Morgunblaðið - 17.06.2010, Qupperneq 4
Eyvindur bendir á að hugsanlegt sé að breyta
vaxtakjörum lánsins með vísan til 36. gr. samn-
ingalaga en þar segir: „Samningi má víkja til hliðar
í heild eða að hluta, eða breyta, ef það yrði talið
ósanngjarnt eða andstætt góðri viðskiptavenju að
bera hann fyrir sig.“
Annar þáttur þessa máls er hvaða þýðingu dóm-
urinn hefur fyrir lánafyrirtækin. Munu þau öll geta
staðið þetta af sér? Því er ekki hægt að svara á
þessu stigi. Það liggur fyrir að af bílalánafyrirtækj-
unum stendur Lýsing verst. Ef fyrirtækið færi í
þrot gætu sumir lántakendur staðið höllum fæti.
Þeir sem hafa t.d. þegar gert upp lán við lánafyr-
irtæki sem fer í þrot eiga erfitt með að sækja rétt
sinn ef fyrirtækið er ekki lengur til. Á þetta benti
Gísli Tryggvason, umboðsmaður neytenda, eftir
uppkvaðningu dómsins. Hann sagðist vona að fyr-
irtækin lifðu þetta af. Örlög Lýsingar ráðast að
nokkru leyti af viðbrögðum Deutsche Bank.
Enginn veit með vissu hversu miklir fjármunir
munu flytjast frá lánafyrirtækjunum til lántakenda
með þessum dómi. Sigurmar K. Albertsson, lög-
maður Lýsingar og SP-fjármögnunar, sagði að um
hundruð milljarða væri að tefla.
Það er einnig ljóst að sú vinna sem fjármálafyr-
irtækin hafa lagt í á síðustu mánuðum við að breyta
lánunum er núna í talsverðu uppnámi. Ef ekkert
nýtt gerist færir dómurinn lántakendum betri kjör
en lánafyrirtækin bjóða nú. Ólíklegt verður líka að
telja að Alþingi samþykki bílalánafrumvarp félags-
málaráðherra sem liggur fyrir þinginu.
Ekki lengur ólán að hafa
tekið myntkörfulán
Staða skuldara batnar um nokkur hundruð milljarða með dómi Hæstaréttar
Morgunblaðið/Ernir
Dómur Ragnar Baldursson lögmaður rennir yfir dóminn stuttu eftir dómsuppkvaðningu Hæstaréttar.
Ragnar segir dóminn vera skýran. Óheimilt sé að verðtryggja lán með tengingu við gengi krónunnar.
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2010
Með lögum um vexti og verðtrygg-
ingu sem sett voru árið 2001 tók Al-
þingi af skarið um að óheimilt er að
verðtryggja lán með því að binda
þau við gengi erlendra gjaldmiðla.
Þetta er niðurstaða Hæstaréttar í
tveimur málum þar sem tekist var á
um lögmæti myntkörfulána.
Fyrir Hæstarétti var tekist á um
þrjú meginatriði, hvort bílasamn-
ingurinn sé lánasamningur eða
leigusamningur, hvort hann sé um
skuldbindingu í erlendri mynt eða
íslenskum krónum, sem bundnar
séu gengi erlendra gjaldmiðla, og
loks hvort slík gengistrygging sé
heimil samkvæmt lögum.
Hæstiréttur kemst að þeirri nið-
urstöðu að um sé að ræða lána-
samning í skilningi laga. Kaupverð
bílanna er tilgreint í íslenskum
krónum og mánaðarlegar afborg-
anir eru sömuleiðis í krónum. Ber-
um orðum kemur fram í texta
samninganna að íslensk fjárhæð
hverrar afborgunar skuli breytast
eftir gengi á þeim erlendu myntum
sem mið var tekið af. Hæstiréttur
bendir auk þess á að í texta annars
samningsins sem deilt var um
standi að hann sé „100% gengis-
tryggður“. Í yfirskrift hins samn-
ingsins var tekið fram að hann væri
gengistryggður. Hæstiréttur komst
því að þeirri niðurstöðu að samn-
ingurinn væri skuldbinding í ís-
lenskum krónum.
