Morgunblaðið - 07.05.2010, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
ÞAR sem borið var niður í gær og
spurst fyrir um aflabrögð á vertíðinni
var viðkvæðið alls staðar hið sama:
Vertíðin hefur verið gjöful, ágætt
verð fæst fyrir afla og afurðir og einu
vandamálin eru kvótatengd.
Á kvótamarkaði hefur lítið fram-
boð verið undanfarið nema í ýsu og á
hátt leiguverð þátt í því. Það eru helst
snurvoðarbátar sem hafa leigt til sín
ýsu. Líklegt er að ýsa verði notuð í
tegundatilfærslu í lok vertíðar, t.d. á
móti karfa.
Minna hefur verið selt á fiskmörk-
uðum það sem af er þessu ári en í
fyrra, meginástæða þess eru minni
kvótar. Verðið á mörkuðunum hefur
hins vegar verið talsvert hærra en í
fyrra. Maímánuður hefur byrjað
ágætlega á mörkuðunum og í næstu
viku hefjast strandveiðarnar. Í gær
höfðu Fiskistofu borist 437 umsóknir
um leyfi til strandveiða.
Ekki lengur talað af
óvirðingu um löngu og keilu
Eiríkur Tómasson, forstjóri Þor-
bjarnar í Grindavík, sagði að kvóti
fyrirtækisins í þorski hefði minnkað
ár frá ári og línubátar fyrirtækisins
væru nánast búnir með sinn þorsk-
kvóta. „Það er ekki nóg með að
þorskurinn sé að verða búinn heldur
hefur langa veiðst í miklu meira mæli
í vetur en áður,“ sagði Eiríkur.
„Ef einhvers staðar er vitlaust gef-
ið þá er það í úthlutun á kvóta í löngu.
Útbreiðslan hefur aukist mjög mikið
og færst norður með Vestfjörðum.
Þetta gerir okkur erfitt að sækja
keilu í kantana suður og vestur af
landinu,“ sagði Eiríkur og bætti því
við að það væri löngu liðin tíð að talað
væri af óvirðingu um löngu og keilu,
sem færu ýmist í salt eða þurrk.
„Það er líka athyglisvert að línu-
bátarnir eru búnir að veiða mun
meira af ýsu á þessu ári en í fyrra og
hún hefur fengist nánast uppi í fjöru.
Togararnir, sem eru utar, hafa hins
vegar fengið miklu minna. Ég get
nefnt sem dæmi að tveir línubátar frá
okkur fóru í síðustu viku rétt út fyrir
innsiglinguna og lögðu og fengu mjög
gott af þorski og ýsu, en yfirleitt höf-
um við ekki fengið ýsu á línuna eftir
páska,“ sagði Eiríkur.
Kjartan Viðarsson, útgerðarstjóri
hjá Vísi í Grindavík, tók í sama streng
varðandi aflabrögð. Hann sagði þau
hafa verið góð í vetur og þorskkvót-
inn væri langt kominn. Með maí-
mánuði breyttist sóknin og skipin
sæktu í keilu og löngu. Nánast öllum
afla skipa Vísis er landað í Grindavík
á þessum tíma ársins, en fyrirtækið
er einnig með starfsstöðvar á Þing-
eyri, Húsavík og Djúpavogi.
Áhyggjur vegna strandveiða
Eiríkur sagði að markaðir erlendis
væru alveg þokkalegir að því leytinu
að þeir tækju vel við. Hins vegar væri
verð á þorskafurðum almennt frekar
lágt í erlendri mynt ef meðaltal síð-
ustu tíu ára væri skoðað. Það væri
líka umhugsunarefni hversu mikið af
sjávarafurðum færi til Bretlands og
Suður-Evrópu, þar sem ýmsar blikur
væru á lofti.
„Því er ekki að neita að við höfum
áhyggjur af næsta ári,“ sagði Eiríkur.
„Með strandveiðunum er verið að
taka af þeim sem hafa atvinnu af út-
gerð og sjómennsku allt árið og af-
henda þeim sem eru í öðrum tilgangi
á sjó. Á næsta ári er fyrirsjáanlegur
enn frekari samdráttur hjá okkur
bæði í veiðum og vinnslu,“ sagði Ei-
ríkur.
Saxast á þorskkvótann
Mun meira hefur veiðst af löngu en áður Lítið framboð af öðru en ýsu á
kvótamarkaði Erlendir markaðir taka vel við en verðið undir meðallagi
Þegar tæpir fjórir mánuðir eru
eftir af fiskveiðiárinu eru aðeins
um 20% eftir af þorskkvótanum.
Um þetta leyti árs hefur sókn í
löngu oft hafist af krafti, en nú
bregður svo við að aðeins um
11% eru eftir af löngukvótanum.
Heildarstaða afla
Þorskur
Aflamark:
129.164
Afli t. aflamarks:
103.395
Hlutfall:
80%
Ýsa
Aflamark:
62.146
Afli t. aflamarks:
38.326
Hlutfall:
61,7%
Ufsi
Aflamark:
48.410
Afli t. aflamarks:
29.748
Hlutfall:
61,5%
Karfi
Aflamark:
50.121
Afli t. aflamarks:
42.836
Hlutfall:
85,5%
Langa
Aflamark:
5.897
Afli t. aflamarks:
5.222
Hlutfall:
88,7%
Keila
Aflamark:
5.136
Afli t. aflamarks:
3.498
Hlutfall:
68,1%
Steinbítur
Aflamark:
11.245
Afli t. aflamarks:
7.634
Hlutfall:
67,9%
Skötuselur
Aflamark:
2.463
Afli t. aflamarks:
2.250
Hlutfall:
91,3%
Grálúða
Aflamark:
12.763
Afli t. aflamarks:
7.329
Hlutfall:
57,4%
Skarkoli
Aflamark:
6.425
Afli t. aflamarks:
4.284
Hlutfall:
66,6%
Aflatölur í tonnum
LEIKSKÓLAPLÁSSUM í Reykja-
vík verður fjölgað svo hægt sé að
bjóða öllum börnum sem verða
tveggja ára á árinu leikskólavist í
haust. Var tillaga borgarstjóra þess
efnis samþykkt í borgarráði í gær.
