SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Blaðsíða 9
25. september 2011 9
S
eptember er ekki liðinn en bjart-
sýnustu menn þegar farnir að spá
sínum mönnum meistaratitli. Þá er
gott að muna að þótt liðin séu lögð
í’ann er langhlaup framundan, ekki sprett-
ur, á fótboltavöllum Evrópu.
Hér heima eru reyndar aðeins tveir
sprettir eftir og spennan í hámarki, bæði á
toppi og botni Pepsídeildar karla. Megi besta
liðið vinna og mínir menn halda sæti sínu!
Á svipuðum tíma í fyrra þótti borðleggj-
andi að Chelsea yrði enskur meistari, slíkir
voru yfirburðir liðsins. Sumir sögðu forms-
atriði. En síðan gaf á bátinn, garpar Alex
Fergusons reru hins vegar í takt þegar á
reyndi og Manchester United hampaði Eng-
landsbikarnum enn eitt árið.
Ferguson kemur alltaf aftur!
Enginn dó á Kútter Haraldi heldur komu
þeir allir aftur. Það er eins í fótboltanum.
Þeir bestu koma alltaf aftur.
Eiður Smári gerði fyrsta markið fyrir AEK
í vikunni, sem var ánægjulegt, Michael
Owen gerði tvö fyrir Manchester United og
Steven Gerrard spreytti sig í liði Liverpool í
fyrsta skipti síðan í mars. En endurholdgun
vikunnar, ef svo má að orði komast, á þó
helst við um Owen Hargreaves; eftir fjög-
urra ára meiðslasögu sem fyllir mörg bindi
lauk hann störfum í vor hjá Manchester
United en vonaðist til þess að aðrir vinnuveitendur biðu handan við hornið. Og
það gerðu þeir, nær en nokkurn grunaði; Manchester City ákvað að gefa honum
tækifæri og strax í fyrsta leik, í deilarbikarnum gegn Birmingham á miðviku-
daginn, lék hann ljómandi vel og gerði frábært mark. Var meira að segja um-
svifalaust orðaður við enska landsliðið á ný.
Fróðlegt verður að sjá hvort Hargreaves verður í liðinu laugardaginn 22.
október. City sækir þá United heim.
Fleiri koma upp í hugann; Wayne Rooney „hvarf“ í langan tíma á síðustu
leiktíð en hefur farið hamförum í haust og Fernando Torres minnti á sig um síð-
ustu helgi, sýndi gamalkunna takta þegar hann skoraði fyrir Chelsea gegn Man.
Utd. en klúðraði síðan dauðafæri sem þegar er komið á suma lista yfir verstu
mistök allra tíma! Hvað um það er augljóst að hann er á réttri leið.
Kunn nöfn eru á toppnum víða um Evrópu; Bayern München í Þýskalandi,
Porto og Benfica í Portúgal, Manchester United í Englandi en óvæntir hlutir
gerast þó enn, sem betur fer, meira að segja á Spáni þar sem nýliðar Real Betis
eru efstir, frábært lið Valencia í öðru sæti og Malaga í því þriðja. Barcelona er í
fjórða sæti og Real Madrid númer sjö! Vonandi kveður þetta þá í kútinn sem
halda því sýknt og heilagt fram að einungis tvö góð lið séu á Spáni. Svo er ekki,
þó næsta víst sé að risarnir tveir komi aftur úr skugganum von bráðar. Líka
karlarnir sem meinaður var aðgangur að heimavelli Fenerbahce í Tyrklandi um
síðustu helgi. Reyna á að útrýma ólátum þar á bæ og gripið var til þess að hleypa
aðeins konum og börnum að. Alls mættu rúmlega 40.000 á leikinn og stemn-
ingin var engu lík. Kannski væri lag að banna karlpeninginn alveg!
Víða er von á góðu í dag og á morgun og síðan er Meistaradeildin á dagskrá
eftir helgi. Boltinn rúllar og rúlar …
Hver einasta kerling hló! Aðeins konum og börnum var hleypt inn á síðasta heima-
leik Fenerbahce. Þrátt fyrir það – kannski þess vegna – var stemningin frábær.
Reuters
Allir koma þeir
aftur – og aftur
Meira en
bara leikur
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Owen Hargreaves minnti á sig í
fyrsta leiknum með Man. City.
Reuters
’
Vilja koma í veg
fyrir ólæti og
hleyptu því að-
eins konum og börn-
um á leikinn!
Reuters
Skemmtileg lita-
samsetning í þess-
um alklæðnaði.
Mikil handverkskunnátta er að baki
þessu veski.
Burberry er
líka þekkt fyrir úlpur
sem þessar.
Húfurnar eiga
áreiðanlega eftir
að rjúka út.