SunnudagsMogginn - 27.03.2011, Qupperneq 41
27. mars 2011 41
LÁRÉTT
1. Hvað? Sjór? Eða tæki? (5)
3. Kuðlast með stóra pakka. (8)
7. Gunnar er líka með einni. (6)
8. Ritlaus þvælist í allar áttir, bandbrjálaður. (11)
9. Sat svar fyrir blótsyrði. (6)
11. Vita um eitthvað að vestan sem snertir miðl-
un. (10)
14. Eftir fimma æða með sársauka að iðju. (8)
15. Býr fullkomlega til fyrir einbera. (7)
16. Horfa á æviskeið með ljósopi. (8)
18. Impraði á frú og skaut málinu áfram. (8)
20. Eftir álag enn flækist með áfengi út af skatti.
(8)
22. Fe+ verður að medalíu. (9)
25. Hefur minningar um skammir. (10)
26. Lentur á einhvers konar tákn. (7)
28. Klúryrt ákvarði trefjaríka fæðu. (8)
30. Gestur sést ekki neyta matar hjá beljunni. (10)
31. Erlend áfylling sést á veggteppi. (6)
32. Sannari dans má sjá dilla afturendanum. (11)
33. Brennist einn við frumefni. (12)
LÓÐRÉTT
1. Til allskonar söngs hvers. (9)
2. Enn ein fer á reik við vestlæg él með tæki. (9)
4. Næra tvö einhvern veginn með því að sýna
vonleysi. (7)
5. Ferðabúnaður tekinn í Galtaskarð? (5)
6. Flæktist með kassa að krá til að fá sérstakan
lista. (8)
10. Glitta á einhvers konar ágiskun. (7)
12. Pár með fimm eggjum á almannafæri. (10)
13. Slefa úr Efstaleiti fyrir partí. (5)
17. Organdi breytist í varla valdandi. (7)
19. Frá lækni koma spil í mínus. (10)
20. Árinn fær angur af niðurstöðunni. (10)
21. Þvaðrið snýst um gljáð rif. (8)
23. Ekki betri sjón leiðir til gáfu. (9)
24. Tvöfaldur andi tapi einum við að æfa það að
vera mótmælandi. (9)
27. Fjárans, kemur ekki senn. (7)
29. Gömul kölkuð kind. (6)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn ásamt úrlausninni í um-
slagi merktu: Krossgáta Morgun-
blaðsins, Hádegismóum 2, 110
Reykjavík. Frestur til að skila úrlausn
krossgátu 27. mars rennur út 31.
mars. Nafn vinningshafans birtist í
blaðinu 3. apríl. Heppinn þátttak-
andi hlýtur bók í vinning. Vinnings-
hafi krossgátunnar 20. mars er Fjóla Guðlaugsdóttir,
Sunnubraut 15, Keflavík. Hún hlýtur í verðlaun bókina
Ljósu eftir Kristínu Steinsdóttur. Forlagið gefur út.
Krossgátuverðlaun
Í síðustu viku fékkst niðurstaða
í hneykslismáli sem skekið hef-
ur frönsku skákhreyfinguna
síðan í janúar sl. þegar gert var
opinbert af aganefnd franska
skáksambandsins að 1. vara-
maður franska ólympíuliðsins,
Sebastian Feller, sem hlaut
gullverðlaun fyrir frammistöðu
sína í Síberíu, hefði svindlað í
nokkrum mikilvægum skákum
sínum á Ólympíumótinu í
Khanty Manyisk. Hinn 19 ára
gamli Feller hefur áfrýjað mál-
inu til æðra dómstigs en aga-
nefndin dæmdi hann í a.m.k.
