Morgunblaðið - 07.05.2010, Síða 11
borð við Skvísuvaktina á bloggsíðu sinni. Á Skvísuvaktinni
fær Ásdís Rán ungar og efnilegar stúlkur í viðtal, og spyr
um hárlit, uppáhaldsskemmtistað, skálastærð og eftirlæt-
islíkamsræktarstöð. Hún kallar sjálfa sig The IceQueen
og birtir eggjandi myndir af sjálfri sér á heimasíðu sinni.
Nú síðast sendi hún frá sér títtnefndan poppslagara.
Stundum er sagt að „ef þú verður ekki fyrir gagnrýni
ertu sennilega ekki að gera mikið“. Ásdís Rán er ein af
þessum manneskjum sem hámarka alltaf nytjar af
þeim aðstæðum sem hún er stödd í. Þegar eig-
inmaður hennar, Garðar Gunnlaugsson, gekk til
liðs við knattspyrnuliðið CSKA Sofia flutti Ásdís
Rán með til Búlgaríu. Hún hafði aldrei komið
þangað áður. Garðari gekk sæmilega á knatt-
spyrnuvellinum, en innan fárra mánaða hafði Ásdís
prýtt forsíðu eins þekktasta dægurtímarits Búlg-
aríu. Henni var boðið að taka þátt í raunveru-
leikaþáttum, og fyrr en varði hafði henni
tekist að skapa sér nafn þar í landi, jafn-
vel stærra en eiginmanns síns sem var
þó atvinnuknattspyrnumaður. Á sama
tíma stendur hún í barnauppeldi, og
glímir við erfiða bakveiki sem hún
greindi nýverið frá. Ef einhver er of-
urkona, þá er það Ásdís Rán Gunn-
arsdóttir.
Og nýja lagið hennar er bara
virkilega skemmtilegt.
Þórður Gunnarsson | thg@mbl.is
Ásdís Rán Gunnarsdóttir gaf út frumraun sína átónlistarsviðinu í vikunni. Popplagið Feel mybody var frumflutt á útvarpsrásinni Kananum,en skömmu eftir frumflutninginn hlóðust inn
beiðnir um lagið á aðrar útvarpsstöðvar. Skyldi engan
undra, því um er að ræða ákaflega grípandi og hressandi
sumarsmell sem verður án efa vinsæll til framtíðar, jafnt á
skemmtistöðum borgarinnar sem annars staðar.
Lagið lýsir upplifun ungrar konu af áhuga karlmanna í
kringum sig, á sér. Í textanum talar konan til óskilgreinds
einstaklings, sem að því er virðist girnast hana með ein-
hverjum hætti. Hún er þó ekki viss um að viðkomandi ráði
hreinlega við návist hennar, en spyr þó hvort viðkomandi
vilja finna fyrir líkama hennar. Það kann þó að vera retór-
ísk spurning. Ásdís hefur hingað til ekki tjáð sig op-
inberlega um hvort textinn sé byggður á eigin reynslu. En
þeir sem til hennar þekkja þykjast halda að svo sé.
Athygli mína vöktu viðbrögðin við lagi Ásdísar
Ránar á samfélagsmiðlum á borð við Facebook.
Margir, þar á meðal ég, voru ánægðir með lag-
ið. Þeir sem hins vegar kunnu ekki að meta lag
Ásdísar sáu ástæðu til að gera þeirri skoðun
sinni alveg sérstaklega góð skil. Orð eins og
„hljóðmengun“ voru meira að segja notuð um
lagið. Slík ummæli dæma sig auðvitað
sjálf. Þegar fólk tekur sig til og hraun-
ar yfir frumraun Ásdísar á tónlist-
arsviðinu er augljóst að eitthvað
meira býr að baki.
Enda er Ásdís umdeild kona.
Ekki kunna allir að meta
hvernig hún kynnir sig og
skilgreinir sjálfa sig á op-
inberum vettvangi. Hún
gerir út á kynþokka sinn
(sem er óumdeildur) og
heldur úti dagskrárliðum á
»Þegar fólk tekur sig til og hraunar yfirfrumraun Ásdísar á tónlistarsviðinu
er augljóst að eitthvað meira býr að baki.
Enda er Ásdís umdeild kona.
HeimurÞórðar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
Daglegt líf 11
Tískubloggarar Rakel og Svana í nýjustu tísku frá toppi til táar.
að; frá öðrum netsíðum, bókum,
blöðum og bíómyndum og síðan segj-
ast þær „gúgla“ hugmyndir sem þær
hafa í kollinum til að fá nánari upp-
lýsingar.
Á eigin forsendum
Rakel og Svana segja að Svart á
hvítu-bloggið fái um þúsund til
fimmtán hundruð heimsóknir á dag
sem verður að teljast góður árangur
fyrir svo ungt tískublogg á íslensku.
„Það eru aðallega stelpur á aldr-
inum tuttugu til þrjátíu ára sem eru
að skoða okkur. Við höfum ekki aug-
lýst síðuna nema þá í gegnum Face-
book en við höfum mikinn metnað
fyrir þessu og háleit markmið. Við
erum á Blogspot núna, sem er ein-
föld síða í notkun, en ætlum í fram-
tíðinni að stofna okkar eigið lén og
gera alvöruheimasíðu úr þessu.
Okkur hefur verið boðið að skrifa
á Eyjunni og Pressunni en höfn-
uðum því, við viljum vera á eigin for-
sendum. Við setjum ekki inn auglýs-
ingafærslur, þ.e skrifum um vörur
sem við fáum gefins, því þá myndi
síðan missa trúverðugleika sinn.
