Morgunblaðið - 07.05.2010, Síða 34
Snillingur Andy Kaufman setti á svið margra mánaða blóðuga baráttu við
Jerry Lawler, vinsælan fjölbragðaglímumann úr Suðurríkjunum.
Bestu brandararnir eru þeir,sem enginn skilur nemasögumaðurinn. Andy heit-
inn Kaufman var frumkvöðull í slík-
um bröndurum. Hann plataði fólk
með því að setja á svið atburðarás,
sem stundum tók marga mánuði
eða ár – gerði sjálfan sig að annarri
af tveimur aðalpersónum leikrits-
ins.
Hin persónan var áhorfandinn,sem taldi sig vera áhorfanda
en var í rauninni þátttakandi í
brandaranum. Andy hló eins og
brjálæðingur að viðbrögðunum,
þegar hann fór niðrandi orðum um
íbúa Suðurríkja Bandaríkjanna og
gaf þeim leiðbeiningar um það
hvernig ætti að nota salern-
ispappír. Snillingurinn hló í ein-
rúmi.
Margir kynnu að líta svo á, aðþarna hafi reynt mjög á skil-
greininguna á brandara. Reyndar
má spyrja sig hvort praktískur
brandari, sem enginn veit að er
praktískur brandari nema sá sem
hann segir, sé brandari yfirhöfuð.
Er nóg að einn hlæi? Hversu marga
hlæjendur þarf til að brandari verði
brandari? Þurfa þátttakendur í
brandara að vita að þeir séu þátt-
takendur í brandara? Andy var
sama. Hann bara hló.
Í raun er um að ræða ákveðnagrundvallarspurningu, um fé-
lagslegt eðli manneskjunnar. Flest-
ir hafa óstjórnandi þörf fyrir sam-
skipti við annað fólk. Þeim finnst til
að mynda, í þessu samhengi, lítið
vera varið í brandara sem enginn
skilur nema þeir sjálfir. Afskaplega
fáir eru það miklir einherjar í eðli
sínu, að þeim nægi að hlæja hrossa-
hlátri, einir, að eigin sviðsettum
leikritum, sem enginn annar veit að
eru leikrit. Slíkir menn eru ekki
„eðlilegir“.
Líklega er sá ráðuneytisstjóri tilað mynda varla til, sem væri
til í að halda tilfinningaþrungna
ræðu fyrir starfsmenn ráðuneyt-
isins á mánudagsmorgni, þar sem
hann lýsti því fyrir vinnufélögunum
að hann ætti í mikilli innri baráttu
vegna munablætis – sérstaklega
væru farsímar ómótstæðilega kyn-
þokkafullir – og halda svo inn á
skrifstofu sína og hefja störf eins
og ekkert hefði í skorist. Ekki segja
neinum frá brandaranum.
Þegar allt kemur til alls er þóerfitt að fullyrða, að víðs vegar
um þjóðfélagið séu ekki ein-
staklingar að gera grín að manni á
nákvæmlega þennan hátt. Nógu
mikið er víst um skemmtilega kar-
aktera hér og þar. Kannski eru
praktísku brandararnir á Íslandi
317.630 talsins og 80,67 ár að með-
allengd? ivarpall@mbl.is
Kannski erum við öll brandarar
AF LISTUM
Ívar Páll Jónsson
» Afskaplega fáir eruþað miklir einherjar í
eðli sínu, að þeim nægi
að hlæja hrossahlátri,
einir, að eigin sviðsett-
um leikritum, sem eng-
inn annar veit að eru
leikrit.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Sími 551 9000
The Back-Up Plan kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ
Crazy Heart kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ
Loftkastalinn sem hrundi kl. 6 - 9 B.i.14 ára
I Love you Phillip Morris kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i.12 ára
She‘s out of my league kl. 6 - 8 B.i. 12 ára
The spy next door kl. 6 LEYFÐ
The Crazies kl. 8 B.i. 16 ára
Legion kl. 10 B.i. 16 ára
Daybreakers kl. 10 B.i. 16 ára
Fantastic Mr. Fox ísl. texti kl. 6 LEYFÐ
Nowhere Boy ísl. texti kl. 6 B.i.10 ára
The Living Matrix ísl. texti kl. 6 LEYFÐ
Food, Inc. ísl. texti kl. 6 LEYFÐ
Moon ísl. texti kl. 8 B.i.10 ára
The Young Victoria ísl. texti kl. 8 B.i.12 ára
Imaginarium of Dr. P ísl. texti kl. 8 - 10:15 B.i.12 ára
Un Prophéte enskur texti kl. 9 B.i.16 ára
Trash Humpers ísl. texti kl. 10 B.i.18 ára
Ondine ísl. texti kl. 10 B.i.12 ára
HHHHH
- SV, Mbl
HHHHH
- SV, Mbl
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
12 VINSÆLUSTU MYNDIR BÍÓDAGA
SÝNDAR ÁFRAM Í ÖRFÁ DAGA
SÝND BORGARBÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
sum stefnumót
enda með hvelli
SÝND Í SMÁRABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓ
Bráðske
mmtileg
gaman
mynd
í anda A
merican
Pie.
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI
HHHH
- MM, Bíófilman.is
HHH
- TV, Kvikmyndir.is
0 stjörnur
HHHH
- T.V, Kvikmyndir.is
HHH
- T.V, Kvikmyndir.is
www.graenaljosid.is
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m