Morgunblaðið - 07.05.2010, Qupperneq 29
Dagbók 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
Sudoku
Frumstig
7 8 1
6 4 8 3 5
1
9 5
8 4 6
4 3 5 9
5 6
9 4
1 3 9 7
8 6 9
4 6
9 2 4
3 7 8 1
3 8 7
4 2 6 3
6
6 9 1
2 7 8 4
7 3
9 5
5 8 4
7 3 1
6 2
2 1
1 9 7
4 3 7
8 3 5
6 1 9 3 8 7 5 2 4
2 3 5 1 4 9 6 8 7
4 7 8 6 2 5 3 1 9
8 2 4 9 1 3 7 6 5
7 6 1 8 5 4 2 9 3
9 5 3 7 6 2 8 4 1
3 8 2 4 7 1 9 5 6
5 4 7 2 9 6 1 3 8
1 9 6 5 3 8 4 7 2
4 8 2 3 6 5 7 1 9
6 9 3 1 2 7 4 8 5
7 1 5 8 4 9 6 2 3
1 6 4 9 3 2 8 5 7
3 2 7 5 8 1 9 6 4
8 5 9 4 7 6 1 3 2
9 3 1 7 5 8 2 4 6
5 7 6 2 1 4 3 9 8
2 4 8 6 9 3 5 7 1
2 4 7 5 1 8 6 3 9
6 3 5 2 7 9 8 4 1
9 8 1 4 3 6 7 5 2
3 6 8 7 5 1 9 2 4
5 9 4 6 2 3 1 8 7
7 1 2 8 9 4 3 6 5
4 7 3 1 6 2 5 9 8
1 2 6 9 8 5 4 7 3
8 5 9 3 4 7 2 1 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 7. maí,
127. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í sam-
anburði við þá dýrð, sem oss mun op-
inberast. (Rm. 8, 18.)
Haft hefur verið á orði að furðu-fuglar stjórni landi og þjóð.
Víkverji kannaði málið nánar og
skoðaði það út frá öðru sjónarhorni
en gengur og gerist í þessari um-
ræðu.
x x x
Ávorin lifnar landið gjarnan við oger það ekki síst fuglunum að
þakka. Útrásarfuglarnir koma frá
fjarlægari löndum og segja hinum
heimakæru tíðindi frá hinum stóra
heimi, eða það skyldi maður ætla.
Sumir afla fæðu úr sjó og þrífast helst
hvergi nema á sjó. Aðrir eru þurr-
lendis- eða landfuglar. Til eru flæk-
ingsfuglar eða hrakningsfuglar.
Fuglar skipta reglulega um fjaðrir,
villa jafnvel á sér heimildir. Sumir
fuglar eru í sárum á ákveðnum tíma
árs og eru þá ófleygir. Þá eru þeir
gjarnan í felubúningi enda í erfið-
leikum með að bjarga sér, hvað þá
öðrum. Fuglar helga sér land, óðal,
sumir eru sumargestir og aðrir vetr-
argestir.
x x x
Nöfn fugla eru mörg og mismun-andi. Seðlabankastjóri hefur
verið í sviðsljósinu undanfarna daga
og engum dylst að Már er mávur.
Svanurinn leynir sér ekki í Svan-
dísi og álftin í Álfheiði. Assa er Össur
í fleirtölu, kría og Kristján eru af
sama meiði og Árni og örn smellpassa
eins og flís við rass. Steindepill kemur
upp í hugann um leið og Steingrímur,
jaðrakan um leið og Jóhanna og jafn-
vel snæugla ef út í það er farið. Katr-
ín hljómar eins og carduelis spinus
eða barrfinka og þess má geta að kaja
á sænsku er dvergkráka. Jón getur
þess vegna verið calidris maritima,
Ragna rita og Gylfi cepphus grylle.
Þegar fuglarnir koma saman heyrist í
þeim garg, org er þeirra samnefnari.
x x x
Þessi óvísindalega athugun Vík-verja styður ekki kenninguna
um furðufuglana í valdastólunum.
Nefndir fuglar eru bara venjulegir
fuglar, þó sumir séu staðfuglar og
aðrir farfuglar eða útrásarfuglar ef út
í það er farið. En fuglar eru það engu
að síður. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 tölum, 4 fær, 7
kvendýrið, 8 lagarmál, 9
munir, 11 kyrrir, 13 döp-
ur, 14 hélt, 15 fíkniefni,
17 nöldur, 20 skelfing,
22 sjóferð, 23 unglings-
árin, 24 mannsnafn, 25
geta neytt.
