SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Side 10
10 25. september 2011
Þ
egar ég var barn og unglingur – sem er fyrir ærið löngu
síðan – var bara gamla Gufan, Rás eitt, eins og það heitir
nú, á boðstólunum sem útvarp, fyrir utan hið forboðna
Kanaútvarp, sem bara var hlustað á í laumi. Einn þáttur
sem mér er minnisstæður og fjölskylda mín hlustaði oft á var
þátturinn um íslenskt mál, sem þá var að sjálfsögðu skrifað ís-
lenzkt mál. Ég man þáttinn ekkert í smáatriðum, en þó man ég
vel eftir spurningu sem stjórnandi beindi oft til hlustenda:
„Kannast hlustendur við …?“ Og spurningin var venjulega botnuð
með orði eða orðtaki, sem ég hafði aldrei heyrt áður. Þá hófst
keppni í fjölskyldunni, hver væri fyrstur til þess að koma með
viðunandi eða rétta skýringu á
því sem spurt var um.
Þessi þáttur kom upp í huga
mér, þegar ég var í bílnum á
leiðinni á fund síðdegis sl.
miðvikudag og hafði kveikt á
útvarpinu, Rás 2. Þá langaði
mig til þess að spyrja hlust-
endur: „Kannast hlustendur
við orðtakið „Andleg eyði-
mörk“?“
Boðuð voru þau stór-
pólitísku tíðindi, að þeir Guð-
mundur Steingrímsson og
Besti flokkurinn væru að
stofna nýtt stjórnmálaafl, sem
myndi bjóða fram á landsvísu.
„Stórtíðindin“ höfðu að vísu
komið fram í örfrétt á bls. 2 í
Morgunblaðinu rúmri viku
áður, en það er önnur saga.
Skömmu síðar voru þeir
Guðmundur og Jón Gnarr mættir í beina útsendingu hjá síðdeg-
isútvarpinu, þar sem þeir áttu að svara spurningum dagskrár-
gerðarfólks, um hið „nýja afl“.
Ég verð að segja það alveg eins og er, að fíflagangurinn í þessum
tveimur trúðum var með slíkum endemum, að mig setti hljóða.
Annar situr flokkslaus á Alþingi og gerir engum gagn og hinn situr
í stól borgarstjórans í Reykjavík og gerir okkur Reykvíkingum
mikið ógagn, enda sýndi skoðanakönnun MMR í síðasta mánuði
að 61,7% landsmanna eru óánægð með störf borgarstjórans, en ári
áður voru 77,6% frekar eða mjög ánægð með störf hans. Sitji hann
kjörtímabilið á enda, getur hann væntanlega náð því að komast
mun neðar í ánægjuvog landsmanna.
Síðdegisútvarpið spurði: Það er verið að tengja saman ólíka
hópa fólks. Hvernig stendur þetta og hvaða hópa er verið að
tengja saman í nýju framboði?
Guðmundur Steingrímsson, fyrrverandi þingmaður Fram-
sóknarflokksins og þar áður samfylkingarmaður, varð fyrst fyrir
svörum: „Við tengdum okkur saman og allir þeir sem eru í kring-
um Jón. Síðan höfum við verið að tengjast, svona fólk sem er í
kringum mig og fólk sem er í kringum Jón og síðan fleiri.“
Mannvitsbrekkan, borgarstjórinn, Jón Gnarr, þurfti nú heldur
betur að bæta hið gáfulega svar Guðmundar og sagði: „Fólk sem
er í kringum fólk sem er í kringum Guðmund hefur verið að
tengjast mér.“ Og enn jókst snilldin, því Guðmundur bætti við:
„Hefur verið að tengjast fólki sem er í kringum fólk sem er í
kringum Jón.“
Eftir þennan svona líka eitursnjalla inngang að kynningu á hinu
„nýja stjórnmálaafli“ mátti heyra hvernig hláturinn ískraði í þeim
félögum. Hlustendum var ekki skemmt, spyrlum var ekki
skemmt. Engum var skemmt nema Guðmundi og Gnarr. Þeim
fannst greinilega að þeir væru með skemmtilegri mönnum.
Síðan upplýstu gestirnir hlustendur um það, að þetta ætti bara
að vera leikandi létt og skemmtilegt. Stefna og stefnuskrá væru
óþörf og ætti alls ekki að tattóverast á handlegg, stofnfundur hins
„nýja afls“ væri sömuleiðis óþarfur, því eins og Gnarrinn orðaði
það svo snöfurmannlega: „Það er ekkert launungarmál að við
finnum að það er þörf og köllun eftir einhverju nýju og öðruvísi.“
Svo halda þessir menn, sem hafa ekkert til málanna að leggja,
eru „andleg eyðimörk“ frá a til ö, hafa enga sýn, engar hugsjónir,
enga stefnu, að þeir geti markaðssett sjálfa sig á landsvísu og
þjóðin láti glepjast á nýjan leik. Ég ætla að leyfa mér að trúa því og
treysta að það geri íslenska þjóðin ekki.
