Morgunblaðið - 17.06.2010, Blaðsíða 31
að sjá hana á öllum okkar stærstu
tímamótum, hvort sem það var við
skírn stelpnanna okkar eða í fjör-
ugum afmælisveislum. Alltaf var
hennar nærvera okkur gleðiefni.
Það er sorglegt að Jenný hafi
þurft að sjá á eftir yngri dóttur
sinni, Nínu, en hún kvaddi þennan
heim nú 8. apríl. Þá slökknaði lífs-
neistinn og hún vildi fara líka, var
orðin þreytt. Í síðustu heimsókn
minni til Jennýjar á Eir lofaði ég að
koma með blóm í næstu heimsókn
og vorum við frænkur sammála um
að rósir væru allra blóma falleg-
astar og þær færi ég henni. Ég
sagði henni líka hve vænt mér
þætti um hana. Hún blikkaði fal-
legu augunum sínum á sinn ein-
staka hátt þegar við kvöddumst.
Ég vil þakka Úlla frænda heim-
sókn þeirra til mömmu fyrir stuttu,
en sú óvænta heimsókn gladdi hana
mikið og reyndist hún vera hinsta
kveðja þeirra systra, aðeins viku
fyrir andlátið.
Sorgin gleymir engum en dauð-
inn er ekki verstur þeim sem er
saddur lífdaga. En það er svo sárt
að hugsa til hennar barna, barna-
barna og tengdabarna og barna-
barnabarna. Megi góður Guð
styrkja þau og vernda. Þeirra sorg
er svo stór og svo stutt síðan Nína
dó, en nú eru þær saman.
Mamma, við Niels og fjölskylda
okkar sendum kærar kveðjur.
Blessuð sé minning Jennýjar
frænku og Nínu dóttur hennar.
Erna Hlöðversdóttir.
Jenný, Stína, mamma. Þrenning-
in heilaga, systurnar sem manni
fannst að alltaf hlytu að verða hluti
af lífinu. Nú er skarð rofið í systra-
hópinn og minningarnar sækja að.
Systurnar þrjár blaðskellandi í
saumaklúbbum í Ey eða á Hjalla-
brekkunni, eða að stússa í veislu-
undirbúningi. Svo ólíkar, en samt
svo samrýndar. Þær voru fyrir-
myndir okkar stelpnanna í fjöl-
skyldunni. Jenný var drottningin,
einstaklega glæsileg kona og falleg.
Jenný var alltaf kát og glöð og svo
flott og fín. Hún kunni að spila á pí-
anó og gekk á háum hælum. Hún
blikkaði augunum svo fallega þegar
vel lá á henni og ég man eftir
mörgum stundum fyrir framan
spegilinn, að æfa „blikkið“ hennar
Jennýjar frænku. Jenný og Toni
áttu fallegt heimili í Hlíðargerðinu,
þaðan er margs að minnast. Mat-
arveislur sem áttu sér engan líka,
danska Andrésblaðasafnið hans
Jóns Axels, hlátur og glens með
Jenný, Valdísi og Nínu. Jenný,
Stína og mamma stóðu jafnan þétt
saman og ræktuðu jafnframt sterkt
samband við frænkur sínar í móð-
urætt, sem hafa haldið hópinn alla
tíð. Í seinni tíð áttu Jenný og
mamma sérstaklega góða vináttu
eftir að þær urðu ekkjur, fóru sam-
an í sólarferðir og nutu lífsins. Ég
veit að mamma hefur ekki aðeins
misst systur heldur einnig hjart-
kæra vinkonu og að söknuður henn-
ar er mikill. Hún og Jenný áttu
sama afmælisdag, báðar fæddar 5.
mars með 5 ára millibili.
En nú er komið að kveðjustund
og líklega hefur elskulega frænka
mín verið reiðubúin til að leggjast
til hvílu. Síðustu mánuðina leyndi
sér ekki að þreytan sótti að en
þrátt fyrir dvínandi þrek Jennýjar
náðu þær systur góðri samveru-
stund saman í Hveragerði hjá
mömmu fyrir skömmu. Það var sárt
að sjá Jenný fylgja Nínu dóttur
sinni til grafar fyrir skömmu síðan
og eflaust hefur það reynst henni
þyngra en tárum taki að horfa á
eftir dóttur sinni hverfa burt á
besta aldri frá ástkærum börnum
og barnabörnum. Og frænka mín
var orðin þreytt. Hún valdi sér fal-
legan hvítasunnudag til að kveðja
þennan heim og gerði það með
reisn eins og annað sem hún tók
sér fyrir hendur í lífinu.
Mig langar með þessum fátæk-
legu orðum að þakka fyrir sam-
veruna, elsku besta frænka mín.
