SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Qupperneq 13

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Qupperneq 13
27. mars 2011 13 U mslag nefnist fyrirtæki sem stendur undir nafni, því það sér um gluggapóst og mark- póst fyrir fyrirtæki og stofn- anir. En þó að fyrirtækið sé í papp- írsbransanum, þá hefur tæknin einnig teygt arma sína þangað. Það sérhæfir sig í gagnavinnslu, að halda utan um gögn fyrirtækja og stofnana og koma þeim á prenthæft form, pakka þeim og póst- leggja þau. „Við erum því ekki dæmigerð prent- smiðja, heldur fyrst og fremst gagna- vinnslufyrirtæki,“ segir Sölvi Svein- björnsson framkvæmdastjóri. „Þetta geta verið fjármálafyrirtæki, ríki og borg, tryggingafélög, í raun allt frá litlum fyrirtækjum og upp í stórfyrirtæki – þeir sem þurfa að koma frá sér efni á einhvern hátt, hvort sem um ræðir reikninga, yfirlit eða markpóst.“ Lúgan og heimabankinn Sölvi segir að þróunin hafi verið í þá átt að reikningar og fleira í þeim dúr sé sent með rafrænum hætti, en hann fullyrðir að kostnaður fyrirtækja við það sé ekk- ert minni. „Það kostar svipað að birta kröfu og rafræna reikninga í heimabanka og að senda út póst. En á móti kemur að ef samskiptin eru rafræn þá tapast öll tenging við viðskiptavininn. Hann er ekki lengur með neitt í höndunum um fyrirtæki þitt. Og markaðslega séð er rafræna leiðin mun síðri. En við gerum okkur auðvitað grein fyrir því að sumt hverfur alveg og annað verður áfram við lýði. Markpóstur er mjög öflugur og í raun er ekki komin fram nein lausn sem tekur því fram. Áreitið er í raun orðið mun meira í síma og tölvupóstsend- ingum.“ Pappír umhverfisvænn Sölvi segir að þess misskilnings gæti víða að fólk haldi að það sé umhverfisvænna að nota ekki pappír. „Menn halda jafn- vel að með því að nota pappír sé það að eyða Amazon-regnskógunum. En það er algjör vitleysa. Notkun á pappír stuðlar að trjárækt og það hefur til dæmis aldrei fyrr verið jafnmikil trjárækt í Skandin- avíu. Allur pappír sem prentað er á er tekinn úr nytjaskógum og nytjaskógar eru mun öflugri en margir eldri skógar, því tréin vinna mest gagn gegn gróður- húsaáhrifum fyrstu eitt til fjögur árin. Eftir það hægir á því. Þess vegna er um- hverfisvænt að höggva niður gömul tré og rækta ný.“ Hann bendir líka á að pappír sé auð- veldur í endurvinnslu, en allt í kringum tölvur mun erfiðara. „Þess vegna er í raun grátbroslegt þegar fólk segist vera umhverfisvænt með því að hætta að prenta á pappír – það er af og frá.“ Og Umslag stefnir á að ljúka umhverf- isvottun Svansins í vor, sem þýðir að það vinnur eftir ákveðinni umhverf- isstefnu, til dæmis að takmarka allan úr- gang og að allt efni sé svansvottað. „En við erum löngu farnir að vinna eftir þessu, enda fengum við umhverfisvið- urkenningu frá Reykjavíkurborg árið 2003.“ Notkun á pappír stuðlar að trjárækt Umslag sérhæfir sig í að koma gögnum á prenthæft form, pakka þeim og póstleggja. Sölvi Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri segir pappírsnotkun valda því að aldrei hafi verið meiri skógrækt í Skandinavíu. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Sölvi Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri Umslags í Litla ljóta galleríinu, þar sem kennir ýmissa grasa. Morgunblaðið/RAX Fyrir miðju er andlitsmynd eftir Jørgen Nash, sem er m.a. kunnur fyrir að saga höfuðið af Litlu hafmeyjunni í Kaupmannahöfn. Faðir Hollendings sem vinnur hjá Umslagi, gaf þessa mynd sem „friðargjöf“, því honum fannst harkan of mikil gegn Íslendingum vegna Icesave. Verk frá starfsmönnum, listamönnum og ættingjum prýða veggina. Litla ljóta myndagalleríið Það hanga 150 listaverk um allt í Umslagi, sem er til húsa í Lág- múla 5. „Við höfum alltaf reynt að skapa heimilislega stemmn- ingu í fyrirtækinu og stuðla að skapandi umhverfi,“ segir Sölvi. „Þetta eru listaverk sem koma víðsvegar að, sum eru eftir fræga listamenn, önnur eftir starfsmenn, börn þeirra eða ætt- ingja. Það má nefna til dæmis að við erum með verk eftir Jørgen Nash, sem sagaði höfuðið af Litlu hafmeyjunni. Við sýnum við- skiptavinum jafnan galleríið og ef þeir hafa áhuga geta þeir skoðað framleiðsluna í leiðinni!“ – Listaverkin hanga uppi úti um allt fyrirtæki? „Það byrjar á kaffistofunni og dreifist um allt fyrirtækið.“ – Jafnvel klósettið? „Á öllum klósettum eru mynd- ir.“ Hér má m.a. sjá verk eftir listamanninn Gabriel frá Hondúras.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.