SunnudagsMogginn - 25.09.2011, Side 44
44 25. september 2011
Saul Williams, – Said the Shotgun
to the Head bbbmn
Saul Williams er merkilegur fýr, hann hefur gefið
út fínar hipphoppskífur, þótt óvenjulegar séu,
samið kvikmyndahandrit og leikið í kvikmynd
og gefið út ljóðabækur, þar á meðal þá sem hér er
gerð að umtalsefni, en hún kom út fyrir nokkr-
um árum og var endurútgefin rafrænt fyrir
stuttu. Williams er mjög gagnrýninn á nútíma
þjóðfélag, en þó ekki beinlínis pólitískt; hann er
frekar að gagnrýna ýmsar birtingarmyndir
neysluhyggjunnar, fordóma og blindu. Það er
ekki ýkja mikill texti í bókinni að því leyti að ljóðin eru sum mjög
stutt, en bókin er því líkust að hún sé eitt ljóð í mörgum köflum. Víst
er það sérstakt í sjálfu sér að gagnrýna neysluhyggju og sölu-
mennsku í bók sem MTV gefur út, en Williams kemst vel frá því,
meðal annars með því að hlífa sjálfum sér ekki.
Nicci French – Blue Monday bbmnn
Spennuparið Nicci Gerrard og Sean French kann
öðrum fremur að skrifa spennandi bækur eins og
sannast hefur á fjölda metsölubóka á síðustu ár-
um. Blue Monday dregur dám af öðrum bókum
þeirra, enda skrifuð eftir þeirri vinnureglu að
aðalpersónan sé sterk, en þó varnarlítil kona.
Styrkur sögupersónunnar felst í því að hún mæt-
ir örlögum sínum af staðfestu og bregst við áreiti
af hörku, en veikleikinn er ýmist ástvinur, barn
eða annar nákominn, eða dulinn harmur, eins og
á við um sálfræðinginn Friedu Klein sem Blue Monday hverfist um.
Bókin fer óvenju hægt af stað, í það minnsta ef miðað er við Nicci
French-bók, en svo hrekkur hún í gang með voveiflegum atburðum
og snúinni flækju að vanda. Hér er greinilega farin af stað sería, því
við munum örugglega sjá Klein aftur, en hún er þó ekki ýkja spenn-
andi persóna og ekki eftirsóknarvert að hitta hana aftur.
Lenny Bartulin – Death by the Book bbnnn
Bartulin hefur greinilega sett sér að skrifa gam-
aldags reyfara með meinhæðinn töffara með
gullhjarta í aðalhlutverki og tekst nokkuð vel
upp. Fléttan er líka gamaldags, en þó með
skemmtilegum snúningi, því töffarinn Jack
Susko er fornbókasali og tekur að sér að finna öll
eintök sem til eru af ljóðabókum skálds. Fljótlega
kemst Susko að því að kaupandinn á eitthvað
sökótt við skáldið og hyggst brenna allar bæk-
urnar. Því til viðbótar á kaupandinn föngulega
dóttur sem heillar Susko, en þegar líkin taka að hrannast upp er
hann kominn á kaf í ótrúlega flækju sem ekki verður leyst nema með
mannvígum. Þokkaleg bók, en full-langsótt.
Árni Matthíasson arnim@mbl.is
Erlendar bækur
Eymundsson
1. Game Of Thrones - George
R.R. Martin
2. Storm of Swords - George
R.R. Martin
3. Family Ties - Danielle Steel
4. A Feast For Crows - George
R.R. Martin
5. Port Mortuary - Patricia
Cornwell
6. Templar Salvation -
Raymond Khoury
7. Headhunters - Jo Nesbö
8. Only Time Will Tell - Jeffrey
Archer
9. Clash of Kings - George R.
R. Martin
10. Hell’s Corner - David
Baldacci
New York Times
1. The Help - Kathryn Stoc-
kett
2. Kill Me if You Can - James
Patterson & Marshall Karp
3. The Mill River Recluse -
Darcie Chan
4. Blind Faith - CJ Lyons
5. Mile 81 - Stephen King
6. 1105 Yakima Street -
Debbie Macomber
7. The Abbey - Chris Culver
8. Dark Predator - Christine
Feehan
9. The Race - Clive Cussler &
Justin Scott
10. Envy - J.R. Ward
Waterstone’s
1. Inheritance - Christopher
Paolini
2. The Name of the Star -
Maureen Johnson
3. The Affair - Lee Child
4. Death of Kings - Bernard
Cornwell
5. One Day - David Nicholls
6. One Day - David Nicholls
7. Last Breath - Rachel Caine
8. The Dukan Diet Recipe
Book - Pierre Dukan
9. The Son of Neptune - Rick
Riordan
10. Snowdrops - A.D. Miller
Bóksölulistar
Lesbókbækur
Í
talski forvörðurinn og listsagnfræðingurinn
Antonio Forcellino er sérfræðingur í mynd-
list endurreisnartímans og meðal annars
kunnur fyrir að hreinsa og forverja meist-
araverk eftir einn kunnasta listamann þess tíma,
Michelangelo Buonarroti. Það var einmitt vegna
þeirrar reynslu og þekkingar á verkum ítalska
endurreisnarmeistarans sem honum var boðið að
koma til Bandaríkjanna, í heimahús skammt frá
Niagara-fossunum, að skoða lítið málverk sem
eigandinn kvaðst sannfærður um að væri eftir
Michelangelo.