Andleg
eyðimörk
Agnes segir
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Jón
Gnarr
Guðmundur
Steingrímsson
’
Það er ekkert
launungarmál
að við finnum
að það er þörf og
köllun eftir einhverju
nýju og öðruvísi.“
6:30 Ég vakna og fer út með
hundinn, hana Urði litlu. Urður
er Chihuahua-hundur sem
dóttir mín á en hún er búsett í
Noregi. Nú er hún Urður mín,
hundurinn, að fara til dóttur
minnar til Noregs eftir mánuð
og mikið sem ég á eftir að sakna
hennar. En við Urður göngum
saman um voginn í Grafarvog-
inum. Þegar gönguferðinni er
lokið kem ég inn og borða
hafragrautinn minn, tek lýsið
mitt, les blöðin og tala við Urði.
Á meðan á morgunverkunum
stendur kúrir bóndinn áfram en
ég öfunda hann ekkert af því þar
sem ég hlakka alltaf til að mæta í
vinnuna mína og ég fæ að hvíla
mig um helgar.
7:20 Ég legg af stað í vinnuna
svona snemma til að losna við
mestu umferðina. Ég byrja síðan
á því að kveikja á kaffikönnunni
þegar ég kem á leikstofuna og
geng frá því sem þarf að ganga
frá.
8:00 Á legudeildinni sest ég
niður með hjúkrunarfræðingum
og sjúkraliðum og fæ upplýs-
ingar um þau börn sem liggja
þar. Síðan hittumst við leik-
skólakennarar og grunnskóla-
kennarar saman og förum yfir
hvaða börn eru inniliggjandi og
hvað við getum gert með þeim.
9:00 Leikstofan er opnuð og
þá koma börn frá legudeildinni,
dagdeildinni og göngudeildinni
og við spilum og föndrum og
spjöllum og reynum að vera
alltaf til staðar og mæta þörfum
allra barnanna. Þetta er mjög
gefandi og skemmtilegt starf og
get ég ekki hugsað mér að vera í
öðru starfi.
12:00 Leikstofunni er lokað
og starfsfólkið á göngudeildinni
hittist og borðar brauð saman.
Þetta höfum við gert á hverjum
fimmtudegi í þónokkurn tíma.
Við skiptumst á að koma með
brauð og meðlæti fyrir hópinn.
12:30 Leikstofan opnuð aft-
ur. Við höldum upp á 13 ára af-
mæli uppi á deild og það er hefð-
bundið afmæli með kökum,
gestum, gjöfum og afmælissöng.
Að afmælinu loknu fara
krakkarnir að föndra og það er
mikil listaverkaframleiðsla þar
til leikstofan lokar.
15:30 Leikstofunni lokað og
þá er gengið frá og skrifað niður
hverjir hafa verið hjá okkur
þennan daginn.
16:00 Ég fer heim og þá er
umferðin öllu meiri en um
morguninn. Ég nota því tímann
og hlusta á útvarpið.
16:30 Urður er búin að bíða
eftir mér allan daginn svo að við
förum saman í göngutúr. Þegar
Urður er búin að fara út að pissa
sest ég niður með manninum
mínum og við spjöllum aðeins og
hitum okkur afgang af matnum
frá deginum áður. Ég skelli mér
svo í sturtu og mála mig og geri
mig fína og hlusta á fréttirnar.
19:20 Ég er orðin klár, næ í
vinkonu mína og við förum
saman í saumaklúbb. Þar hitti ég
hóp af konum sem unnu saman
fyrir 25 árum en við höfum
haldið hópinn og vinskapinn all-
an þennan tíma. Þær eru óskap-
lega duglegar að prjóna og hekla
og eru mjög myndarlegar en ég
er ekki alveg á sama stað og þær í
hannyrðunum. Ég er aftur á
móti góður stuðningsfulltrúi og
hæli þeim óspart fyrir dugnað og
vandvirkni.
12:00 Það eru allir sofnaðir
þegar ég kem heim og hund-
urinn þar á meðal.
12:30 Málningin fær að
fjúka, ég hátta mig og læðist upp
í rúm.
Dagur í lífi Gróu Gunnarsdóttur leikskólakennara
á Barnaspítala Hringsins
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Hamingjusöm í starfi
Demantur þessi er engin smá-
smíði enda var hann ekki í eigu
neinnar venjulegrar konu, leik-
konunnar Elizabethar Taylor.
Það er starfsmaður Christie’s
sem heldur á gripnum sem seld-
ur verður á uppboði í New York
í desember næstkomandi ásamt
fleiri hlutum úr fórum stjörn-
unar sálugu. Hugsa nú eflaust
margir sér gott til glóðarinnar
enda Taylor kunn smekkkona.
Veröldin
Úr fórum
Liz Taylor
Reuters