SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Page 36
36 27. mars 2011
N
ei, hver þremillinn!“
Þannig eru fyrstu við-
brögð Stefáns Eiríkssonar,
lögreglustjóra höfuðborg-
arsvæðisins, er hann heyrir erindi
blaðamanns, sem spyr hann út í hóg-
væran hárvöxtinn fyrir ofan efri vör í
tilefni af mottumars.
„Það hlaut að enda þannig,“ bætir
hann við og yppir öxlum – gott ef
glittir ekki í bros undir mottunni.
– Hvað hefurðu safnað lengi?
„Bara síðan 1. mars.“
– Og hvernig viðbrögð færðu?
„Afskaplega lítil,“ svarar Stefán og
hlær dátt. „Út af því að fólk sér ekki
mottuna nema það komi mjög nálægt.
Hún er bæði frekar lítil og aumingjaleg
– og það ber lítið á henni. Ég hef ekki
farið sömu leið og nokkrir aðrir, sem
hafa litað hana, þannig að hún er í
sama músarlitnum og annað.“
– En heima fyrir?
„Ja, konan er bara nokkuð ánægð
með þetta. Áhuginn hefur ekki minnk-
að, eigum við ekki að orða það þann-
ig.“
– Fylgja þessu söfnunarátaki engin
trúverðugleikavandamál?
Enn hlær Stefán. Og er ekki byrjaður
að svara.
„Nei, nei, ég held nú ekki,“ segir
hann svo. „Ég held að trúverðugleiki
manna fari nú ekki eftir því hvernig
þeir líta út, en þetta er nú svolítið
óvenjulegt hjá mörgum.“
– Eru meira og minna allir með
mottu á lögreglustöðinni?
„Það eru ótrúlega margir sem taka
þátt í þessu með einum eða öðrum
hætti, en ég veit ekki hvað veldur.
Kannski það að fyrir rúmu ári misstum
við einn góðan félaga okkar úr krabba-
meini. Það var leið til að takast á við
það, að taka þátt í þessu ágæta átaki.
Og það er sama hugsun á bak við það
núna, bæði sýna menn samstöðu með
félögum sínum sem hafa og eru að
berjast við þennan sjúkdóm, og svo
með þessum góða málstað. Þetta hefur
dekkri hliðar, þótt menn brosi út í
annað líka.“
– Heldurðu að átakið veki menn til
umhugsunar?
„Já, já, það er engin spurning. Þetta
gerir ótalmargt, átakið opnar um-
ræðuna, menn eru óhræddir við að tala
um þessa hluti, óhræddir við að fræða
hver annan, og það er bara af hinu
góða. Því fyrr sem svona mein upp-
götvast, því betra er að takast á við
það. Þetta er frábært framtak hjá
Krabbameinsfélaginu, það er enginn
vafi.“
– Hvað ætlið þið að gera við hóp-
myndina?
„Ég hef ekki hugmynd um það, bara
setja hana á vefinn og dreifa henni. Við
ætlum ekki að fara í Kringluna að árita
hana, ef þú ert að fiska eftir því.“
Halda
sig á
mottunni
Lögregluliðið á höfuðborgarsvæðinu er ábúðarfullur með efrivararskegg.
Friðrik Smári Björgvinsson yfirmaður rannsóknardeildarinnar, Stefán Eiríksson lög-
reglustjóri höfuðborgarsvæðisins og Karl Steinar Valsson yfirmaður fíkniefnadeildarinnar
taka allir virkan þátt í átaki Krabbameinsfélagsins.
Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu er á
meðal efstu liða í átak-
inu mottumars sem
lýkur um helgina, en
safnað er áheitum á
síðu Krabbameins-
félagsins, mottumars-
.is. Heilsað var upp á
skeggprúða lagaverði
undir lok vikunnar.
Texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Myndir: Júlíus Sigurjónsson julius@mbl.is
’
Bæði sýna menn
samstöðu með fé-
lögum sínum sem
hafa og eru að berjast við
þennan sjúkdóm, og svo
með þessum góða málstað.
Þetta hefur dekkri hliðar,
þótt menn brosi út í annað
líka.“