Vísaði í lögskýringargögn
Fjármögnunarfyrirtækin töldu
að gengistrygging væri ekki and-
stæð lögum og vísuðu í 13. gr. laga
um vexti og verðbætur. Hæstirétt-
ur fjallar um forsögu ákvæða þess-
ara laga og kemst að þeirri nið-
urstöðu að opnað hafi verið fyrir
heimildir til að binda sparifé og
lánsfé í íslenskum krónum við vísi-
tölu á svokölluðum samsettum
gjaldmiðlum árið 1979. Með laga-
breytingunni árið 2001 hafi löggjaf-
inn hins vegar tekið af skarið um að
þessi tenging sé óheimil. „Af lög-
skýringargögnum er ljóst að ætlun
löggjafans var að fella niður heim-
ildir til að binda skuldbindingar í ís-
lenskum krónum við gengi er-
lendra gjaldmiðla og heimila
einungis að þær yrðu verðtryggðar
á þann hátt sem í 14. gr. laganna
segir. Vilji löggjafans kom skýrlega
fram í því að í orðum lagaákvæð-
anna var eingöngu mælt fyrir um
heimild til að beita tilteknum teg-
undum verðtryggingar, en þar var
ekkert rætt um þær tegundir, sem
óheimilt var að beita. Lög nr. 38/
2001 heimila ekki að lán í íslensk-
um krónum séu verðtryggð með því
að binda þau við gengi erlendra
gjaldmiðla,“ segir í dómi Hæsta-
réttar. egol@mbl.is
Tenging við gengi var bönnuð 2001
Morgunblaðið/Sverrir
Lán Hæstiréttur felldi tvo dóma í
málum sem varðaði myntkörfulán.
Hæstiréttur dæmdi að óheimilt væri að verðtryggja lán með því að binda þau
við gengi erlendra gjaldmiðla Skuldbindingin er í íslenskum krónum
Gísli Tryggva-
son, umboðs-
maður neytenda,
segir að dóm-
urinn hafi mikið
fordæmisgildi og
áhrifin geti orðið
víðtæk. „Þetta
getur leitt til
skaðabótaskyldu
vegna greiðslna.
Þetta getur jafnvel leitt til skaða-
bótaskyldu vegna óréttmætra
vörslusviptinga og einnig vegna
þess að menn fylgdu ekki réttar-
farslögum við að innheimta bíla-
lán.“
Gísli bendir á að í þessu máli hafi
ekki reynt á ákvæði um for-
sendubrest, en hugsanlegt sé að þar
geti lántakendur sótt rétt.
Getur leitt til skaða-
bótaskyldu vegna
vörslusviptingar
Gísli Tryggvason
„Ég hef haft trú
á að Ísland sé
réttarríki og að
menn dæmi eftir
lögunum og það
fengu menn að
sjá í dag,“ sagði
Björn Þorri Vikt-
orsson sem sótti
málið gegn SP-
fjármögnun.
Hann sagði að
Hæstiréttur hefði skorið afdrátt-
arlaust úr um það að lánin sem um
var deilt væru lán í íslenskum krón-
um og gengistrygging slíkra lána
væri ólögmæt.
„Ég trúi því afar illa að ríkis-
stjórninni detti það í hug að koma
fram með lagafrumvarp núna sem
er ætlað að veita fjármögnunarfyr-
irtækjunum betri stöðu gegn al-
mennum neytendum á Íslandi. Það
finnst mér alveg með ólíkindum.“
Trúi ekki að sett verði
lög gegn neytendum
Björn Þorri
Viktorsson
„Lánin fara nið-
ur á upphafs-
punkt miðað við
það gengi sem
var á myntunum
þegar lánin voru
greidd út,“ segir
Ragnar Baldurs-
son lögmaður
sem sótti málið
gegn Lýsingu.
Hann segir að gefa verði lánafyr-
irtækjunum svigrúm til að bregðast
við dómnum, en hann sér engar for-
sendur til að stjórnvöld geti sett lög
og gert lántakendum að greiða
meira af lánunum en dómurinn ætl-
ast til.
Þeir sem hafa greitt lánin upp
eða tapað bílum sínum vegna van-
skila þurfi líka að skoða stöðu sína.
„Ég tel að allir sem hafa greitt af
þessum lánum eigi að skoða rétt-
mæti endurgreiðslukröfu. Það hef-
ur greinilega verið greitt umfram
það sem lögmætt er að innheimta.“
Miða verður við
stöðu á lántökudegi
Ragnar Baldursson
Sigurmar K. Al-
bertsson, lög-
maður Lýsingar
og SP-fjármögn-
unar, segist hafa
verið búinn undir
að svona kynni
að fara. Dómar
héraðsdóms
hefðu verið ólíkir
og því tvísýnt
hver yrði nið-
urstaða Hæstaréttar. Sigurmar
segist ekki treysta sér til að meta
áhrifin á lánafyrirtækin. „Ég á von
á að það verði eitthvert puð á þeim
bæjum á næstu dögum. Þetta skap-
ar mikla erfiðleika. Þetta snýst um
nokkur hundruð milljarða.“
Snýst um nokkur
hundruð milljarða
Sigurmar K.
