SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Síða 31
27. mars 2011 31
H
ilda Jana fæddist í Reykjavík
17. ágúst 1976. Foreldrar
hennar eru Lára Stef-
ánsdóttir, skólastjóri
Menntaskólans á Tröllaskaga, og Gísli
Gíslason, svæðisstjóri Samkaupa. Eigin-
maður hennar er Ingvar Már Gíslason,
markaðsstjóri Norðlenska.
Hún flutti frá Reykjavík, ófrísk að elstu
dótturinni, haustið 1996. Útskrifaðist
sem grunnskólakennari 2002 frá Háskólanum á Akureyri og
hefur mest unnið við forvarnir en einnig sem grunnskólakenn-
ari og fjölmiðlamaður, nú á N4.
Hilda Jana er í liði Akureyrar í Útsvari og segist hafa mestan
áhuga á leiknum, en vinahópurinn hafi oft farið í hann.
„Ógleymanlegast er líklega þegar ég lék fyrir foreldra mína orð-
ið „ástríða“ í brúðkaupinu mínu, mér var ekki kunnugt um að
þau vissu orðið og áttu að giska á allt NEMA það. Þar kom
keppnisskap brúðarinnar veislugestum til að orga úr hlátri!“
Jói bróðir mömmu stendur okkur Björgvin
Davíð frænda minn að því að leika okkur að
hveitinu hennar ömmu í Ólafsfirði 1977.
Fjölskyldan saman á ferðalagi á Snæfellsnesi í fyrrasumar; elsta dóttir mín, Hrafnhildur
Lára Hrafnsdóttir, er lengst til vinstri, þá Ísabella Sól, Sigurbjörg Brynja, Ingvar og ég.
Ég ásamt handboltafélögunum í 5. flokki í KR, líklega árið 1989.
Með föðurfjölskyldunni á heimleið eftir ógleymanlegt ferðalag 1992.
Með frábærum vinkonum mínum í Spánarferð 2006. María, Þórunn, Sara, ég og Helena í efri
röð. Guðrún, Eydís, Laufey og Karólína í þeirri neðri. Enn á eftir að bæta Regínu á myndina!
Lék orðið
„ástríða“
Ég og Ingvar Már Gíslason, minn yndislegi
eiginmaður, á brúðkaupsdeginum 2005.
Í Kyoto í Japan í desember sl. ásamt Martin
frá Noregi og Dženetu frá Hollandi.
Að knúsa afa Stefán, líklega 1985.
Með Hrafnhildi Láru, frumburðinum, árið
1998 að kúldrast í garðinum hjá mömmu og
pabba í Brekkugötunni á Akureyri.
Hæstánægð með það þegar Gísli Tryggvi
litli bróðir fæddist árið 1986.
Með pabba og mömmu eftir að ég varð stúdent árið 1998.
Með litlu bræðrum mínum, Gísla Tryggva og
Degi að horfa á Hrafnhildi Láru á skautamóti
eldsnemma á sunnudagsmorgni árið 2008.
Eftirminnileg ferð til Spánar 2006 er tengdó varð sextugur.
Úr myndaalbúminu
Hilda Jana Gísladóttir, sjónvarps-
kona á Akureyri, velur nokkrar
myndir úr fjölskyldualbúminu.
Fyrsta bros Hildu sem
náðist á mynd!