Morgunblaðið - 07.05.2010, Síða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
„ÞETTA var afskaplega fallega
hugsað,“ segir Edda Heiðrún
Backman, leikkona og leikstjóri,
sem útnefnd var fyrsti heiðurs-
félagi Hollvina Grensásdeildar
(HG) á aðalfundi samtakanna sem
fram fór fyrir skemmstu. Segir hún
ánægjulegt að senn styttist í að
markmið samtakanna um að bæta
húsa- og tækjakost Grensásdeild-
arinnar verði að veruleika.
Á aðalfundinum kom fram að
vatnaskil hefðu orðið í fjárhags-
stöðu HG með aðkomu Eddu Heið-
rúnar og söfnunarátakinu Á rás
fyrir Grensás sem hún stóð fyrir
með aðstoð HG og annarra vel-
unnara. „Það var mín lukka að
finna verkefni sem gefur svona
mikla gleði og gengur svona vel,“
segir Edda Heiðrún og tekur fram
að hún vonist til þess að hægt verði
að klippa á borða vegna nýs húsa-
kosts eftir þrjú ár þegar Grens-
ásdeildin fagnar 40 ára afmæli sínu.
Að sögn Gunnars Finnssonar,
formanns HG, skilaði átakið Á rás
fyrir Grensás 102,5 milljónum
króna.
Spurður hvort búið sé að ákveða
hvernig söfnunarféð verði nýtt seg-
ir Gunnar það grundvallaratriði að
ráðstafa ekki fénu fyrr en fyrir liggi
nákvæmlega hvernig heilbrigð-
isráðuneytið ætli að taka á málum
og búið sé að hanna nýtt skipulag á
Grensásreitnum þar sem fram komi
hvernig uppbygging sé fyrirhuguð
á reitnum þ.m.t. ný álma fyrir
sjúkra- og iðjuþjálfun og bíla-
geymsla, en sú hönnunarvinna er
þegar farin af stað á vegum Land-
spítalans. Bendir hann á að heildar-
kostnaðurinn vegna viðbyggingar
sé a.m.k. einn milljarður eða um
100 milljónir í vexti og afborganir á
ári miðað við um 20 ára afskrift-
arbil.
Þjóðhagslega hagkvæmt
„Það gefur augaleið að söfn-
unarféð hrekkur skammt í það,“
segir Gunnar og tekur fram að ver-
ið sé að skoða aðkomu lífeyrissjóð-
anna að fjármögnun þessarar fram-
kvæmdar. Bendir hann á að þar á
bæ sé áhugi fyrir verkefninu, ekki
síst þar sem það uppfylli mörg skil-
yrði sem lífeyrissjóðirnir hafa sett
fyrir aðkomu sinni að málum, m.a.
að verkefnið sé vel skilgreint, geti
hafist fljótlega og sé atvinnuskap-
andi. Gunnar minnir jafnframt á að
fjárfesting í endurhæfingu sé mjög
arðbær fyrir samfélagið.
„Skatttekjur af þeim 100 ein-
staklingum sem Grensásdeild út-
skrifar á hverju ári eru meira en 85
milljónir á ári,“ segir Gunnar og tek-
ur fram að sparnaður felist líka í því
að gera fólki kleift að búa heima í
stað þess að dvelja á ríkisrekinni
stofnun. „Varlega reiknað mun fjár-
streymið til ríkissjóðs og sparnaður
hans á ári hverju því nema mun
hærri upphæð en nemur kostnaði við
fjármögnun framkvæmdanna við
Grensásdeild. Þar að auki munu
framkvæmdirnar leiða til þess að
deildin geti bætt færni enn fleiri en
hún getur nú, sem mun síðan aftur
auka tekjuflæðið til ríkissjóðs enn
meira.“ silja@mbl.is
Edda útnefnd fyrsti heiðursfélaginn
Vatnaskil urðu í fjárhagsstöðu Hollvina Grensásdeildar með aðkomu Eddu Heiðrúnar Backman
og söfnunarátakinu Á rás fyrir Grensás Átakið skilaði samtökunum rúmum 102 milljónum
Í HNOTSKURN
»Átakið Á rás fyrir Grensásskilaði 102,5 milljónum.
»Fyrsta verkefni HollvinaGrensáss (HG) er að bæta
aðgengi fatlaðra að Grens-
ásdeildinni með yfirbyggðu
bílastæði með snjóbræðslu fyr-
ir 10-15 bifreiðir við aðal-
inngang deildarinnar.
»Það verkefni verður fjár-magnað með 25-30 millj-
óna króna styrk sem heil-
brigðisráðherra hefur heitið
samtökunum, en ráðherra
ávarpaði aðalfund HG.
»Þær framkvæmdir gætuhafist þegar á þessu ári.
Þakklát Edda Heiðrún vonar að hægt verði að klippa á borða eftir þrjú ár.
NÍU ára nemendur Barnaskóla
Hjallastefnunnar í Garðabæ, fjöl-
skyldur þeirra og starfsmenn skól-
ans fögnuðu saman framúrskarandi
árangri barnanna í stærðfræði í síð-
ustu samræmdu prófum í 4. bekk.