Ég sendi mínar bestu samúðar-
kveðjur til Valdísar, Úlla, Jóns Ax-
els og fjölskyldunnar allrar.
Hvíldu í friði, elsku frænka.
Bryndís Hlöðversdóttir.
Minningar 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2010
✝ Ingimar Oddssonvar fæddur í Mó-
húsum í Garði 21.
desember 1922. Hann
lést á heimili sínu í
Linköping 15. mars
2010.
Foreldrar hans
voru hjónin Kristín
Hreiðarsdóttir og
Oddur Jónsson sem
bjuggu í Presthúsum
í Garði. Systkini Ingi-
mars voru Júlíus Guð-
jón, Sólveig Sigrún,
Jónína Sóley og Eyj-
ólfur. Júlíus og Sigrún eru látin.
Ingimar kynntist eiginkonu sinni
Önnu Stínu, f. 4. október 1930 í Sví-
þjóð, og voru þau gefin saman í Út-
skálakirkju. Anna
Stína lést 12. mars
2003. Þau eignuðust
þrjá syni: 1) Lars, eig-
inkona hans er Anette
og eiga þau tvo syni,
þá Kristján og Matt-
hías, þau eru búsett í
Minneapolis. 2) Krist-
ján, eiginkona hans er
Marie og eiga þau
börnin Jónínu og
Ísak, búsett í Svíþjóð.
3) Richard, eiginkona
hans er María og eiga
þau börnin Caroline,
Samuel og William, búsett í Svíþjóð.
Útför Ingimars fór fram 30. apríl
2010 og minningarathöfn var í Út-
skálakirkju sama dag.
Ingimar Oddsson bróðir okkar er
látinn. Hann fæddist í Móhúsum í
Garði. Foreldrar okkar þau Kristín
og Oddur bjuggu okkur börnunum
gott heimili og vorum við alin upp í
trú og kærleika. Kirkjan á Útskálum
var þeim kær og sóttu þau guðsþjón-
ustur þar. Ingimar bróðir stundaði
nám í Gerðaskóla og eignaðist góða
vini sem voru saman við leik og störf.
Minntist hann með gleði barna- og
unglingsáranna sem voru sterkur
þáttur í mótun hans. Hann rifjaði oft
upp skemmtilegar minningar frá
æskuárunum eins og þegar hann og
félagar hans stofnuðu danshljóm-
sveit. Þeir æfðu heima í Presthúsum
og í fiskhúsi hjá Oddi pabba hans.
Þeir spiluðu allir á harmonikku og
léku fyrir dansi í Garðinum og ná-
grenni. Ingimar átti harmonikku alla
sína ævi og spilaði oft á hana.
Ingimar hélt til náms í húsasmíði í
Iðnskólanum í Reykjavík og vann við
smíðar í Reykjavík í nokkur ár.
Hann hafði mikinn áhuga á að
mennta sig frekar og hélt til Svíþjóð-
ar þar sem hann stundaði nám í
Stockholms Tekniska Institut í
Stokkhólmi. Eftir að því námi lauk
kom hann aftur heim til Íslands og
vann á teiknistofu SÍS í nokkur ár.
Ingimar og Anna Stína bjuggu í
Reykjavík og þar fæddust synirnir
Lars og Kristján. Þegar Ingimar
hafði unnið um skeið hjá SÍS sá hann
auglýsingu um starf í Svíþjóð. Hon-
um bauðst starfið og flutti fjölskyld-
an þá til Linköping þar sem þau
bjuggu upp frá því. Áttu þau þar fal-
legt og hlýlegt heimili og voru fjöl-
skyldur þeirra ætíð boðnar velkomn-
ar til þeirra. Mörg okkar hafa notið
þess að heimsækja þau til Svíþjóðar.
Fjölskylda þeirra var mjög samhent
og nutu Ingimar og Anna Stína sam-
verustundanna. Barnabörnin voru
þeim mjög kær. Ingimar var hjálp-
samur þegar synirnir voru að byggja
og breyta húsum sínum. Hann lét sig
ekki muna um að fara alla leið til
Boston og aðstoða Lars við smíðar
þegar hann bjó þar. Ingimar og
Anna Stína komu oft til Íslands með
drengina sína. Þau vildu að þeir
kynntust föðurlandi sínu og þau
lögðu mikla rækt við fjölskylduna á
Íslandi. Eftir að bræðurnir stofnuðu
sínar fjölskyldur hafa þeir komið
hingað með þær.
Ingimar átti gott safn íslenskra
bóka og las mikið. Anna Stina lærði
íslensku þegar hún bjó hér og talaði
hana vel alla tíð. Ingimar hafði mik-
inn áhuga á að fylgjast með þjóðmál-
um hér heima. Eyjólfur og Ingimar
töluðu reglulega saman í síma og
þannig fékk hann fréttir að heiman.
