Morgunblaðið - 07.05.2010, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 39.900
Netverð á mann, flugsæti báðar
leiðir með sköttum á mann, 2 fyrir
1 tilboð, 13. maí.
Gisting frá kr. 7.400 -gott *** hótel
Verð á mann pr. nótt m.v. gistingu
í tvíbýli á **** Hotel Andalusi Park
með morgunverði. Fleiri hótel
einnig í boði á frábærum kjöru
frá kr. 39.900
Frábær sértilboð á flugi og gistingu!
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á morgunflugi
með Icelandair til Sevilla 13. maí og gistingu í 4
nætur á mjög góðum hótelum í borginni. Gríptu
þetta frábæra tækifæri og njóttu þín í borginni
sem býður frábært mannlíf og fjölbreytni í menn-
ingu, afþreyingu að ógleymdu fjörugu næturlífi og
endalausu úrvali veitingastaða og verslana.
2 fyrir 1 til
Sevilla
13. maí (Uppstigningardagur)
Aðeins 12 sæti í boði og mjög takmörkuð gisting
Fyrstur kemur - fyrstur fær!
Eftir Helga Bjarnason
og Silju Björk Huldudóttur
FORMAÐUR bankaráðs Seðlabankans sagði
ráðinu að tillaga um hækkun launa seðla-
bankastjóra umfram það sem kjararáð ákvað
væri lögð fram að höfðu samráði við forsætis-
ráðuneytið og ætti rætur að rekja til viðræðna
við Má Guðmundsson seðlabankastjóra áður eða
um það leyti sem hann var ráðinn til starfa af
forsætisráðherra. Þetta segir Ragnar Árnason,
fulltrúi í bankaráði Seðlabanka Íslands. Jó-
hanna Sigurðardóttir sagði á Alþingi í gær að hún
hefði aldrei gefið neitt loforð um launakjör seðla-
bankastjóra.
Ragnar segir að Lára V. Júlíusdóttir, formaður
bankaráðsins, hafi lagt tillöguna um launahækkun
seðlabankastjóra fram fyrir þremur fundum. Hún
hefði þá upplýst að hún hefði einnig rætt málið við
Gylfa Magnússon efnahags- og viðskiptaráðherra.
„Sú staðreynd að málið hefur verið til umræðu á
þremur fundum sýnir tregðu fulltrúa í banka-
ráðinu til að fallast á þessa tillögu og ég og að
minnsta kosti einn annar fulltrúi höfum frá upp-
hafi lýst andstöðu okkar við þetta mál,“ segir
Ragnar.
Segir að samráð hafi ekki verið haft
Hefð er fyrir því að bankaráðsmenn tali ekki
um innri mál bankaráðsins opinberlega. Ragnar
tekur fram að hann hafi talið sig tilneyddan að
segja frá því hvernig málið horfði við sér, eftir að
formaður bankaráðsins og fleiri bankaráðsmenn
hefðu lýst sínum sjónarmiðum opinberlega.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði
rangt að núverandi seðlabankastjóra hefði verið
gefið loforð um að laun hans myndu ekki lækka
þegar hún svaraði spurningu Sigmundar Davíðs
Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins,
á Alþingi í gær.
Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður
spurði þá hvort formaður bankaráðsins hefði haft
samráð við forsætis- og fjármálaráðherra áður en
tillagan var borin upp. Forsætisráðherra neitaði
því, sagði að slíkt samráð hefði ekki verið haft.
Síðar í umræðunni ítrekaði Jóhanna að hún hefði
ekki komið að launamálum seðlabankastjóra með
neinum hætti. Það að hækka laun hans væri úr
takti við þá stefnu sem ríkisstjórnin hefði markað
í launamálum starfsmanna ríkisins. Birkir Jón
Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins,
sagði það grafalvarlegt mál ef slíkt loforð hefði
verið gefið án vitneskju forsætisráðherra og kall-
aði eftir því að kafað væri til botns í því máli.
Samráð haft við forsætisráðuneytið
Tillaga um hækkun launa seðlabankastjóra sögð eiga rætur að rekja til við-
ræðna við Má Guðmundsson um það leyti sem hann var ráðinn af forsætisráðherra
Jóhanna
Sigurðardóttir
Már
Guðmundsson
Ragnar
Árnason
STAÐREYNDIR
»Kjararáð ákvað í febrúarað laun seðlabankastjóra
yrðu 1.267 þúsund kr. á mán-
uði.
»Formaður bankaráðsinslagði til á fundi ráðsins að
nýtt yrði heimild í lögum og
laun hans hækkuð aftur upp í
það sem var fyrir ákvörðun
kjararáðs.
»Tillagan er óafgreidd ensamþykkt hennar hefði í
för með sér rúmlega 400 þús-
und króna hækkun launa
seðlabankastjóra.
