SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Qupperneq 28
28 27. mars 2011
V
igfús Sigurgeirsson er einn af merkustu ljós-
myndurum Íslands, fæddur aldamótaárið
1900 í Bárðardal en lést 1984. Hann hreifst
ungur af ljósmyndalistinni og í póstkorti til
Páls bróður síns frá 29. apríl 1919 lýsir hann af nokkrum
spenningi því þegar hann sá mann með myndavél sem
hægt var að taka á 12 myndir „án þess að taka mynd-
irnar úr …“ eins og Hörður Geirsson hjá Minjasafninu á
Akureyri rifjar upp í sýningarskrá.
Fljótlega eftir þetta fór Vigfús að vinna sem lærlingur
hjá Hallgrími Einarssyni á Akureyri og lærði hjá honum
næstu þrjú árin. Vigfús rak að námi loknu ljósmynda-
stofu í fjögur ár ásamt Jóni Sigurðssyni en 1927 hóf hann
eigin rekstur ljósmyndastofu á Akureyri þar til hann
flutti hana til Reykjavíkur 1936.
Árin á Akureyri mótuðu Vigfús sem ljósmyndara, seg-
ir Hörður Geirsson. „Á þessum árum hélt hann einka-
og samsýningar í höfuðborgum allra Norðurlandanna, í
Hamborg 1935 og á heimssýningunni í New York 1939.
Hann átti allar myndinar í fyrstu ljósmyndabók Íslend-
inga, útgefinni á Akureyri 1930, auk þess að eiga myndir
í bókinni Das unbekannte Island sem gefin var út 1935 í
Þýskalandi.
Í höndum Vigfúsar náðu myndir úr náttúru Íslands
listrænum hæðum. Það voru slíkar myndir sem sýndar
voru víða um heim,“ segir Hörður í sýningarskránni.
„Vigfús varð sér út um styrki til námsferða erlendis til
að drekka í sig nýja þekkingu bæði á sviði ljósmynda og
kvikmyndagerðalistar og komst í kynni við fólk í
fremstu röð. Um leið öðlaðist Vigfús þekkingu sem fæst-
um öðrum Íslendingum hlotnaðist á þessum tíma.
Vigfús var vinsæll og velþekktur ljósmyndari. Líklega
er hann þekktastur fyrir störf sín sem opinber ljós-
myndari forsetaembættisins til margra ára. Fylgdi hann
forsetanum og tók þátt í að móta ímynd embættisins.“
Hörður segir framlag Vigfúsar til íslenskrar menning-
arsögu mikið. „Hann var einn fremsti ljósmyndari Ís-
lendinga um miðbik 20. aldar og frumkvöðull í íslenskri
kvikmyndagerð.
Ljósmyndir Vigfúsar voru sýndar í Hamborg, New
York, Kaupmannahöfn og Reykjavík. Ljósmyndabók
hans Ísland í myndum var fyrsta ljósmyndabók eftir Ís-
lending og hann varð einnig fyrstur Íslendinga til að gefa
út bók með ljósmyndum í lit.“
Sýningin Þjóðin, landið, lýðveldið var upphaflega sett
upp í Þjóðminjasafninu árið 2008 og vakti mikla athygli.
Einar Falur Ingólfsson, ljósmyndari, blaðamaður og rit-
höfundur, skrifaði þá í Morgunblaðið að sem heimildir
væru sumar mynda Vigfúsar einstakar, „sannkallaður
fjársjóður, en fagurfræðilegar eru þær líka stórmerki-
legar“.
Einar sagði myndirnar af ferðum forsetanna Sveins
Björnssonar og Ásgeirs Ásgeirssonar líka heillandi, „ekki
síst frá fyrstu árum lýðveldisins, þar sem hin vonglaða
þjóð horfir framan í nýja tíma. Borðar eru strengdir yfir
götur, forsetinn fær ábreiðu að gjöf og forsetabíll þarf að
bíða meðan fjárrekstur rennur hjá“.
Sveinn Björnsson forseti í hópi barna á Vatnsleysuströnd sem gengið hafa með blómvönd í veg fyrir forsetabílinn á leið hans til Keflavíkur, árið 1944. Börnin eru frá vinstri: Vilhelmína og
Ingvar Elísbörn, Lóa Gísladóttir, Neistakoti og Guðrún Elísdóttir systir Vilhelmínu og Ingvars á Brunnastöðum, Valberg og Erla Helgabörn frá Austurkoti, Guðný og Þórdís Sigurjónsdætur frá
Traðarkoti. Í baksýn eru Brunnastaðir, Austurkot og Traðarkot á Vatnsleysuströnd með tilheyrandi útihúsum.
Vigfús Sigurgeirsson.
Þjóðin, landið
og lýðveldið
Sýning á ljósmyndum Vigfúsar
Sigurgeirssonar frá árunum
1928 til 1958 verður opnuð á
Minjasafninu á Akureyri í dag.