Albertsson
Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráð-
herra, segir að dómur Hæstaréttar muni frek-
ar hafa góð en slæm áhrif fyrir efnahags-
kerfið og fjármálakerfið í heildina. „Þetta
hefur auðvitað einhver þjóðhagsleg áhrif en
ég fæ nú ekki betur séð en að mestu séu þau
bara til góðs,“ segir Gylfi.
„Þó að þetta sé visst áfall fyrir stóru bank-
ana þá er þetta langt innan þolmarka fyrir þá,
þannig að þó þetta séu ekki góðar fréttir fyrir
þá er þetta engan veginn til þess fallið að slá
þá út af laginu,“ segir Gylfi. Hann
hyggur að sama eigi við um
stærri lánafyrirtæki.
Gylfi segir ríkisstjórnina
hafa verið búna undir þessa
niðurstöðu og verið sé að
kortleggja málið en ekki
liggi fyrir hvort stjórn-
völd þurfi að grípa til
aðgerða.
skulias@mbl.is
Bílalánadómurinn hef-
ur bara góð áhrif
EFNAHAGS- OG VIÐSKIPTARÁÐHERRA
FRÉTTASKÝRING
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
„Ef þetta þýðir að öll lán þar sem ekki var afhentur
gjaldeyrir verða skilgreind íslensk lán hefur þessi
dómur gríðarlega víðtæk áhrif.“ Þetta sagði einn
viðmælandi blaðsins þegar hann var spurður um
áhrif dóms Hæstaréttar um bílalánin. Það er ekki
komið í ljós hver áhrifin af dóminum verða, en leiða
má líkum að því að hann styrki stöðu skuldara um
hundruð milljarða króna.
Nú þurfa allir sem eru að greiða af því sem menn
hafa stundum kallað „erlend lán“ að skoða lána-
samningana og sjá hvort dómur Hæstaréttar þýðir
ekki að lánið sé í reynd íslenskt. Það eru ekki bara
heimilin sem hafa verið að borga af lánum sem hafa
verið verðtryggð með tengingu við gengi. Þetta á
einnig við um fyrirtæki, verktaka, bændur, smá-
bátasjómenn og sveitarfélög. Eru öll þessi lán ólög-
leg? Viðmælendur blaðsins sögðu að þau væru
örugglega ekki öll ólögleg. Það þyrfti að skoða
hvern og einn lánasamning, en þorri bílalána og
fasteignalána heimilanna fellur undir dóminn.
Þá er einnig vert að halda því til haga að þessir
umdeildu lánasamningar eru ekki ólöglegir í heild
sinni. Það er eingöngu verðtryggingarþáttur samn-
inganna sem er ólöglegur.
Óverðtryggt lán með 3% vöxtum
Þar sem verðtryggingarþáttur lánanna er fallinn
úr gildi er tæplega um annað að ræða en að miða
höfuðstól lánanna við það gengi sem var þegar lán-
in voru tekin. Vextir á þessum myntkörfulánum eru
afar lágir eða 1-3% ofan á liborvexti. Verðbólga í
fyrra og hittifyrra var í kringum 12%. Það er því
ljóst að án verðtryggingar koma þessi lán til með að
bera neikvæða vexti.
„Það er nokkuð ljóst að ef einhver hefur fengið
þrjátíu milljónir króna að láni til fjörutíu ára til að
kaupa hús hefði hann aldrei fengið óverðtryggt lán
á 3% vöxtum,“ segir Eyvindur G. Gunnarsson, lekt-
or við lagadeild Háskóla Íslands.
Erlendu lánin hafa hangið yfir höfði þeirra sem
tóku myntkörfulán eins og fallexi í tvö ár, en lánin
eru núna skyndilega orðin að lánum sem bera afar
lága vexti og verðbólgan hjálpar lántakendum að
greiða þau niður.
Þeir sem tóku hefðbundin verðtryggð lán í ís-
lenskum krónum sitja hins vegar áfram í sömu súp-
unni. Spurningin er hvort þeir sem eru í þessari
stöðu sætta sig við að ekkert verði gert fyrir þá
þegar staða þeirra sem tóku myntkörfulánin hefur
batnað svona mikið.
Margir velta fyrir sér hvort stjórnvöld ætla að
grípa inn í málið með lagasetningu og eins hvort
það sé yfirleitt hægt, en í lögfræði er miðað við að
lögum sé ekki breytt afturvirkt. Þetta verður án
efa skoðað næstu daga bæði af hálfu ríkisstjórn-
arinnar og þingsins. Óskað hefur verið eftir að
viðskiptanefnd komi saman vegna málsins.
Gylfi
Magnússon