Morgunblaðið - 07.05.2010, Page 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
STYRKTARFÉLAGIÐ Göngum
saman efnir til vorgöngu fyrir alla
fjölskylduna í Laugardalnum á
sunnudag nk. Lagt verður á stað
frá Skautahöllinni kl. 11 og gengið
um dalinn í um klukkustund.
Gangan er gjaldfrjáls en tekið
verður við framlögum í styrktar-
sjóð Göngum saman auk þess sem
skemmtilegur varningur verður
seldur fyrir og eftir göngu og renn-
ur andvirði sölunnar einnig í
styrktarsjóðinn.
Styrktarfélagið Göngum saman
hefur það að markmiði að styrkja
grunnrannsóknir á brjósta-
krabbameini og úthlutar til þess
myndarlegum styrkjum í október á
hverju ári.
Morgunblaðið/Skapti
Ganga Hressar konur á göngu.
Göngum saman
SPÆNSKIR dagar verða haldnir á
Blómatorginu í Kringlunni um
helgina, 8. og 9. maí. Þar verður
kynnt það helsta sem í boði er í
spænskri ferðamennsku, auk þess
sem spænsk menning, tónlist og
flamencodans verður áberandi.
Á spænskum dögum verða kynnt-
ir ýmsir ferðamöguleikar og marg-
vísleg skemmtun verður í boði fyrir
unga sem aldna.
Þá verður boðið upp á getrauna-
leik þar sem gestum er boðið að
svara nokkrum spurningum. Vinn-
ingar eru í boði fyrir heppna svar-
endur.
Ferðamálaráð Spánar stendur
fyrir kynningunni.
Spænskir dagar
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær
Benjamín Þór Þorgrímsson, 36 ára,
í tveggja ára fangelsi fyrir þrjár
líkamsárásir, þar á meðal árás, sem
sýnd var í fréttaskýringarþættinum
Kompási fyrir tveimur árum.
Rétturinn þyngdi dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur um tíu mánuði með
vísan til eldri dóms fyrir ofbeldis-
brot.
Ein líkamsárásin var sýnu alvar-
legust en Benjamín reyndi ítrekað
að sparka í höfuð manns þar sem
hann lá á jörðinni. Þá réðst hann á
annan mann, sneri hann í jörðina
og sparkaði í höfuð hans, með þeim
afleiðingum að hann hlaut brot í
vinstri augntóft og marðist.
Litið var til þess við ákvörðun
refsingar að um þrjár tilefnislausar
líkamsárásir var að ræða, og tvær
þeirra fólskulegar og hættulegar.
Tveggja ára fang-
elsi fyrir árásir
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
Sumarið hlýtur að vera komið. Knattspyrnu-
völlurinn sem blasir við út um gluggann minn
grænkar stöðugt og í gær sá ég mann kasta
spjóti. Er það ekki bara gert á sumrin?
Andapollurinn hefur verið mörgum þyrnir í
augum á síðustu árum því þessu skemmtilega
svæði neðan við Sundlaug Akureyrar hefur
ekki verið vel viðhaldið. Nú standa yfir tölu-
verðar framkvæmdir og vonandi gleðjast
menn og fuglar vegna þess í allt sumar.
Ólafur Jónsson, sem skipar annað sæti á
lista Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnar-
kosningarnar í vor, vill að íbúar bæjarins fái að
kjósa rafrænt um það hvort síki verði að veru-
leika í miðbænum eða ekki. Þetta kom fram í
máli Ólafs á hádegisfundi í kosningamiðstöð
sjálfstæðismanna í gær. Ólafur, sem er vara-
formaður skipulagsnefndar, segist leggja
þetta til vegna þess hve hugmyndin um síki í
nýju miðbæjarskipulagi sé umdeild.
Herbert Jónsson, heiðursfélagi í Þór, hefur
gengið samtals 100 km á hlaupabrautinni utan
um knattspyrnuvöll félagsins frá því í janúar.
Þar hefur hverjum sem er verið frjálst að
ganga eða hlaupa í vetur. Herbert heldur ná-
kvæmt bókhald um göngutúrana.
„Ég gekk fyrst alltaf inni í Boganum en nú
geng ég eingöngu hér úti og næ mér í ferskt
loft í leiðinni,“ segir Herbert á heimasíðu Þórs.
Fyrir hálfum öðrum áratug var settur gervilið-
ur í báðar mjaðmir Herberts og hann átti erfitt
með gang. „Fyrir fólk eins og mig er þetta frá-
bært,“ segir hann.
Hljómsveitin Nýdönsk heldur „kertaljósa-
tónleika“ á Græna hattinum annað kvöld. Þar
leikur sveitin úrval laga frá 25 ára ferli.
Kór Félags eldri borgara á Akureyri, sem
heitir því skemmtilega nafni Í fínu formi, held-
ur sína árlegu vortónleika í Glerárkirkju á
laugardaginn. Dagskráin hefst kl. 17.00 og að-
gangseyrir er 1.000 krónur. Ekki er tekið við
greiðslukortum. Söngstjóri er Petra Björk
Pálsdóttir og undirleikari Valmar Väljaots.
AKUREYRI
Spjótkast og söngur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Flott Svæðið við andapollinn verður fallegt.
afsláttur
af öllu!
15%
Skjólveggir • Parket • Miðstöðvarofnar • Útimálning • Gróðurhús
Leiktæki•Heitirpottar•Hurðir•Klæðningar•Útilegubúnaður•Gluggar
• Festingar • Útivistarfatnaður • Allar vörur í Blómavali og margt fleira
Sælureiturinn kemur inn á heimili landsins á næstu
dögum, þú getur einnig skoðað hann á www.husa.is
eða tryggt þér eintak í næstu verslun
Allar upplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur og myndavíxl.
Úrval getur verið misjafnt milli verslana og háð lagerstöðu á hverjum stað.
Hann er á
leiðinni til þín
130 síðna leiðarvísir
að þínum sælureit.
15% af öllum
vörum í Sælureit
15% af öllum
vörum í Blómavali
• allt pallaefni
• allar sláttuvélar • öll viðarvörn
• allar vörur í Blómavali
• öll verkfæri
• öll garðhús
• öll grill • öll garðverkfæri
• öll garðhúsgögn
• allur útivistarfatnaður • öll ljós• allar útileguvörur • öll reiðhjól
• allar flísar• allar skjólgirðingar
ÚTGÁFUHÁTÍÐ
aðeins 3 dagar eftir
Sælureitur 2010 kominn út