Morgunblaðið - 07.05.2010, Side 17
Fréttir 17ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
LJÓST virtist í gærkvöldi að enginn stjórn-
málaflokkur fengi hreinan meirihluta á þingi í
kosningunum sem fóru fram í Bretlandi. Lág-
marksmeirihluti er 326 sæti og Íhaldsflokki Dav-
ids Camerons var spáð 305 þingsætum í út-
gönguspá breska ríkisútvarpsins, BBC. Áratugir
eru síðan þessi staða kom síðast upp í landinu en
venjulega tryggja einmenningskjördæmin og
kosningakerfi, þar sem sá frambjóðandi sem fær
flest atkvæði í kjördæminu hreppir þingsætið, að
einn flokkur fái meirihluta þingsætanna 650.
Kjörsókn var mun meiri en þegar síðast var
kosið og talið að hún gæti farið yfir 70% en kvart-
að var yfir því að talning gengi víða hægt. Búist
var við lokatölum einhvern tíma eftir miðnættið
en þegar voru komnar tölur úr nokkrum kjör-
dæmum er blaðið fór í prentun. Aðeins eru birtar
lokatölur úr kjördæmunum en ekkert sagt um
stöðuna meðan talningin fer fram.
Frjálslyndir demókratar Nicks Cleggs
fengu samkvæmt útgönguspám einungis 61
þingsæti sem er mun minna en kannanir höfðu
bent til og jafnvel færri sæti en flokkurinn
hafði eftir kosningarnar 2005. Verka-
mannaflokkur Gordons Browns forsætisráð-
herra fékk samkvæmt spánni 255 þingsæti og
aðrir flokkar alls 29 þingsæti. Gangi út-
gönguspár eftir er komin upp sú óvænta staða
að Verkamannaflokkurinn og Frjálslyndir
demókratar geta ekki myndað saman meiri-
hlutastjórn en Íhaldsmenn geta myndað stjórn
með öðrum hvorum hinna stóru flokkanna.
Einnig er hugsanlegt að Cameron leiti eftir
stuðningi hjá norðurírskum sambandssinnum
ef þingsætafjöldi þeirra nægir til að þingmeiri-
hluti verði fyrir hendi. Íhaldsflokkurinn gæti
myndað minnihlutastjórn, fordæmi eru fyrir
þeirri leið. En verði hún farin er talið líklegt að
fljótlega verði aftur boðað til kosninga þar sem
hún yrði völt í sessi og verkefnin sem blasa við
eru ógnvægileg, fyrst og fremst vegna skulda-
stöðu ríkisins.
Brown áfram til bráðabirgða?
Ekki eru ákveðnar reglur til um hvað skuli
gera nái enginn flokkur meirihluta í kosning-
unum en reynt að fara eftir hefðum. Undir
venjulegum kringumstæðum fara stjórn-
arskipti fram um leið og úrslitin eru ljós. Þá
hefði Cameron flutt inn í bústað forsætisráð-
herra, Downingstræti 10, þegar í dag. En þurfi
að mynda samsteypustjórn mun Brown sitja
áfram þar til hún hefur verið mynduð.
Mikil umræða hefur verið um kosningafyr-
irkomulagið í Bretlandi fyrir þessar kosningar
og er ljóst að henni mun ekki linna að þeim
loknum. Sætafjöldi flokka á þingi er vegna ein-
menningskjörsdæmanna iðulega ekki í neinu
samhengi við kjörfylgið. Þetta hefur sér-
staklega átt við um Frjálslynda demókrata.
Íhaldsflokkur Camerons í lykilstöðu
Útgönguspár bentu þó til þess að enginn fengi hreinan meirihluta
Brown og Clegg fá líklega of lítið fylgi til að mynda saman ríkisstjórn
Meðaltal síðustu kannana
Verkamannaflokkurinn
Fylgi: Áætl.þingm.
28% fjöldi: 257 sæti
Íhaldsflokkurinn
Fylgi: Áætl. þingm.
36% fjöldi: 284 sæti
Frjálslyndir demókratar
Fylgi: Áætl. þingm.
27% fjöldi: 80 sæti
Öðrum flokkum er spáð alls 29 sætum.
[Síðustu kosningar 2005: 36,1% fylgi/349 sæti]
[Síðustu kosningar 2005: 33,2% fylgi/210 sæti]
[Síðustu kosningar 2005: 22,6% fylgi/62 sæti]
BRETAR eru
þekktir fyrir að
veðja um allt
milli himins og
jarðar. Hinn
mælski Nick
Clegg var nær
óþekktur meðal
almennings fyrir
kosningarnar.
En honum vafðist tunga um tönn
þegar blaðamaður The Times
spurði hvort hann hefði ekki reynt
að hagnast með því að veðja á eigin
sigur. „Já af hverju gerði ég það
ekki?“ sagði Clegg loks.
Veðmálafyrirtæki sem kom sér
upp útibúi við kjörstaðinn þar sem
David Cameron greiddi atkvæði
gerði ráð fyrir að líkurnar á að
hann yrði forsætisráðherra væru
fimm sinnum meiri en að hann
myndi ekki hreppa hnossið.
Veðjað sem
aldrei fyrr um
sigurvegarann
ÞINGKOSN-
INGAR í ríki með
um 44 milljónir
atkvæðisbærra
karla og kvenna
krefjast mikillar
skipulagningar.