Plássum verður fjölgað bæði í
borgarreknum og sjálfstætt starf-
andi leikskólum. 1400 börn hefja í
fyrsta sinn leikskólagöngu í Reykja-
vík í haust en aldrei hafa fleiri leik-
skólabörn fengið þjónustu í borginni
en nú.
Dagforeldrum fjölgar
Um 6.800 börn eru í leikskólum
borgarinnar auk þess sem allt að 800
börn þiggja þjónustu dagforeldra og
700 þjónustutryggingu. Dagfor-
eldrum hefur fjölgað um a.m.k. tutt-
ugu frá áramótum en efnt var til
réttindanámskeiðs með það að
markmiði að fjölga þeim þar sem
þörf hefur verið á.
Útgjöld til leikskólamála skv. fjár-
hagsáætlun 2010 eru um 7% hærri
að raungildi en á árinu 2006.
Plássin tryggð
Öllum tveggja ára börnum tryggð
leikskólavist í Reykjavík næsta haust
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í skóla Um 1.400 leikskólabörn
hefja skólagöngu sína í haust.
Yfir 20 handfærabátar hafa undanfarna daga landað á
Arnarstapa, en þeir koma þangað á vorin eins og far-
fuglarnir. Aflabrögð hafa verið góð og lönduðu sumir
minni bátanna tvisvar á dag fyrri hluta vikunnar, en í
gær var ekki eins gott veður til sjósóknar. Margir
bátanna koma frá Akranesi og Borgarnesi, en einnig
víðar að. Framundan eru strandveiðar og margir
þeirra sem síðustu daga hafa verið á handfæraveiðum
hafa verið að taka kvóta sinn áður en þær byrja. Mest
af aflanum sem landað er á Arnarstapa fer á markað.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Vorboðarnir komnir á Arnarstapa
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Listmunauppboð
í Galleríi Fold
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
fer fram mánudaginn 10. maí,
kl. 18.15 í Galleríi Fold,
á Rauðarárstíg
SvavarG
uðnason
Á uppboðinu er úrval góðra verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna
Verkin verða sýnd:
í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17, sunnudag 12–17 og mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
SKÝRSLA sem Háskólinn á Akur-
eyri vann fyrir starfshóp sem vinnur
að endurskoðun á fyrirkomulagi
fiskveiðistjórnunar hefur verið
kynnt í hópnum.
„Skuldastaða
sjávarútvegsins
almennt býður
ekki upp á það að
veiðiheimildir séu
innkallaðar og
þeim endur-
úthlutað gegn
gjaldi,“ sagði
Björn Valur Gíslason, þingmaður
VG og varaformaður starfshópsins, í
samtali við Fiskifréttir um niður-
stöður skýrslunnar.
Guðbjartur Hannesson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar og formaður
starfshópsins, sagði í gær að hann
myndi ekki ræða einstök atriði
skýrslunnar meðan hún væri til
meðferðar í starfshópnum. „Daði
Már Kristófersson á hagfræðideild
HÍ vann líka fyrir okkur skýrslu og
hún verður kynnt í starfshópnum á
föstudag. Við munum síðan fá rýni á
báðar þessar skýrslur og ræða þær í
hópnum. Fyrr en þeirri vinnu er lok-
ið eru þessar skýrslur ekki til opin-
berrar birtingar af minni hálfu,“
sagði Guðbjartur.
Spurður um skuldastöðu sjávar-
útvegs og túlkun Björns Vals á
niðurstöðum skýrslunnar sagði Guð-
bjartur: „Þessi skýrsla svarar þessu
ekki svona afdráttarlaust. Fyrir
liggur að skuldastaða sjávarútvegs
er hræðileg og það hefur legið fyrir
lengi. Það breytir ekki þeim hug-
myndum sem við höfum um
grundvallarbreytingar og staðfestir
kannski enn frekar hversu mik-
ilvægar þær eru.“
Skuldlítil fyrirtæki
þyldu endurúthlutun
Fram kemur í Fiskifréttum að
skýrsluhöfundar hafi kannað m.a.
skuldastöðu 20 kvótahæstu fyrir-
tækjanna. Niðurstaðan hafi verið sú
að 15% fyrirtækjanna séu svo illa
stödd að þeim verði ekki bjargað frá
gjaldþroti. Þá séu 45% fyrirtækj-
anna í erfiðri stöðu og þurfi aðstoð.
Þetta þýðir að 40% fyrirtækjanna
eiga að geta spjarað sig.
„Vissulega myndu skuldlítil fyrir-
tæki í góðum rekstri þola slíka
endurúthlutun en staðreyndin er sú
að innan við helmingur fyrirtækj-
anna er í þeirri stöðu. Það segir sig
sjálft að hin fyrirtækin standa ekki
undir frekari útgjöldum,“ er haft eft-
ir Birni Val. aij@mbl.is
Innköllun
erfið vegna
skuldastöðu
Formaður starfshóps
segir svör í skýrslu HA
ekki afdráttarlaus