Morgunblaðið - 07.05.2010, Qupperneq 8
KARLMAÐUR á sjötugsaldri var í Hæstarétti í
gær dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun.
Honum var einnig gert að greiða konu, sem hann
var dæmdur fyrir að nauðga, eina milljón króna í
bætur. Hæstiréttur staðfesti fangelsisdóm Hér-
aðsdóms Norðurlands vestra en lækkaði hins veg-
ar bætur til konunnar um hálfa milljón króna.
Konan kom á lögreglustöðina á Blönduósi í
ágúst árið 2008 og greindi frá því að maður hefði
nauðgað sér á heimili hans skömmu áður. Maður-
inn var handtekinn í kjölfarið og sat í gæsluvarð-
haldi í fjóra daga vegna málsins. Fram kom á sín-
um tíma að konan og maðurinn unnu saman og var
konan undirmaður mannsins.
Maðurinn neitaði sök en í skýrslu hans fyrir
dómi kom meðal annars fram að hann myndi ekki
hvenær hann hóf drykkju þennan dag. Hann sagði
sig ráma í að konan hefði komið heim til hans og
þau ætlað að fara saman að vinna við að beita línu.
Taldi hann sig hafa drukkið um þrjá bjóra, en svo
myndi hann ekki meira. Hann fullyrti hins vegar
að þær sakir sem á hann væru bornar fengju ekki
staðist vegna þess að þegar hann væri drukkinn
„mundi ég aldrei gagnast kvenmanni að neinu
leyti“.
Héraðsdómur taldi framburð konunnar einkar
trúverðugan og að gögn málsins styddu hann.
Hæstiréttur staðfesti þessa niðurstöðu og einnig
að brot mannsins hefði verið alvarlegt og hann
misnotað sér traust sem konan bar til hans. Varð-
andi bótakröfu konunnar segir Hæstiréttur að
ekki liggi fyrir nein gögn um afleiðingar brotsins
þótt ljóst sé að það hafi haft áhrif á andlega heilsu
hennar.
Braut gróflega gegn samstarfskonu
Í HNOTSKURN
»Maðurinn veittist að konunni með of-beldi, káfaði á brjóstum hennar og
sleikti og hafði við hana samræði.
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
Frægum kvikmyndamógúl í gömluHollywood varð stundum hált á
svellinu þegar hann orðaði hugsun
sína. Hann sagði eitt sinn að auðvitað
hefði hann oft rangt fyrir sér, en á
móti kæmi að sér skjátlaðist aldrei.
Launamál seðlabankastjórans eruaf þessari ætt. Launahækkun um
400 þúsund krónur er ekki slæm þeg-
ar tillit er tekið til þess að um launa-
lækkun er að ræða.
Það er ekki hægtannað en taka
undir með Ragnari
Reykás og furða sig
á að menn séu að
fjargviðrast yfir
þessu, því hækkun
upp á 400 þúsund,
sem er í raun lækk-
un um sömu upp-
hæð, jafnar sig út og rúmlega það.
Lára, formaður bankaráðsins, miðl-aði þeim upplýsingum að hún
væri bara að efna loforð sem var gef-
ið í forsætisráðuneytinu. Nú hefur Jó-
hanna sjálf tekið fram að hún hafi
ekkert slíkt loforð gefið. Ætla menn
að rengja það?
Þegar Lára miðlaði sínum upplýs-ingum sagði hún bara að loforðið
hefði verið gefið í forsætisráðuneyt-
inu. Þannig að það gæti einhver hafa
gert sem bara var staddur í stjórn-
arráðshúsinu af tilviljun. Til dæmis
leigubílstjóri að koma með bréf. Eða
maðurinn sem þvær gluggana. Á að
gera Jóhönnu ábyrga fyrir einhverju
fleipri manna sem flandra um húsið á
eigin ábyrgð?
Ef einhver þeirra asnaðist til að lofafélagsmálaráðherranum skuld-
lausum Hummer, á Jóhanna þá að
standa við það?
Það dugar ekki fyrir Láru að segjaað það hafi verið andinn í forsæt-
isráðuneytinu að standa bæri við lof-
orðið við Má.
Lára Júlíusdóttir
Er Lára miðill?
Veður víða um heim 6.5., kl. 18.00
Reykjavík 9 skýjað
Bolungarvík 11 rigning
Akureyri 16 skýjað
Egilsstaðir 11 alskýjað
Kirkjubæjarkl. 15 skýjað
Nuuk 8 léttskýjað
Þórshöfn 7 léttskýjað
Ósló 10 skýjað
Kaupmannahöfn 10 skýjað
Stokkhólmur 10 heiðskírt
Helsinki 11 heiðskírt
Lúxemborg 6 skýjað
Brussel 12 léttskýjað
Dublin 13 léttskýjað
Glasgow 13 léttskýjað
London 13 léttskýjað
París 14 heiðskírt
Amsterdam 12 léttskýjað
Hamborg 8 alskýjað
Berlín 7 skúrir
Vín 21 léttskýjað
Moskva 12 heiðskírt
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 18 léttskýjað
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 16 léttskýjað
Aþena 25 heiðskírt
Winnipeg 3 skýjað
Montreal 12 þrumuveður
New York 23 heiðskírt
Chicago 15 léttskýjað
Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
7. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:39 22:11
ÍSAFJÖRÐUR 4:25 22:35
SIGLUFJÖRÐUR 4:07 22:18
DJÚPIVOGUR 4:04 21:45
ÞAÐ getur verið þrautin þyngri að ná áttum í
þoku nema þekkja vel til kennileita. Sé sú þekk-
ing ekki fyrir hendi stoðar lítt að rýna í kort.
Það er þó freistandi að reyna enda stundum ekk-
ert annað í stöðunni þegar brýnt er að komast á
áfangastað.
Undanfarna tvo daga hefur þykk þoka legið yfir
höfuðborginni, þó hefur verið nokkuð hlýtt í
veðri. Í dag er spáð hægviðri á landinu og gert
er ráð fyrir að það fari að létta til eftir hádegi,
einkum í innsveitum. Hiti verður 8 til 18 stig,
hlýjast á Suðausturlandi.
ERFITT AÐ NÁ ÁTTUM Í ÞYKKRI ÞOKUNNI
Morgunblaðið/Golli