hvort ferð í geiminn sé sam- bærileg við innlit í sálina. Mæjó- nes reiðir fram dýrindis hádeg- isverðarbita, ekki að henni Áslaugu að spyrja. Hún er alveg með þetta. 15:30 Tek snúning á tölvu- pósti og nokkrum vinnumálum og skottúr í Norræna húsið til að undirbúa DesignMatch komandi dags, stefnumót norrænna kaupenda og íslenskra hönnuða. Á vef Normann Copenhagen sem koma til Íslands í þessum tilgangi mátti í dag lesa að þeir færu nú ekki til London, Parísar eða New York til að finna nýja spennandi hönnuði, heldur Reykjavíkur. 18:00 Eftir alltof stutta við- komu í Spark Design Space, þar sem Linda Björg Árnadóttir – Scintilla ltd. sýnir undursamleg verk sín, er komið að setningu HönnunarMars í Hafnarhúsinu. Hvílíkur fólksfjöldi, hvílík eft- irvænting og orka sem liggur í loftinu. Menningar- og menntamálaráðherra talar um áhrif HönnunarMars á hvernig við hugsum og horfum til fram- tíðar og gæfusporið sem það var að stofna launasjóð hönnuða. Hún óskar landsmönnum þess að okkur lánist sú gæfa að búa frjósaman jarðveg fyrir skap- andi hugsun í þjóðfélaginu. Mér verður hugsað til morgun- spjallsins við Jakob og fyllist bjartsýni á að smátt og smátt muni takast að efla menning- arvitund þjóðarinnar, myndlæsi og þetta mjúka, að við hættum að hugsa í svarthvítu, og förum að hugsa í blæbrigðum og til- finningum og vinna með ónýtt tækifæri. 20:00 Lítið hefur farið fyrir matarstundum þennan daginn en eftir hræðilegan salatdisk með gerviparmesan úr poka á ónefndum stað í bænum röltum við yfir í Tjarnarbíó á bíósýn- ingu Munda og þaðan í mikið stemningssamkvæmi Kron Kron þar sem Magni og Hugrún kynna enn fleiri af hugar- fóstrum sínum, ævintýralega litaparadís, skó og kjóla, sann- kallað konfekt í fataskápinn. Þetta eru erfðagripir, ekki spurning. 23:00 Heimferð í Hafn- arfjörðinn eftir góðan dag, spennandi helgi framundan og annasamar vikur í kjölfarið og fram að opnun Feneyjatvíær- ingsins í byrjun júní. Svartaþoka og rigning, spurning hvort þetta sé skúrinn sem markar skilin milli veturs og vors nú á tímum tveggja vorboða. Dagur í lífi Eddu Kristínar Sigurjónsdóttur, hönnuðar og verkefna- stjóra íslenska skálans á Feneyjatvíæringnum Edda Kristín Sigurjónsdóttir segir ferð í geiminn eins og innlit í sálina. Morgunblaðið/Ómar Mjúkar hugsanir

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.