Honum var annt um landið sitt og
fylgdist náið með öllu. Ingimar spil-
aði golf á seinni árum og átti góða fé-
laga í golfinu. Hann var m.a. í stjórn í
golfklúbbi eldri borgara í Linköping.
Hann brá sér einnig í golf í Garðabæ
með Dóra þegar hann var í heim-
sókn.
Góður drengur hefur kvatt, við
systkinin þökkum góðar samveru-
stundir á liðnum árum. Eyjólfur
þakkar sérstaklega öll símtölin sem
geymast vel í fylgsnum hjartans.
Eyjólfur, Sóley og fjölskyldur þakka
góðar móttökur og hlýlegheit þegar
þær heimsóttu Ingimar og fjöl-
skyldu til Svíþjóðar.
Við sendum fjölskyldunni innileg-
ar samúðarkveðjur.
Eyjólfur og Jónína Sóley.
Ingimar Oddsson
Legsteinar ehf, Gjótuhrauni 8
Hafnarfirði, Sími: 571 0400
legsteinar@gmail.com
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN JAKOBSDÓTTIR
frá Reykjarfirði,
Reykjahlíð 1,
Mývatnssveit,
lést á heilbrigðisstofnun Þingeyinga þriðjudaginn
8. júní.
Útförin fer fram frá Reykjahlíðarkirkju laugardaginn
19. júní kl. 14.00.
Kristjana Ólöf Valgeirsdóttir, Mark Kr. Brink,
Matthildur Herborg Valgeirsdóttir,
Jóna Valgerður Valgeirsdóttir, Guðmundur St. Sigurðsson,
Guðrún María Valgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
ODDUR BRYNJÓLFSSON,
frá Þykkvabæjarklaustri,
síðast til heimilis að Ásbraut 15,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi 9. júní.
Útför hans verður frá Kópavogskirkju föstudaginn
18. júní kl. 13.00.
Brynjólfur Oddsson,
Vilborg Kristín Oddsdóttir,
Jakob Oddsson,
Svanfríður Inga Jónasdóttir,
Margrét Sigurbjörg Jónasdóttir,
Elín Jakobsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR KR. ÞÓRÐARSON,
frá Innri-Múla,
Barðaströnd,
lést á heimili sínu, dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Seljahlíð, mánudaginn 14. júní.
Jarðarförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju
mánudaginn 21. júní kl. 13.00.
Kolbrún Ólafsdóttir, Hörður Eiðsson,
Skarphéðinn Ólafsson, Sigríður M. Skarphéðinsdóttir,
Þórður G. Ólafsson, Jónína S. Jónasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær sonur okkar, bróðir, frændi, mágur og vinur,
ÓSKAR SIGURÐUR ÞORSTEINSSON,
Brekkum III,
Mýrdal,
sem lést mánudaginn 7. júní, verður jarðsunginn
frá Sólheimakapellu laugardaginn 19. júní kl. 14.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á minningar-
sjóð Óskars fyrir æskulýðsstarf Hestamannafélagsins
Sindra. 0317-13-774706 kt. 540776-0169.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þorsteinn Einarsson, Guðlaug M. Guðlaugsdóttir,
Kristín Þorsteinsdóttir, Jens Andrésson,
Einar Guðni Þorsteinsson, Petra Kristín Kristinsdóttir,
Guðlaugur Jakob Þorsteinsson, Laufey Guðmundsdóttir,
Ólöf Ósk Þorsteinsdóttir, Þuríður Sif Ævarsdóttir,
Ragnar Sævar Þorsteinsson,
Kjartan Hreinsson, Sigríður Árný Sævaldsdóttir.
✝
Okkar kæri faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN BRYNTÝR ZOEGA MAGNÚSSON,
Dalbraut 16,
Reykjavík,
andaðist miðvikudaginn 16. júní á Landspítalanum
Fossvogi.
Pálína Ellen Jónsdóttir, Örn Björnsson,
Jóhanna Guðrún Zoega Jónsdóttir, Ragnar Ólafsson,
Helgi Jón Jónsson,
Heiðar Bryntýr Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma, langalangamma og langalangalangamma,
SIGURBJÖRG EINARSDÓTTIR,
frá Streiti,
Miðvangi 22,
Egilsstöðum,
andaðist laugardaginn 5. júní á heilbrigðisstofnun
Austurlands, Egilsstöðum.
Útför hennar fer fram frá Heydalakirkju föstudaginn 18. júní kl. 14.00.
Ragnar Brynjar Hjelm, Kristrún Jónsdóttir,
Sigmar Hjelm, Ingunn Aðalsteinsdóttir,
Unnur A. Ágústsdóttir, Kristján Tryggvason,
Hjörtur Þ. Ágústsson, Jóhanna Guðmundsdóttir
og fjölskyldur.