»Birkir Jón Jónsson hefuróskað eftir fundi í efna-
hags- og skattanefnd um mál-
ið og að ráðherrar verði m.a.
boðaðir á fundinn.
MAÐURINN sem björgunarsveitir
hófu leit að á höfuðborgarsvæðinu
aðfaranótt fimmtudags fannst um
sjöleytið í gærkvöldi látinn í sjónum í
Hafnarfjarðarhöfn.
Leit var hætt eftir að staðfest var
að um var að ræða Eric John Burton,
Englendinginn sem lýst hafði verið
eftir. Burton var sjötugur að aldri,
enskur ríkisborgari en búsettur á
Spáni og átti íslenska sambýliskonu.
Hann var vel kunnugur í Reykja-
vík enda hafði hann komið hingað
nokkrum sinnum og dvaldi í þetta
sinn í húsbíl við Háaleitisbraut.
Ekkert spurðist til Burtons eftir
að hann lagði af stað í göngutúr um
níuleytið á miðvikudagskvöld þar til
lík hans fannst í 9,6 kílómetra fjar-
lægð, við Norðurbakka í Hafnarfirði,
tæpum sólarhring síðar.
Um 100 björgunarsveitarmenn
fínkembdu stórt leitarsvæði út frá
Háaleitisbraut í hálfan sólarhring og
var tilmælum beint til almennings
um að veita aðstoð með því að kanna
sitt nánasta umhverfi ef vera kynni
að maðurinn hefði örmagnast og leit-
að sér skjóls. Fram kom að hann var
lungnasjúklingur og gat ekki gengið
mikið án súrefnis. Ekki liggur fyrir
hvað varð til þess að andlát Burtons
bar að með þessum hætti né hvernig
á því stóð að hann fannst í sjónum
svo langt frá þeim stað sem hann
lagði upp frá. Lögregla hefur málið
til rannsóknar. una@mbl.is
Fannst látinn í Hafnar-
firði eftir mikla leit
Háaleitisbraut 103
Reykjavík
Norðurbakki
Hafnarfirði
Vegalengd á
milli staðanna
er um 9,6 km.
Maðurinn fundinn
Mörk svæðis
sem leitað var í
fyrstu umferð.
Í HNOTSKURN
»Leit hófst að manninumum klukkan fimm aðfara-
nótt fimmtudags.
»Landsbjörg kom uppbjörgunarmiðstöð við
verslunarmiðstöðina í Miðbæ í
Háaleitishverfi og var leitað á
bæði hjólum og bílum í radíus
út frá því svæði.
»Á sjöunda tímanum í gær-kvöldi barst svo tilkynning
um lík í Hafnarfjarðarhöfn og
reyndist það vera Burton.
NÚ er mjög í tísku að velta við hverjum steini,
skyggnast undir yfirborðið og hafa allt uppi á
borðum, eins og það er kallað. Svanirnir á anda-
pollinum á Akureyri eru þannig af guði gerðir,
eins og flestir aðrir fuglar, að eiga erfitt með að
velta við svo stórum steinum að þar geti leynst
mörg leyndarmál. Þeir lyfta heldur ekki miklu í
einu upp á borð, en engu líkara var en þessir,
sem blaðamaður fylgdist með góða stund í gær,
hefðu rökstuddan grun um að eitthvað gruggugt
væri að finna í pollinum. Bræður þeirra og syst-
ur voru við þessa sömu iðju annars staðar í vot-
um híbýlunum en endurnar sem eiga sama heim-
ilisfang létu sér fátt um finnast. Ekki er ljóst
hvort leit svananna skilaði einhverju bitastæðu í
gær, en reikna má með að þeir verði áfram við
störf á næstunni. Þeir vita líklega að betur sjá
augu en auga og að þolinmæði er dyggð.
SKYGGNAST UNDIR YFIRBORÐIÐ
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
SIGRÚN Björk
Jakobsdóttir, for-
seti bæjar-
stjórnar Akur-
eyrar, og maður
hennar hafa
ákveðið að fella
kaupmála sem
þau gerðu í haust
niður. Í yfir-
lýsingu frá þeim
segir að þau hafi
gert með sér kaupmála í samræmi
við ákvæði hjúskaparlaga. „Kaup-
málinn var ekki gerður í þeim til-
gangi að skjóta neinum eignum und-
an. Til að taka af öll tvímæli í þeim
efnum höfum við ákveðið að fella
hann niður.“ Eiginmaður Sigrúnar,
Jón Björnsson, er fyrrverandi spari-
sjóðsstjóri Sparisjóðs Norðlendinga.
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á
Akureyri lýsti yfir fullum stuðningi
við oddvita sinn.
Fella
kaupmála
úr gildi
Tilgangurinn ekki að
skjóta eignum undan
Sigrún Björk
Jakobsdóttir