Morgunblaðið - 07.05.2010, Qupperneq 1
Gæsluvarðhalds krafist yfir
Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrr-
verandi forstjóra Kaupþings
Lán vegna skuldatrygginga á
Kaupþing fóru í gegnum Magnús
Guðmundsson í Lúxemborg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftir Andra Karl og Rúnar Pálmason
TVEIR stjórnendur hjá hinum fallna Kaup-
þingi banka voru handteknir í gær vegna rann-
sóknar á fjölda afbrota. Mennirnir eru Hreiðar
Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaup-
þings, og Magnús Guðmundsson, fyrrverandi
forstjóri Kaupþings í Lúxemborg. Skýrslutök-
ur yfir Hreiðari og Magnúsi stóðu fram á kvöld
og lauk raunar ekki fyrr en á ellefta tímanum.
Að því er Ólafur Þ. Hauksson, sérstakur sak-
sóknari, segir var Hreiðar Már boðaður til
skýrslutöku í gærmorgun og mætti hann í
húsakynni saksóknarans sjálfviljugur. Skýrslu-
töku lauk um hádegi og var Hreiðari Má þá til-
kynnt að hann væri handtekinn.
Í kjölfarið krafðist sérstakur saksóknari
tveggja vikna gæsluvarðhalds yfir Hreiðari
Má, á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Dóm-
ari við Héraðsdóm Reykjavíkur tók sér frest til
hádegis í dag til að kveða upp úrskurð sinn.
Allt að átta ára fangelsi
Hreiðar Már var vistaður í fangaklefa lög-
reglu höfuðborgarsvæðisins við Hverfisgötu.
Aftur var tekin skýrsla af honum í gærkvöldi
en ekki fékkst uppgefið hvort Hreiðar hefði
sjálfur óskað eftir því að gefa skýrslu. Ólafur
kvað handtöku Hreiðars Más tengjast rann-
sókn á skjalafalsi, auðgunarbrotum, brotum
gegn lögum um verðbréfaviðskipti – meðal
annars markaðsmisnotkun – og brotum gegn
hlutafélagalögum. Ekki hefði verið ráðist í hús-
leitir vegna rannsóknarinnar í gær.
Síðdegis í gær bárust svo fréttir af því að
annar stjórnandi Kaupþings hefði verið hand-
tekinn. Var þar um að ræða Magnús Guð-
mundsson, forstjóra Banque Havilland í Lúx-
emborg, en sá banki var reistur á rústum
Kaupþings í Lúxemborg. Ekki er ljóst hvort
farið verður fram á gæsluvarðhald yfir honum.
Brotin sem rannsóknin beinist að varða allt
að átta ára fangelsi.
Bankamenn handteknir
Slóð liggur til Lúxemborgar | 4
F Ö S T U D A G U R 7. M A Í 2 0 1 0
STOFNAÐ 1913
105. tölublað
98. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
Sérblað
FÓTBOLTINN 2010
fylgir Morgunblaðinu í dag
HOLLVINIR GRENSÁSDEILDAR»9
EDDA FYRSTI
HEIÐURSFÉLAGINN
DAGLEGT LÍF»10-11
FRÆÐA UM TÍSKU
OG HÖNNUN
6
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
VERKAMANNAFLOKKUR Gord-
ons Browns forsætisráðherra missti
meirihluta sinn á breska þinginu í
kosningunum í gær eftir 13 ára for-
ystu en mestar líkur voru á að eng-
inn flokkur fengi hreinan meirihluta.
Útgönguspá benti til þess að Íhalds-
flokkurinn yrði stærstur, fengi 305
sæti, Verkamannaflokkurinn 255
sæti en Frjálslyndir demókratar
yrðu að sætta sig við svipaðan þing-
sætafjölda og í kosningunum 2005
eða 61.
Kjörsókn var talin hafa verið mun
betri en 2005 og víða biðraðir við
kjörstaði. Dæmi voru til að kjör-
stöðum væri lokað þótt enn ættu
margir eftir að kjósa en sums staðar
var kjördagur lengdur um hálftíma,
að sögn BBC. Hópur fólks í Shef-
field efndi til setuverkfalls til að
mótmæla skipulagsleysinu og bent
var á að oft ynnust kjördæmi á örfá-
um atkvæðum. Því gæti farið svo að
frambjóðendur kærðu kosninguna.
Það sem kom flestum stjórn-
málaskýrendum á óvart var lélegt
gengi Frjálslyndra demókrata en
flest benti til þess í síðustu skoð-
anakönnunum að þeim væri að tak-
ast að hrista ærlega upp í flokka-
kerfinu. En gangi útgönguspá eftir
er ljóst að góð frammistaða leiðtoga
flokksins, Nicks Cleggs, í sjónvarps-
kappræðum hefur ekki dugað til.
Bresku kosningarnar | 17
Reuters
Spenna Eftirlitsmenn fylgjast með
talningunni í Meadowbank Stadium
í Edinborg í gær.
Stjórn Browns fallin
Útgönguspá benti til sigurs Íhalds-
flokksins en hann næði ekki meirihluta
Kl. 20.29 Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings,
var í gærkvöldi leiddur af lögreglumönnum út úr húsakynnum sér-
staks saksóknara við Laugaveg og inn í ómerktan lögreglubíl. Þaðan
lá leiðin að lögreglustöðinni við Hverfisgötu þar sem Hreiðar Már var
vistaður í nótt.
Hreiðar Már kom til landsins með flugi frá London á miðvikudags-
kvöld og mætti boðaður til skýrslutöku í gærmorgun. Hann er búsett-
ur í Lúxemborg þar sem hann einnig starfar.
Hvorki Hreiðar Már né lögmaður hans, Hörður Felix Harðarson,
gáfu sig á tal við fjölmiðla eftir að skýrslutöku lauk.
Hreiðar Már að skýrslutöku lokinni í gærkvöldi
Eru í haldi vegna rannsóknar
á skjalafalsi, auðgunarbrotum
og markaðsmisnotkun
HAFNARFJARÐARBÆR er í
ábyrgðum fyrir lífeyrisskuldbind-
ingum starfsmanna hjá sparisjóðn-
um Byr. Skuldbindingin nam 1,3
milljörðum króna um áramót. Ef
hún fellur að einhverju leyti á sveit-
arfélagið getur það haft veruleg
áhrif á fjárhagsstöðu þess, að mati
endurskoðenda bæjarins.
Málið er rakið aftur til ársins
1971. Þá dugðu iðgjöld ekki fyrir líf-
eyrisskuldbindingum sem starfs-
mönnum Sparisjóðs Hafnarfjarðar
var lofað og tók bærinn á sig að veita
ábyrgð á því sem upp á vantaði.
Sparisjóður Hafnarfjarðar rann inn í
Byr sem nú er kominn í þrot. Ekki
er víst að bærinn hafi losnað undan
ábyrgð. Skuldbindingin er skráð í
ársreikningum bæjarins. | 6
Bærinn
í ábyrgð
fyrir Byr