Morgunblaðið - 07.05.2010, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
Frekar var illa mætt á Tí-brártónleikum Salarins áþriðjudag eða aðeins um40 manns. Mátti e.t.v.
um kenna ríkjandi efnahags-
ástandi samfara framboði Listahá-
tíðar. Smærri en hljómmeiri salur
hefði að líkindum komið að betra
haldi. Einkum klarínettinu, er
þarf á meiri endurómi að halda en
píanóið; sérstaklega á efsta tón-
sviði er átti til að verka svolítið
skerandi framan af í fremsta
hljómlistarhúsi Kópavogsbæjar.
Að öðru leyti var margt
skemmtilegt áheyrnar í flutningi
Ingólfs Vilhjálmssonar og kata-
lónska píanistans Lluïsu Espigolé.
Ingólfur er þegar kunnur fyrir
ekki sízt líflega túlkun nútíma-
verka á vegum m.a. Atonal Fut-
ure/Njútons, adapters o.fl., og
veitti að þessu sinni hlustendum
klassískari viðmiðun í verkefnavali
en oft áður. Fyrst með hinu al-
kunna Fantasíustykki Schumanns
Op. 73 (1849) er þeir félagar fluttu
af yfirveguðu öryggi.
Fyrra verk hins „þýzkuskotna
Ítala“ Busonis (1866-1924), sex-
þætt Svíta Op. 10 frá 1878, hreif
mann að vísu ekki alveg upp úr
skónum; frekar gamaldags smíð
fyrir sinn tíma og varla ýkja inn-
blásin, auk þess sem klarínettleik-
urinn virtist svolítið loppinn í
hraðarunum líkt og blaðið svaraði
ekki nógu vel – fyrir utan stund-
um heldur harðan hljómakorðuleik
úr píanóinu.
Þeir agnúar hurfu þó að mestu
eftir hlé í nýklassísku verki Stra-
vinskíjs án undirleiks frá 1919,
Þrem einleiksstykkjum, er neist-
aði af smitandi kátínu og fjöri.
Seinna Busoniverkið kom þar á
eftir, Elegía í Es (1920) og útvíkk-
aði tónalt hljómamálið á allt að
Prokofjevskan hátt í glimrandi
samleik. Hápunkturinn að mínu
viti var þó Fjögur stykki Albans
Bergs Op. 5 frá 1913, enda auðugt
af jafnt drama og dulúð sem gáska
og geig, og samstillt innlifun dúós-
ins var sömuleiðis við hæfi.
Rhapsodie Debussys frá 1910
hnauð myndarlega endaró á tón-
leikunum með heillandi túlkun þar
sem þessi hljómþrungna „hvikla“
(ef svo mætti íslenzka reikula
rapsódíugreinina) geislaði af góm-
sætri andagift í blómstrandi með-
förum dúósins – að ekki sé minnzt
á virtúós tilþrif klarínettsins undir
lokin er flugu fislétt um loft við að
virtist hverfandi fyrirhöfn. Eins
og vera bar.
Salurinn
Kammertónleikarbbbnn
Verk eftir Schumann, Busoni, Brahms,
Berg, Stravinskíj og Debussy. Ingólfur
Vilhjálmsson klarínett og Lluïsa Espi-
golé píanó. Þriðjudaginn 4. maí kl. 20.
RÍKARÐUR Ö.
PÁLSSON
TÓNLIST
Drama, dulúð,
gáski og geigur
Dúóið Lluïsa Espigolé og Ingólfur Vilhjálmsson.
Ingólfur Vilhjálmsson heldur ein-
leikstónleika á sunnudag í 15:15
tónleikaröðinni í Norræna húsinu.
Á tónleikunum leikur hann verk
eftir Klas Thorstensson, Pei-Yu
Shi, Davíð Brynjar Franzson, Pál
Ivan Pálsson, Áka Ásgeirsson og
Roderick de Man. Tónleikarnir eru
með yfirskriftina Háspenna og
hefjast kl. 15:15.
TÍMARITIÐ Zoo hefur beðist af-
sökunar á ummælum leikarans
Danny Dyer sem svarar bréfum les-
enda í sérstökum dálki í tímaritinu.
Dyer fékk bréf frá manni sem sagð-
ist eiga um sárt að binda eftir að
kærastan sagði honum upp. Dyer
svaraði því til að hann ætti annað-
hvort að fara á fyllirí með félögum
sínum eða skera í andlit kærust-
unnar þannig að enginn karlmaður
myndi líta við henni. Dyer sér eftir
þessu ósmekklega uppátæki.
WENN.com
Danny Dyer Ósmekklegt svar.
Zoo biðst
afsökunar
POWE
RSÝN
ING
Á STÆ
RSTA
DIGIT
AL
TJALD
I LAN
DSINS
KL. 10
Robert Downey Jr.,
Samuel L. Jackson,
Gwyneth Paltrow,
Scarlett Johansson,
Don Cheadle og
Mickey Rourke
eru mætt í fyrstu
STÓRMYND
SUMARSINS
FYRRI MYNDIN GERÐI ALLT VITLAUST
OG ÞESSI ER ENN BETRI!
Ath. það er sérstakt leyniatriði
á eftir creditlistanum í lok myndarinnar.
ÍSL. TAL
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
HHH
T.V. - Kvikmyndir.is
The Back-Up Plan kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ Date Night kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 10 ára
Iron Man 2 kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára The Spy Next Door kl. 3:40 - 5:50 LEYFÐ
Iron Man 2 kl. 5:20 - 8 - 10:40 LÚXUS Nanny McPhee kl. 3:40 LEYFÐ
She‘s Out of My League kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10
Bráðske
mmtileg
gaman
mynd
í anda A
merican
Pie.
Sýnd kl. 3:40
Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10
Sýnd kl. 4
Sýnd kl. 5, 7:30 og 10 (POWER SÝNING)
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI
Robert Downey Jr.,
Samuel L. Jackson,
Gwyneth Paltrow,
Scarlett Johansson,
Don Cheadle og
Mickey Rourke
eru mætt í fyrstu
STÓRMYND
SUMARSINS
FYRRI MYNDIN
GERÐI ALLT
VITLAUST OG
ÞESSI ER ENN
BETRI!
Ath. það er sérstakt leyniatriði á eftir
creditlistanum í lok myndarinnar.
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greið með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
www.laugarasbio.is
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!