Morgunblaðið - 07.05.2010, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2010
The Back-up Plan er einþeirra kvikmynda semmaður vildi helst hætta aðhorfa á þegar 15 mínútur
eru liðnar en gagnrýnendur geta
víst ekki leyft sér það. Þessi mynd
er hvorki fugl né fiskur, þökk sé
arfaslöku handriti og tilþrifalausum
leik aðalleikaranna. Kvikmyndin á
að heita rómantísk gamanmynd en
hvort tveggja klikkar, grínið og
rómantíkin. Þeir sem séð hafa stikl-
una úr myndinni hafa þegar séð öll
atriðin sem komast nærri því að
vera fyndin, allt vafið inn í velgjuleg-
an krúttisma.
Myndin segir af Zoe, eiganda
gæludýraverslunar, sem þráir heitt
að eignast barn. Hún fer því í tækni-
frjóvgun og verður nær samstundis
þunguð. Hún hittir draumaprinsinn
um fimm mínútum eftir tækni-
frjóvgunina, dökkhærðan ostafram-
leiðanda að nafni Stan. Þau bítast
um leigubíl en kveðjast síðan í fullri
vinsemd. Nokkrum dögum síðar
hittir hún Stan aftur á matarmark-
aði, þar er hann að selja ostinn sinn,
og allt í einu er Stan orðinn ógurlega
áhugasamur um hana og daðrar af
kappi. Þau fara á stefnumót og sam-
band er hafið en vandræðagang-
urinn byrjar þegar Zoe tilkynnir
honum að hún sé þunguð. Seinna
kemur í ljós að hún ber tvíbura und-
ir belti og mikill kvíði grípur Stan
sem stefnir í að verða tveggja barna
faðir. Zoe á aftur á móti erfitt með
að treysta honum og trúir því ekki
að hann ætli að ganga börnunum í
föður stað.
Það flýgur margt um huga manns
þegar maður horfir á þessa mynd.
Til dæmis það hversu samband að-
alpersónanna er ótrúverðugt,
skyndilega eru Zoe og Stan orðin
ástfangin upp fyrir haus án þess að
nokkur grunnur hafi verið lagður að
því, engin uppbygging. Þá veltir
maður því líka fyrir sér af hverju
Jennifer Lopez, J-Lo, fái kvik-
myndahlutverk yfirleitt. Vissulega
er konan hugguleg og hún getur
eitthvað leikið, en hún á ekkert er-
indi í gamanmyndir. O’Loughlin er
þessi dæmigerði sjarmör róman-
tískra gamanmynda nútímans, með
hnyttin tilsvör á takteinum og 5%
líkamsfitu svo kvenkyns áhorfendur
fái nú einhverja örvun. Þá veltir
maður því fyrir sér hvort leik-
urunum hafi ekki beinlínis liðið illa
að leika í þessari mynd, hvort þeir
hafi ekki vitað hversu laus við fyndni
hún væri og rómantíska töfra. Það
eina sem rífur hana upp úr svaðinu,
frá því að teljast algjör hörmung,
eru einstaka atriði þar sem hægt er
að brosa út í annað og þá yfirleitt út
af einhverju ógurlega kjánalegu. Má
þar nefna atriði þar sem Zoe kemst í
pottrétt sem ostagerðarmaðurinn
hefur mallað og ákveður að stinga
tveimur brauðsneiðum ofan í pott-
inn, búa til samloku úr gumsinu og
troða í andlitið á sér þannig að
gumsið sullast út um allt. Dytti ein-
hverjum það í hug á öðru stefnu-
móti? Svo er bæklaður hundur í
myndinni með afturfæturna í sér-
smíðuðum vagni sem hann dregur á
eftir sér (!) og hann kreistir fram
nokkur bros. Einnig er ágætur leik-
ari í litlu hlutverki, Anthony And-
erson, en hann veitir Stan heilræði
varðandi föðurhlutverkið. Því hlut-
verki lýsir hann einhvern veginn
svo: „Hræðilegt, hræðilegt, hræði-
legt … og svo gerist eitthvað. Síðan
verður það hræðilegt.“ Þessi setning
rímar ágætlega við myndina.
Smárabíó, Háskólabíó,
Laugarásbíó, Regnboginn
The Back-up Plan bmnnn
Leikstjóri: Alan Poul. Aðalhlutverk:
Jennifer Lopez, Alex O’Loughlin, Eric
Christian Olsen, Michaela Watkins,
Noureen DeWulf, Melissa McCarthy, og
Danneel Harris. 105 mín. Bandaríkin,
2010.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
J-Lo í djúpum skít
Lopez og O’Loughlin Huggulegt fólk en tilþrifalitlir leikarar.
BANDARÍSK kvikmyndaútgáfa af
fyrstu skáldsögu Stiegs Larssons í
Millennium-þríleiknum, Menn sem
hata konur, verður tekin í Stokk-
hólmi og leikstjóri hennar verður
David Fincher. Fincher á að baki
myndir á borð við Fight Club og
The Game. Sænska dagblaðið Da-
gens Nyheter segir frá þessu. Þetta
mun verða dýrasta kvikmynd sem
tekin hefur verið í Svíþjóð en hún
mun heita The Girl with the Dra-
gon Tattoo. Nú velta menn því fyrir
sér hvort Brad Pitt muni fara með
hlutverk Blomkvists.
Fincher Larsson fyrir Kanann.
Fincher til
Svíþjóðar
Robert Downey Jr.,
Samuel L. Jackson,
Gwyneth Paltrow,
Scarlett Johansson,
Don Cheadle og
Mickey Rourke
eru mætt í fyrstu
STÓRMYND
SUMARSINS
HEIMSFRUMSÝND
Á ÍSLANDI – VIKU
Á UNDAN USA!
FYRRI
MYNDIN
GERÐI ALLT
VITLAUST
OG ÞESSI ER
ENN BETRI!
Ath. það er sérstakt
leyniatriði á eftir
creditlistanum í lok
myndarinnar.
Aðsóknarmesta mynd
Tim Burtons fyrr og síðar
SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
SÝND LAUGARDAG OG SUNNUDAG
Stærsta opnun á Íslandi árið 2010
Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
HHHH
„Iron Man 2 setur viðmið sem eru
gulls ígildi fyrir framhaldsmyndir
þökk sé leiknum hans Roberts
Downey Jr. sem Stark“
- New York Daily News
SPARBÍÓ 600 krkr á allar sýningar merktar með appelsínugulu
IRON MAN 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
KICK ASS kl. 8 - 10:30 14
OFURSTRÁKURINN ísl. tal kl. 6 L
IRON MAN 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
OFURSTRÁKURINN kl. 6 L
KICK-ASS kl. 8 - 10:10 14
IRON MAN 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
SHE'S OUT OF MY LEAGUE kl. 8 12
DATE NIGHT kl. 10:10 10
OFURSTRÁKURINN ísl. tal kl. 5:50 L
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI/ AKUREYRI