Lóðrétt | 1 merkur, 2
ginna, 3 hönd, 4 hæð, 5
snauð, 6 byggt, 10 hug-
rökk, 12 hlaup, 13 títt,
15 líta, 16 byrðingurinn,
18 nói, 19 toppa, 20 hug-
arburður, 21 gnótt.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hörmungar, 8 sekks, 9 góðan, 10 kol, 11 kerfi,
13 innar, 15 hross, 18 hirta, 21 val, 22 ramma, 23 arfur,
24 hrakfarar.
Lóðrétt: 2 öskur, 3 miski, 4 nagli, 5 auðan, 6 ósek, 7
snar, 12 fis, 14 nei, 15 harm, 16 ormur, 17 svark, 18
hlaða, 19 rifja, 20 akra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 e6 5.
Bf4 Bd6 6. Bg3 O-O 7. c5 Bc7 8. e3 He8
9. Bd3 Rbd7 10. O-O Bxg3 11. hxg3 e5
12. Bf5 e4 13. Bxd7 Rxd7 14. Rd2 Rf8
15. Re2 Bg4 16. He1 He6 17. f3 exf3 18.
gxf3 Bh5 19. Rf4 Hh6 20. Kf2 Re6 21.
Rxh5 Hxh5 22. Hh1 Hxh1 23. Dxh1
Df6 24. Dh4 Dg6 25. Dh1 He8 26. f4
Dd3 27. Rb3
Staðan kom upp á Skákmóti öðlinga
sem fer senn að ljúka í húsakynnum
Taflfélags Reykjavíkur. Loftur H.
Jónsson (1510) hafði svart gegn Að-
alsteini Thorarensen (1741). 27…
Rxf4! þessi leikur dugar til sigurs en
27… Rxd4 hefði verið enn betri leikur.
28. He1 Dc2+ 29. Kf3 De4+ og hvítur
gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur S. Hermannsson| ritstjorn@mbl.is
Í felulitum
Norður
♠93
♥72
♦Á1097632
♣K10
Vestur Austur
♠ÁD62 ♠874
♥DG10 ♥9865
♦KG4 ♦85
♣742 ♣G986
Suður
♠KG105
♥ÁK43
♦D
♣ÁD53
Suður spilar 3Gr. Útspil ♥D.
Brids er stundum eins og að horfa á
kvikmyndir af dýrum í felulitum í skógi.
Dýrin virðast ósýnileg en skyndilega
hreyfa þau sig örlítið og blasa þá við.
Þetta spil kom fyrir í landsleik Svía
og Breta á heimsmeistaramóti. Við
bæði borð opnaði vestur, norður stökk í
3 tígla og suður lauk sögnum með 3
gröndum. Við bæði borð drap suður út-
spilið með ás og spilaði ♦D. Við annað
borðið lagði vestur kónginn á og sagn-
hafi fékk 11 slagi.
Við hitt borðið lét vestur lítinn tígul.
Sagnhafi átti slaginn á drottninguna og
spilaði næst laufi á 10 en austur átti
gosann og sagnhafi gaf 5 slagi.
Það var ekki fyrr en síðar að dýrið
hreyfði sig og sagnhafi sá að eftir að
♦D hélt slag gat hann spilað spaða á
níuna í borði og tryggt sér þannig 9
slagi.
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú leitar lausnar á vandamáli en
finnur hana ekki því þú ert of ákafur/
áköf. Fullt af fólki lítur upp til þín, vissir
þú það?
(20. apríl - 20. maí)
Naut Áður en þú setur afrek einhvers
annars á stall skaltu hugleiða þín eigin.
Þú ert klárari en þú heldur. Reyndu að
muna það næst þegar neikvæðar hugs-
anir sækja á.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Sýndu sérstaka varúð í umferð-
inni, hvort sem þú ekur, gengur eða hjól-
ar. Merkilegt hvað örlitlar tilfæringar á
húsgögnunum geta breytt miklu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þinn helsti bandamaður þarfnast
athygli þinnar. Getur maður neytt sjálfan
sig til að elska einhvern sem maður elsk-
ar ekki? Prófaðu það í dag. Allt fé-
lagsstarf gengur sem smurt.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Eirðarleysi og stefnuleysi gerir vart
við sig í dag. Mundu bara að sönn leit
beinist inn á við. Passaðu að hvílast nóg.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er smá misræmi í því hvernig
þú sérð þig og hvaða augum allir aðrir í
heiminum líta þig. Hikaðu ekki við að
leita hjálpar hjá vinum þínum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ekki halda að með því að eiga meiri
peninga verði líf þitt sveipað dýrðarljóma.