Forcellino var efins þegar hann flaug vestur
um haf og þótti sagan öll hin undarlegasta, enda
koma á hverju ári fram verk sem eru eignuð þess-
um miklu meisturum listasögunnar en afar sjald-
an reynist nokkur fótur fyrir þeim staðhæfingum.
En svo fór, eftir nokkuð ævintýralega atburðarás,
að Forcellino varð sannfærður um að málverkið
væri í raun verk sem vitað er að Michelangelo
gerði fyrir Vittoriu nokkra Colonna árið 1545, en
listsagnfræðingar hafa um aldið talið að væri
teikning, með sama þema og í raun eins og mál-
verkið sem varðveitt er í listasafni í Boston. For-
cellino rekur þessa sögu alla í áhugaverðri bók,
The Lost Michelangelos, sem kom út fyrir
skömmu.
Forcellino kveðst ekki bara hafa fundið þetta
eina meistaraverk Michelangelos, heldur fullyrðir
hann að í klaustri í Oxford á Englandi sé löngu
týnt verk Michelangelos niður komið, af kross-
festingu Jesús, en það var einnig talið hafa verið
teikning. Hann færir talsvert sannfærandi rök
máli sínu til stuðnings.
Eins og spuni eftir Dan Brown
Ef þessi tvö málverk eru í rauninni eftir Miche-
langelo, þá er það stórfrétt. Einungis er vitað með
vissu um nokkur lítil málverk á striga eða á tré-
plötur sem hann málaði; öll hans frægustu verk
eru flennistórarar höggmyndir eða veggmálverk.
Forcellino er vel meðvitaður um að mörgum
fræðimönnum muni þykja uppgötvun hans
ósennileg; að málverkið sem orustuflugmaðurinn
bandaríski erfði sé frumverk eftir Michelangelo
en ekki kópía sem einhver samtímamaður hans
gerði eftir teikningu meistarans.
Þegar Forcellino og samstarfskona hans ræða
við eigandann, eftir að hafa skoðað röntgen-
myndir og endanlega sannfærst um að verkið sé
málað með hendi Michelangelos, undrast eigand-
inn og konan að Forcellino skuli ekki gleðjast.
„„Hvað er að, ertu ekki ánægður?“ spyr hún.
„Þú hafðir rétt fyrir þér. Þetta er Michelangelo.
Þetta er einstök uppgötvun. Ég geng ennþá lengra
en það: þetta er merkilegasta uppgötvunin í
gjörvallri listasögunni … Sagan gæti verið eftir
Dan Brown.“
„Það er vandamálið,“ svaraði ég,“ skrifar For-
cellino.
Klaufaskapur eða snilld?
Eftir að bókin kom út hafa margir fræðimenn
rengt niðurstöður Forcellinos, einkum hvað
varðar verkið í Bandaríkjunum, en aðrir eru hik-
andi og vilja ekki taka afstöðu fyrr en eftir ítar-
legar rannsóknir á verkinu. Þær standa um þessar
mundir yfir í Rómaborg en að þeim loknum verð-
ur málverkið til sýnis almenningi.
Sumir benda á að hlutar verksins séu klaufalega
málaðir og beri alls ekki snilli Michelangelos
vitni. Forcellino tekur undir það, en segir rönt-
genmyndir sýna að þeir hlutar séu seinni tíma yf-
irmálun eða viðgerðir. Aðrir hlutar verksins sýni
handbragð meistarans.
Hver sem lokaniðurstaðan verður, þá er bókin
hin áhugaverðasta lesning. Á stundum er höf-
undur fullkappsamur við að reyna að skemmta
lesandanum, jafnvel með sleggjudómum um
menn og málefni, en þar fyrir utan er ferðalagið
um aldirnar hrífandi. Frá vinnustofu málarans í
Rómaborg berst verkið með hugsjónaklerkum,
sem vildu breyta hinum kaþólska sið, til Króatíu.
Löngu síðar er það komið til Þýskalands og loks
til Bandaríkjanna, þar sem það var meðal annars
sýnt árið 1885 í Metropolitan-safninu í New York,
sem verk sem gæti „mögulega“ verið eftir Miche-
langelo. Það skyldi þó ekki hafa verið raunin?
Hvort verkið gerði Michelangelo? Forcellino bendir á málverkið, listfræðingar hafa talið það vera teikninguna.
Meistaraverk eftir
Michelangelo?
Getur verið að málverk sem um árabil var geymt á bak við
sófa sé eftir Michelangelo? Því heldur forvörðurinn Antonio
Forcellino fram og hefur skrifað um það áhugaverða bók.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is