Eitt sinn kom
upp eldur á ein-
um kjörstaðnum
og var þá gripið til þess ráðs að
hafa kjörstaðinn í farang-
ursgeymslu bíls á staðnum. Ræst-
ingafólk hafði eitt sinn í ógáti
fleygt öllum kössunum með kjör-
seðlum og varð að sækja nýjar
birgðir í skyndingu um morguninn.
Óvæntar uppá-
komur geta truflað
BRESKIR kjós-
endur verða að
fara að settum
reglum, mega
t.d. ekki skrifa
dónaleg skilaboð
til þingmanna á
seðilinn. Taka
má hundinn með
í kjörklefann að
því tilskildu að hann trufli ekki
kosninguna. Bannað er að stunda
áróður á kjörstað.
En er í lagi að mæta slompaður?
Já, en starfsmenn mega þá kanna
með nokkrum spurningum hvort
umræddur kjósandi teljist hæfur til
að greiða atkvæði.
Í lagi að kjósa dálít-
ið slompaður
SARAH Brown og eiginmaðurinn, Gordon
Brown forsætisráðherra, á leið á kjörstað í
North Queensferry í Fife í Skotlandi í gær. Ekki
var talið líklegt að Brown missti sjálfur þingsæt-
ið, allar kannanir bentu hins vegar til þess að
Verkamannaflokkurinn fengi sína verstu út-
komu í marga áratugi. En kosningakerfið olli því
að ekki var samt hægt að útiloka að hann fengi
fleiri þingsæti en Íhaldsflokkurinn.
Reuters
Á VIT ÓVISSUNNAR
Gordon Brown er 59 ára gamall
og var orðinn 49 ára þegar hann
giftist; eiginkonan er Sarah
Brown og þau eiga tvo syni. Eins
og fleiri ráðamenn hefur hann
verið spurður mikið um smekk sinn og áhuga-
mál. Hefur Brown gengist við mikilli aðdáun
sinni á Simon Cowell og raunveruleika-
sjónvarpi, einnig að hann dái Bítlana og Frank
Sinatra. Vitað er að ráðherrann er æstur fót-
boltafíkill og fylgist vel með leikjum í enska
boltanum en uppáhaldsliðið er sjálfsögðu
skoskt, Raith Rovers. Brown hefur oft minnt
fólk á að sjálfur sé hann ekki af ríkum kominn
og hafi gengið í venjulega ríkisskóla, ekki
einkaskóla.
Ruðningur og lestur
Prestsonurinn frá Skotlandi er sagður einhver
mesti lestrarhestur sem gegnt hefur embætti
forsætisráðherra Breta, hann var afburðanem-
andi, hóf háskólanám í Edinborg aðeins 16 ára
gamall og lauk doktorsprófi í sagnfræði. Hann
lék áður ruðningsbolta og fékk eitt sinn spark
sem varð til þess að hann missti sjón á vinstra
auga og tókst naumlega að bjarga hinu auganu.
Verkamannaflokkurinn
David Cameron verður seint tal-
inn af alþýðlegum ættum, faðir
hans er auðugur verðbréfasali
og fjölskyldan er talin eiga tug-
milljónir punda. Meðal forfeðra
hans voru Vilhjálmur fjórði
Bretakonungur, kátur og kærulaus sjóliðsfor-
ingi sem var við völd snemma á 19. öld, og hjá-
kona hans, Dorothea Jordan. Eiginkona Came-
rons er Samantha Gwendoline, dóttir
aðalsmannsins sir Reginalds Sheffields, og börn-
in eru þrjú. Fjórða barnið, Ivan, var mjög fatl-
aður drengur sem lést í fyrra, sex ára gamall.
Aðdáandi grínþátta
Cameron gekk í hinn fræga og dýra Eton-
menntaskóla sem fóstrað hefur fjölda breskra
leiðtoga og lauk síðar námi í heimspeki og hag-
fræði við Oxford-háskóla. Þar er hann sagður
hafa stundað skemmtanalífið óspart. Cameron
hefur skýrt frá því að hann hafi gaman af
spennuþáttum eins og Midsomer Murders og
grínþáttunum Shameless, einnig dái hann sveit-
ir eins og Radiohead og söngkonuna Lily Allen.
Hann mun vera fremur hikandi stuðningsmaður
Aston Villa.
Íhaldsflokkurinn
Nicholas Clegg er 43 ára gamall
eins og keppinauturinn Came-
ron og tók við leiðtogaembætt-
inu í flokki Frjálslyndra demó-
krata 2007. Móðir hans er
hollensk og faðirinn er efnaður
bankamaður, að hluta til af rússneskum aðals-
ættum. Sonurinn gekk í dýran einkaskóla,
Westminster, í London en síðar lauk Clegg
námi í mannfræði í Cambridge þar sem hann
þótti einnig efnilegur leikari. Eiginkona
Cleggs er spænsk, Miriam Gonzalez Durantez,
og eiga þau þrjú börn sem öll eru kaþólsk eins
og móðirin. Sjálfur er Clegg yfirlýstur trúleys-
ingi en stundar innhverfa íhugun.
Tungumálamaður og matgæðingur
Clegg stundaði ýmis störf, var m.a. bankamað-
ur í Helsinki og lærði blaðamennsku undir
handleiðslu Christopher Hitchens á vinstririt-
inu Nation í New York. Clegg er hrifinn af
matgæðingaþættinum Come Dine With Me,
hlustar mest á klassíska tónlist og stundar
ákaft skíði og tennis. Hann er tungumálagarp-
ur, talar m.a. hollensku, frönsku, þýsku og
spænsku.
Frjálslyndir demókratar
Bresku
þingkosningarnar