Lærðu að gefa eftir og sleppa, því þó það
sé erfitt er það undirstaða áframhaldandi
kynna.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú kannt að fá tækifæri til að
ferðast í dag. Ef þú þarft að leggja spilin
á borðið skaltu gera það kurteislega.
Vertu viðbúin/n breytingum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú gætir þurft að annast ein-
hvern sem þarf á hjálp þinni að halda.
Það er fyrir bestu að fyrirgefa þó erfitt
sé.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þér finnst að þér sótt og þér er
skapi næst að bregðast við af fullri hörku.
Kannski færðu tækifæri til þess að jafna
ágreining við einhvern í fjölskyldunni.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er einhver losarabragur á
þér og þú gætir þess ekki nógu vel að
hafa hlutina á hreinu svo ekki komi til
vandræða þín vegna.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þegar ástvinir taka ábyrgðar-
hlutverk sín ekki alvarlega, ferðu í varn-
arstöðu. Bentu á þetta í stað þess að
þegja þunnu hljóði.
7. maí 1940
Ríkisráð Íslands hélt fyrsta
fund sinn. Þar voru lagasetn-
ingar Alþingis staðfestar af
innlendum valdhöfum í fyrsta
sinn um aldir. Í upphafi var
staðfestur úrskurður um með-
ferð konungsvalds.
7. maí 1957
Helen Keller kom til landsins í
nokkurra daga heimsókn til
að „hvetja blinda og mállausa
og styðja og örva þá“ eins og
sagði í Morgunblaðinu. Sjálf
var hún blind og heyrnarlaus
frá barnæsku og hlaut heims-
frægð fyrir dugnað sinn og
baráttu fyrir rétti blindra.
7. maí 1978
Jarðgöngin á Oddsskarði voru
vígð. Þau eru 630 metra löng
og í 630 metra hæð á veginum
milli Eskifjarðar og Neskaup-
staðar.
7. maí 1995
Heimsmeistarakeppnin í
handknattleik hófst í Laug-
ardalshöll. Frakkar urðu
heimsmeistarar en Íslend-
ingar lentu í 13.-16. sæti.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Nadia Axelsdóttir og Ísabella Rán
Bjarnadóttir héldu tombólu á Sel-
fossi og söfnuðu 2.546 krónum sem
þær gáfu Rauða krossinum.
Hlutavelta
„ÞETTA leggst bara vel í mig og ég er orðinn
mjög spenntur,“ segir Erling Ó. Aðalsteinsson,
ljósmyndari og kennari, sem fagnar fimmtugs-
afmæli sínu í dag. „Mér hefur verið sagt að næsti
áratugur sé alveg frábær svo þetta er bara til-
hlökkunarefni,“ bætir hann við.
Erling ætlar að taka lífinu með ró á sjálfan af-
mælisdaginn og eyða deginum með fjölskyldunni.
Svo verður tekið á því á morgun, að sögn hans.
Annað kvöld heldur hann veglega upp á afmælið
og býður vinum og kunningjum til afmælisveislu.
„Ég ætla að halda veislu og ball í sal Akoges-
félagsins í Lágmúla á laugardagskvöldið. Er búinn að fá hljómsveit til
að spila í veislunni og hef boðið um 150 manns,“ segir hann. Erling er
mikill stuðningsmaður KR og æfir knattspyrnu með félögum sínum í
KR. KR-ingar verða því áreiðanlega áberandi í hópi veislugesta, að
sögn hans. „Þarna verða margir strákar sem ég hef spilað með og er
enn að spila með í old boys. Ég á líka von á að þarna komi saman ljós-
myndarar og kennarar auk að sjálfsögðu fjölskyldunnar.“ Erling rek-
ur ásamt sambýliskonu sinni Ljósmyndastofu Erlings og er einnig
kennari í Austurbæjarskóla. omfr@mbl.is
Erling Ó. Aðalsteinsson er 50 ára í dag
Blæs til veislu og dansleiks
Nýirborgarar
Akureyri Ármann Tumi
fæddist 1. janúar kl. 15.29.
Hann vó 2,920 g og var 52
cm langur. Foreldrar
hans eru Konný Bjargey
Benediktsdóttir og Bjarki
Ármann Oddsson.
Reykjavík Stefanía Sig-
urðardóttir og Erlendur
Óli Guðmundsson eign-
uðust dreng 14. janúar kl.
17.13. Hann vó 3.665 g og
var 50 cm langur.
Bandaríkin Jasmin Asana
fæddist 16. apríl kl. 15.49.
Hún vó 3,234 g og var 53
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Anna Elisabet
Hjartardottir og Avery
Tremayne Dixon.