þriggja ára keppnisbann. Liðs-
stjóri franska liðsins, Arnaud
Haucard, var rekinn með
skömm úr landsliðinu og fékk
lífstíðarbann sem þjálfari og
liðsstjóri í keppnum á vegum
skáksambandsins. Þriðji mað-
urinn, Cyril Marzalo, hlaut
fimm ára bann. Hann var ekki
staddur í Síberíu en var engu að
síður lykilmaður í svindli sem
var svo þaulskipulagt að undr-
um sætir. Þegar málið var gert
opinbert lék mörgum forvitni á
að vita hvaða meðulum hafði
verið beitt. Skilyrði fyrir svindl
virðast hafa verið sérstaklega
góð þar sem bein óseinkuð út-
sending var frá skákum móts-
ins. Þó svindlið varðaði aðeins
Feller tóku allir liðsmenn
Frakkanna þátt í því óafvitandi
og einnig andstæðingar þeirra!
Lítum á eina viðureign Frakka.
Frakkland – England 2:2
Vachier-Lagrave H8 – Adams
A1
Fressinet G7- Short B2
Tkachiev F6- McShane C3
Feller – E5 Howell D4
Liðsstjórinn Haucard var
með tvo gsm-síma meðferðis –
sinn eigin og síma Fellers. Í
Nancy í Frakkalandi sat hins
vegar Cyril Marzalo með beina
útsendingu á skjánum og um-
kringdur öflugustu tölvu-
forritum. Hann mun hafa sent
tæplega 200 sms-skilaboð.
Haucard las þau yfirleitt á
kaffibarnum til hliðar við
keppnissalinn.
Sms-skilaboð: 06-01-52-54-
37 þýðir samkvæmt kerfi þre-
menninganna Leika skal: 1. e2-
e4. Talnakerfið 06 var alltaf
fyrsta talan, næstu tvær núm-
erið á leiknum, þar á eftir tölur
sem merktu reitinn sem leikið
var frá, þar á eftir kom áfanga-
staður taflmannsins. Lokanúm-
erin tvö skiptu ekki máli. Yfir-
leitt dugði að sýna
áfangastaðinn.
Til þess að koma skilaboð-
unum til Fellers þurfi liðsstjór-
inn Haucard að standa á viss-
um stöðum í námunda við
viðureign franska liðsins. Þegar
Feller tók þá ákvörðun í skák-
inni sem hér fer á eftir að leika
19. leik, Rb4-c2, stoppaði
Hauchard fyrst fyrir aftan C,
þ.e. McShane, og stuttu síðar
færði hann sig aftur fyrir 2, þ.e.
Nigel Short.
Þeir sem fara yfir skákina
með t.d. „Rybku“, „Fritz“ eða
„Firebird“ reka sig fljótt á þá
staðreynd að eftir að byrjuninni
sleppir er fyrsta val forritsins
nær alltaf leikur Fellers.
David Howell – Sebastian
Feller
Frönsk vörn
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Rf6 4.
e5 Rfd7 5. Bd3 c5 6. c3 Rc6 7.
Re2 cxd4 8. cxd4 Db6 9. Rf3 f6
10. exf6 Rxf6 11. O-O Bd6 12.
b3 O-O 13. Bb2 Bd7 14. Rc3
Hac8 15. Ra4 Da5 16. Re5 Rb4
17. Bb1 Bxa4 18. bxa4 Dc7 19. a3
Rc2 20. Ha2 Bxe5 21. dxe5 Re4
22. Bc1
22. … Rxf2 23. Dxc2 Rh3+ 24.
gxh3 Db6+ 25. Kg2 Hxc2+ 26.
Bxc2 Hxf1 27. Kxf1 Dc7 28. Hb2
d4 29. Ke2 Dxe5+ 30. Kd1 Dh5+
31. Kd2 Dg5+ 32. Kd1 Dg1+ 33.
Kd2 Dxh2+ 34. Kd3 Dg1 35. Hb1
Dg6+ 36. Kd2 Dg2+ 37. Kd3
Dg6+ 38. Kd2 Dg2+ 39. Kd3 e5
40. Hb2 Df1+ 41. Kd2 Df2+ 42.
Kd3 Df3+ 43. Kd2 e4 44. Bb3
Kf8 45. Ke1 Dh1+ 46. Kd2 Dg2+
47. Ke1 Dg1+ 48. Kd2 Df2+
- og Howell gafst upp.
Svindlararnir
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta