Morgunblaðið - 07.05.2010, Page 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
GENGI evrunnar hélt áfram að veikjast gagnvart
Bandaríkjadal í gær. Evran fór í 1,27 gagnvart daln-
um og hefur ekki verið veikari í 14 mánuði. Evr-
ópski seðlabankinn ákvað að halda stýrivöxtum í 1%
eins og við var búist en hins vegar var mikil eftir-
vænting um hvað Jean-Claude Trichet myndi segja
um viðbrögð bankans við skjálftavirkni á mörkuðum
vegna Grikklands á blaðamannafundi um ákvörð-
unina. Skemmst er frá því að segja að Trichet sagði
að engar líkur væru á greiðslufalli Grikklands og að
bankinn hefði ekki rætt um bein inngrip á skulda-
bréfamarkaði vegna hins mikla þrýstings sem hefur
verið á markaðnum með ríkisskuldabréf skuldsettra
evruríkja.
Skuldavandi grefur undan evru
Reuters
STUTT ...
● Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI
lækkaði um 0,1% í gær, í 5,1 milljarðs
króna viðskiptum. Vísitalan fyrir verð-
tryggð skuldabréf, GAMMAi: Verð-
tryggt, lækkaði um 0,2% í 2,2 milljarða
króna veltu og GAMMAxi: Óverðtryggt
hækkaði um 0,1% í viðskiptum fyrir 2,8
milljarða króna. Úrvalsvísitalan, OMXI6,
lækkaði um 1,26% í gær og nam veltan
á hlutabréfamarkaðinum 96 milljónum
króna. Gengi bréfa í Marel lækkaði um
2,26%, Össuri um 1,56% og bréf í
BankNordic hækkuðu um 0,63% í
verði.
Lítið fjör á hluta- og
skuldabréfamarkaði
Eftir Þórð Gunnarsson
thg@mbl.is
ÞÝSKI bankinn Landesbank Bad-
en-Württemberg (LBBW) hefur til-
kynnt fjármálaráðherra að langt
muni líða þar til íslenska ríkið njóti
trausts á ný meðal alþjóðlegra fjár-
málastofnana. Það sé meðal annars
vegna vinnubragða hins opinbera í
endurskipulagningu Byrs og Spari-
sjóðsins í Keflavík, en eignir beggja
sjóða hafa verið færðar á nýja
kennitölu. Erlendir kröfuhafar eru
sagðir telja furðu sæta að ríkið hafi
tekið yfir sjóðina tvo, í ljósi þess að
fáum dögum áður sagði í bréfi
stjórnvalda til Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins að endurskipulagningu
sjóðanna myndi ljúka innan
skamms.
Endurskipulagningaráætlun mun
hafa verið samþykkt í ágúst síðast-
liðnum af öllum kröfuhöfum. Þegar
ganga átti endanlega frá samkomu-
laginu í október setti ríkið ný skil-
yrði eiginfjárinnspýtingar, sem voru
ekki talin viðunandi. „Þau fólu í sér
nýjar og gjörbreyttar forsendur
varðandi afskriftir og endurgreiðslu
skulda,“ segir Arnar Þór Jónsson,
lögmaður þýsks banka sem átti
hagsmuna að gæta í Byr.
Fengu ekki að skoða skýrslu
Íslensk stjórnvöld fengu
Deutsche Bank til að vinna áreið-
anleikakönnun á sparisjóðunum. Að
sögn Arnars Þórs óskuðu erlendir
kröfuhafar eftir að sjá öll gögn máls-
ins til að taka upplýsta ákvörðun, en
fengu ekki. „Kröfuhafar komu ítrek-
að á framfæri áhyggjum sínum af
framgangi málsins við íslensk
stjórnvöld, en fátt var um svör.“
Ríkið rúið trausti
Landesbank Baden-Württemberg telur vinnubrögð íslenskra stjórnvalda við
endurskipulagningu sparisjóða ámælisverð Lýstu ítrekað áhyggjum sínum
» Kröfuhafar ósáttir
við vinnulag ríkisins
» Samkomulag hafði
náðst í október 2009
» Fengu ekki að skoða
áreiðanleikakönnun
Höfuðstöðvar LBBW í Stuttgart. Bankinn gagnrýnir íslenska ríkið harð-
lega fyrir vinnubrögð við endurskipulagningu Byrs og SPKef.
! "
"
# "
$ % & ' '
$
()$( $ *!
+,-./0
+10.21
+,3./+
,,.4-
,+.41,
+2.13/
++/./0
+.054/
+1+.,2
+23.05
+,-.-3
+13.+2
+,3.-5
,,.+3/
,+.+/3
+2.11/
++/.-/
+.053/
+1+.-0
+23.-0
,,+./-,+
+,1.+/
+13.20
+,/.,0
,,.,+
,+.,+2
+5.43/
++2.+5
+.05-/
+1,.3
+2/.,1
FLESTIR stjórnendur 300 stærstu
fyrirtækja landsins nefndu
66°Norður þegar þeir voru spurðir
um hvaða íslenska vörumerki þeim
dytti fyrst í hug. Þetta kemur fram
í skoðanakönnun sem MMR hefur
gert fyrir Viðskiptablaðið. Samtals
voru spurningarnar lagðar fyrir
354 stjórnendur í 300 stærstu fyrir-
tækjum landsins. Af þeim svaraði
201 og svarhlutfall var því 56,6%.
Icelandair var nefnt næstoftast
en tvö efstu fyrirtækin skáru sig
nokkuð úr. Þar á eftir komu Bónus,
Lýsi, Sláturfélag
Suðurlands og
Marel.
„Ég er mjög
stoltur af þessu.
Við höfum tengt
vörumerki okkar
mikið við útivist
og hreyfingu
sem og náttúru
landsins í mark-
aðssetningu okk-
ar,“ segir Halldór Gunnar Eyjólfs-
son, forstjóri 66°Norður.
Halldór G.
Eyjólfsson
66°Norður þekktasta vöru-
merkið meðal stjórnenda
sem kemur á óvart, hefði mun alvar-
legri áhrif á traust fjárfesta á Ís-
landi.
Á þinginu ræddi Jón Ásbergsson,
framkvæmdastjóri Útflutningsráðs,
um nýja stofnun, Íslandsstofu, sem
taka á við af Útflutningsráði.
Verkefni Íslandsstofu verða viða-
meiri en verkefni Útflutningsráðs
eru nú. Í fyrsta lagi er Íslandsstofu
ætlað að setja skýran ramma utan
um ímyndar- og kynningarmál Ís-
lands þar sem aðilar í útflutningi,
ferðaþjónustu, fjármálastarfsemi og
þekkingariðnaði koma til samstarfs
við hið opinbera um að efla og standa
vörð um orðspor Íslands erlendis. Í
öðru lagi verður markaðs- og kynn-
ingardeild Ferðamálastofu rekin
innan vébanda Íslandsstofu sem mun
fá það lögbundna hlutverk með
þessu frumvarpi að laða til landsins
erlenda ferðamenn.
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
STÖÐUGLEIKI
í skattamálum
skiptir meira máli
en nákvæmlega
hver skattprós-
entan er. Kom
þetta fram í máli
Eyþórs Arnalds,
framkvæmda-
stjóra Strokks
Energy á Út-
flutningsþingi Útflutningsráðs í gær.
Sagði hann að það sem ynni með
rekstri útflutningsfyrirtækja á Ís-
landi væri annars vegar veik króna
og hins vegar gott starfsfólk. Á hinn
bóginn sagði hann að óvissa í skatta-
málum gerði rekstrarumhverfið erf-
iðara sem og sveiflur í gengi krón-
unnar. Sagði hann að nýr skattur,
Varar við áhrifum óvæntra skatta
Eyþór Arnalds
Stöðugleiki í
skattamálum