Meðaleinkunn skólans í stærðfræði
var 8,8 en landsmeðaltalið var 6,1.
„Við höfum kallað þau Íslands-
meistara í stærðfræði 4. bekkjar og
rétt eins og þegar aðrir verða Ís-
landsmeistarar í handknattleik í 4.
flokki er haldin hátíð og veitt verð-
laun,“ sagði Vilborg Einarsdóttir,
foreldri eins barnsins, en það voru
foreldrarnir sem stóðu fyrir verð-
launahátíðinni.
Páll Hilmarsson, formaður skóla-
nefndar Garðabæjar, afhenti börn-
unum, sem eru 28 talsins, verðlaun
af þessu tilefni og hvatti þau til að
setja markið hátt og verja titilinn
við næsta tækifæri.
Langefstur í stærðfræði
Verðlaunagripurinn var gylltur
vasareiknir á endurunnu timbri og
gleri, hannaður og smíðaður af
Braga Jóhannssyni, þúsundþjala-
smiði Barnaskólans.
„Það á að verðlauna sem vel er
gert og þessi börn skipuðu skól-
anum á meðal fimm efstu skóla á
landsvísu í íslensku, en í stærðfræði
var skólinn langefstur,“ sagði Vil-
borg. „Það verður ekki horft
framhjá því að kennsla að hætti
Hjallastefnunnar skilar góðum
árangri í námi ekki síður en náms-
gleði, eins og við foreldrar merkj-
um vel hjá börnunum okkar,“ segir
Vilborg.
Hún segir mikla áherslu lagða á
samskipti skólans, foreldra og fjöl-
skyldna. „Svo skiptir staðsetningin
ekki síður máli þegar svona nið-
urstöður fást,“ segir Vilborg. „Bæj-
aryfirvöld í Garðabæ hafa sett mál-
efni skóla, barna og fjölskyldna í
algeran forgang á undanförnum ár-
um og það skapar jarðveg sem get-
ur skilað svona árangri.“
Frábært! Krakkarnir í 4. bekk í Barnaskóla Hjallastefnunnar hafa tilefni til
að fagna rækilega eftir að hafa náð frábærum árangri í stærðfræði.
Gylltar reiknivélar
fyrir góðan árang-
ur í stærðfræði
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Str. m-xxxl
Verð kr. 4.900
Köflóttar
skyrtur
Skokkar
áður
16.990
nú
11.990
Margar
gerðir
St. 36-52
Laugavegi 54,
sími 552 5201
Helgarbrjálæði
8,8
Meðaleinkunn nem-
enda í Barnaskóla
Hjallastefnunnar í
stærðfræði
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær Ker,
Skeljung og Olíuverslun Íslands, til
að greiða Vestmannaeyjabæ 14,4
milljónir króna í bætur vegna tjóns
sem bærinn varð fyrir vegna ólög-
mæts samráðs félaganna. Félögin
voru hins vegar sýknuð af bótakröfu
útgerðarfélagsins Dala-Rafns í Vest-
mannaeyjum.
Vestmannaeyjabær taldi sig hafa
orðið fyrir tjóni vegna ólögmæts
samráðs olíufélaganna þriggja um
verð sem félögin buðu fyrir eldsneyti
í útboði á árinu 1997. Hæstiréttur
féllst á það og segir m.a. í dómnum,
að bréf framkvæmdastjóra markaðs-
sviðs stórviðskipta hjá Skeljungi frá
10. mars 1998 til Kers og Olís veiti
eindregna vísbendingu um að félögin
þrjú hafi haft með sér samráð við
gerð tilboða til Vestmannaeyjabæjar
og samið um skiptingu framlegðar.
Jafnframt að minnisblað fram-
kvæmdastjóra markaðssviðs stór-
notenda hjá Olís styddi sömu niður-
stöðu og einnig gögn, sem komu
fram við rannsókn Samkeppnis-
stofnunar á ætluðum brotum olíu-
félaganna á þágildandi samkeppnis-
lögum.
Hæstiréttur sýknaði hins vegar
félögin þrjú af bótakröfu Dala-Rafns
í Vestmannaeyjum en áður hafði
Héraðsdómur Reykjavíkur fallist á
kröfu félagsins um að olíufélögin
greiddu því 2,3 milljónir króna í bæt-
ur vegna tjóns, sem ólöglegt samráð
þeirra var talið hafa valdið.
Hæstiréttur segir, að þrátt fyrir
umfangsmikla öflun gagna við máls-
meðferð stjórnvalda á sviði sam-
keppnismála, sem Dala-Rafn hafi að
nokkru fengið aðgang að, hafi félagið
ekkert lagt fram, vísað til gagna eða
rökstutt á annan hátt að olíufélögin
þrjú hafi sérstaklega haft samráð
um viðskipti eða verðlagningu við
það.
Olíufélögin sakfelld og sýknuð
Dæmd til að greiða
Vestmannaeyjabæ
14,4 milljónir króna
AUGLÝSINGASÍMI 569 1100