SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Síða 38

SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Síða 38
38 27. mars 2011 Elizabeth Taylor á hátindi ferils síns. Kyntákn kveður K oma 34 víetnamskra flóttamanna hingað til lands haustið 1979 var tímamótamál á Íslandi. Aldrei hafði jafnstór hópur fólks frá fjarlægu landi komið til búsetu hérlendis og urðu skoðanir um málið því skiptar. Með nokkurri einföldun má segja að tvo öndverð meginviðhorf hafi verið uppi í þessu máli. Margir töldu að Íslendingum bæri í samfélagi þjóðanna skylda til að aðstoða flóttafólk og aðra sem í nauðum væru staddir. Aðrir voru hins vegar á þeirri skoðun að goðgá væri að fólk með austrænt yfirbragð fengi hér skjól – og var í því sambandi jafnvel vísað til meintra yfirburða hins norræna kynstofns. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sendi Íslendingum í júní 1979 ósk um að hópur Víetnama fengi hér skjól. Ríkisstjórnin sam- þykkti það og fól Rauða krossi Íslands framkvæmdina. Fóru fulltrúar samtakanna austur á bóginn í ágústlok og völdu í hóp til Íslandsfarar. Var fólkið þá komið til eyjunnar Pulah Tenga í Malasíu en þangað hafði það velkst á ótraustum fleyjum frá heimalandi sínu á flótta frá heima-Flóttamennirnir frá Víetnam og koma þeirra vakti mikla athygli á Íslandi. Morgunblaðið/Emilía Björg Myndasafnið September 1979 Flóttafólkið kemur Frægð og furður Elizabeth Taylor, ein af skærustu stjörnum hvíta tjaldsins, féll frá í vikunni. Hennar er minnst fyrir merka leiksigra og óðagot í ástalífinu en umfram allt guðdómlega fegurð. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is verðlaunahlutverkin í Butterfield 8 (1960) og Who’s Afraid of Virginia Woolf (1966) og í stór- myndinni um Kleópötru (1963). Margir muna líka eftir Taylor í hlutverki Möggu kisulóru í Cat on a Hot Tin Roof (1958). Síðasta myndin sem Taylor lék í var sjónvarpsmyndin These Old Broads árið 2001. Ofvaxin brjóst og stuttir fætur Taylor átti ekki sömu velgengni að fagna í einkalífinu, alltént hélst henni heldur illa á eiginmönnum. Gekk átta sinnum í heilagt hjónaband. Einum manni giftist hún tvisv- ar, velska leikaranum Richard Burton, sem bjó yfir einni ómþýðustu rödd sem almættið hefur galdrað upp á löngum ferli. Ást þeirra var ósvikin en sambandið alla tíð stormasamt. Burton var frægur fyrir tilsvör sín og einhverju sinni, þegar fátt var með þeim hjónum, svaraði hann spurningu blaðamanns um fegurð spúsu sinnar F yrstu fregnir sem bárust mér til eyrna á miðvikudaginn voru á þá leið að Elísabet drottning væri látin. Það var misskiln- ingur. Og þó? Elizabeth Taylor var sann- arlega drottning – hún var drottning kvik- myndanna. Var upp á sitt besta á gullöld hvíta tjaldsins um og upp úr miðri síðustu öld, þegar kvikmyndaleikarar voru ekki af þessum heimi. Þetta fólk safnast nú óðum til feðra sinna, af kyn- slóð Taylors eru Marilyn Monroe og James Dean vitaskuld löngu farin en líka Grace Kelly, Ava Gardner, Marlon Brando og Paul Newman. Að ekki sé talað um gæðaleikarann Montgomery Clift, sem sagan hefur kosið að stinga undir stól. Elizabeth Taylor hóf feril sinn sem barna- og unglingastjarna í Hollywood en öfugt við margar slíkar stjörnur reyndist henni auðvelt að stíga skrefið áfram þegar gelgjan var að baki. Um tví- tugt var hún orðin ein eftirsóttasta leikkona draumaverksmiðjunnar – staða sem hún hélt í um þrjá áratugi. Minnisstæðust eru óskars- Taylor fjórtán ára gömul í kvikmyndinni Courage of Lassie.

x

SunnudagsMogginn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.