Bloggið á að endurspegla okkar hug-
myndir og smekk, það verður samt
ekki almennilegt fyrr en við verðum
báðar á landinu, það er ekki hægt að
stækka þetta á meðan önnur er er-
lendis og við vinnum saman í gegn-
um msn,“ segja stúlkurnar.
90% af fötunum frá H&M
En hvernig lýsa tískubloggarar
eigin stíl?
„Minn stíll er frekar hefðbundinn,
ég er ekki með neinn öfgastíl. Ég
verð nú að viðurkenna að ég eyði
ansi miklu í föt en þetta fer mikið eft-
ir buddunni hverju sinni. Ég reyni
alltaf að gera góð kaup, mér finnst
Monkí og Weekday rosalega flottar
búðir, þær eru í Danmörku og Sví-
þjóð. Svo er ég hrifin af H&M, Zöru
og Top Shop enda eru þær alltaf með
nýjasta nýtt. Einnig verslum við
báðar á netinu. Ég held að allir ættu
að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í
tískunni núna, það er svo margt í
boði,“ segir Rakel.
„Ég er líka frekar hefðbundin í
klæðaburði,“ segir Svana, „Ég held
að ég kaupi 90% af fötunum mínum í
H&M og kíki svo annað slagið á
markaði og í búðir með notuð föt.“
Þær viðurkenna að sumir undrist
þennan mikla fataáhuga þeirra.
„Það er hægt að senda spurningar
til okkar og við höfum verið spurðar
hvernig við höfum efni á þessu.
Stelpur á okkar aldri skilja þetta en
fjölskyldunni finnst stundum nóg
um,“ segir Svana og Rakel bætir við:
„Sumir fóru að bera meiri virðingu
fyrir þessu eftir að við byrjuðum
með bloggið, virðast skilja þessa
áráttu betur. Við erum ekkert öðru-
vísi en margar stelpur á okkar
aldri.“
Hvert er svo framtíðarmarkmiðið
með Svart á hvítu?
„Markmiðið er að við verðum svo
frægar í tískuheiminum að við fáum
boð um að sitja á fremsta bekk á
stórum tískusýningum úti í heimi,“
segja þær og hlæja. „Nei, alls ekki.
Við erum mjög rólegar yfir þessu,
markmiðið er aðeins að gera síðuna
stærri og flottari og halda áfram að
blogga um tísku og hönnun,“ segja
þær stöllur að lokum.
www.svartahvitu.blogspot.com
Við setjum ekki inn auglýsingafærslur, þ.e skrifum
um vörur sem við fáum gefins, því þá myndi síðan
missa trúverðugleika sinn.
Slúður, slúður, slúður, það er alltaf
gaman að lesa gott slúður um fræga
fólkið. Vefsíðan www.x17online.com
er góð í því að uppfræða fólk í máli
og myndum um hvað fræga fólkið er
að gera.
Á forsíðunni eru hefðbundnar
slúðurfréttir, yfirleitt um stjörnur í
yngri kantinum, sumar hverjar eru
nánast bara þekktar innan Banda-
ríkjanna.
Í myndagalleríinu má sjá mikið af
myndum flokkuðum í þrjá flokka;
eftir þeim nýjustu, þeim vinsælustu
og eftir stjörnum. Myndirnar eru oft-
ast teknar af fólkinu úti á götu í
hversdagslegum erindagjörðum eða
við að stunda áhugamál sitt. Meðal
nýjustu mynda eru myndir af Joel
Madden, manni Nicole Richie, með
dóttur þeirra á röltinu. Einnig eru
tuttugu og fimm myndir af Lindsay
Lohan á göngu, svartklæddri og
sjúskaðri.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að
fylgjast með brostnum hjörtum er
tengill á vefsíðunni á umfjöllun um
skilnaði í Hollywood. Svo er tengill á
umfjöllun um sjónvarpsþætti, á
myndbandsupptökur af frægum og á
margt annað.
x17online.com er afbragðs slúð-
ursíða fyrir þá sem vilja lítið vandað
slúður með mörgum myndum.
Vefsíðan: www.x17online.com
Reuters
Tíðir gestir Joel Madden og Nicole Richie eru vinsælt umfjöllunarefni á síðunni.
Slúðurfréttir og myndir
Aðalfundur Bakkavör Group ehf. verður haldinn föstudaginn
14. maí nk. kl. 10:00 á Hótel Sögu, Hagatorgi, 107 Reykjavík.
Eftirtalin mál eru á dagskrá fundarins samkvæmt
samþykktum félagsins:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið ár.
2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár, ásamt áritun
endurskoðanda, lagður fram til samþykktar.
3. Ákvörðun um greiðslu arðs og jöfnun taps fyrir síðastliðið
reikningsár.
4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
5. Kosning stjórnar félagsins samkvæmt 17 gr. samþykkta
félagsins.
6. Kosning endurskoðunarfélags.
7. Tillögur stjórnar um starfskjarastefnu.
8. Önnur mál.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins munu
liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis sjö
dögum fyrir aðalfund. Hluthafar sem óska eftir að fá endanlegar
tillögur og dagskrá sendar geta sent tölvupóst á
fjarfestatengsl@bakkavor.com
Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera
komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir
aðalfund. Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á
sér til setu í stjórn félagsins skulu tilkynna það skriflega til
stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm sólarhringum fyrir
upphaf aðalfundar. Upplýsingar um framboð til stjórnar skulu
vera aðgengilegar hluthöfum á skrifstofu félagsins eigi síðar en
tveimur dögum fyrir aðalfund.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á
aðalfundardaginn frá kl. 9:00 á fundarstað. Athygli er vakin á að
atkvæðisréttur miðast við hluthafaskrá að morgni 12. maí 2010.
Reykjavík 6. maí 2010
Stjórn Bakkavör Group ehf.
Aðalfundur Bakkavör Group ehf.