Morgunblaðið - 17.06.2010, Side 8

Morgunblaðið - 17.06.2010, Side 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2010 Fundið hefur verið að því að Frétta-stofa RÚV hafi látið „nota sig“ til að koma illu til leiðar innan Fram- sóknarflokksins. „Fréttin“ hjá RÚV hljómaði svona:     Evrópusinnaðir framsóknarmennsem fréttastofa hefur náð tali af í dag segja að sú sátt sem var mótuð á síðasta landsfundi Framsóknar- flokksins í Evrópumálum sé úti með útspili Gunnars Braga. Sáttin hafi falist í því að athuga hvað fengist með aðildarsamningi og bera hann síðan undir þjóðina. Það beri vitni um hversu viðkvæmt ástandið er innan Framsóknarflokks- ins að enginn heimildarmanna frétta- stofu þorði að koma í viðtal vegna málsins, þar sem það „myndi sprengja allt í loft upp“, eins og það var orðað.“     Kannski var heimildarmaðurinnbara einn og vildi ekki koma í dagsljósið svona fljótt eftir síðasta upphlaup gegn forystunni.     Fréttamaðurinn sagði í upphafifréttarinnar að hann hefði rætt við Evrópusinnaða framsóknarmenn. Það er sjálfsagt gott og blessað. En hvers vegna í ósköpunum var ekki talað við neinn í Framsókn sem styð- ur stefnu forystunnar?     Voru þeir líka hræddir um aðspringa í loft upp? Þótti þá rétt að sprengja meint hlutleysi RÚV í loft upp rétt einu sinni?     Það má Óðinn vita.     Því ekkert veit Páll. RÚV ennþá að Veður víða um heim 16.6., kl. 18.00 Reykjavík 11 léttskýjað Bolungarvík 11 léttskýjað Akureyri 14 skýjað Egilsstaðir 16 skýjað Kirkjubæjarkl. 14 skýjað Nuuk 12 skýjað Þórshöfn 13 súld Ósló 21 heiðskírt Kaupmannahöfn 19 heiðskírt Stokkhólmur 20 heiðskírt Helsinki 16 heiðskírt Lúxemborg 20 heiðskírt Brussel 22 heiðskírt Dublin 20 léttskýjað Glasgow 21 léttskýjað London 18 heiðskírt París 20 skýjað Amsterdam 19 léttskýjað Hamborg 20 heiðskírt Berlín 21 heiðskírt Vín 14 skúrir Moskva 15 alskýjað Algarve 23 heiðskírt Madríd 18 skýjað Barcelona 21 léttskýjað Mallorca 20 skúrir Róm 25 léttskýjað Aþena 33 heiðskírt Winnipeg 24 skýjað Montreal 19 alskýjað New York 21 alskýjað Chicago 24 léttskýjað Orlando 33 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ STAKSTEINAR VEÐUR 17. júní Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 2:56 24:03 ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34 SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17 DJÚPIVOGUR 2:11 23:47 Eftir Sigurð Sigmundsson Landgræðslufélag Hrunamanna fór nýlega í sína árlegu landgræðslu- ferð. Um tuttugu sjálfboðaliðar með sjö dráttarvélar auk flutningabíls voru í för. Að þessu sinni var dreift um 16 tonnum af áburði og 700 kg af grasfræi. Meginhluti þess var túnvingull en lítið eitt af melgresi. Var borið á og sáð í og við rofabörð en einnig svæði þar sem þörf er á að styrkja gróður þar sem hann er veikastur fyrir. Skipuleg uppgræðsla hófst á af- réttinum 1992 undir styrkri leið- sögn dr. Sigurðar H. Magnússonar plöntuvistfræðings. Hann er fædd- ur og uppalin í sveitarfélaginu og landinu kunnugur. Árið 1970 var allstórt svæði frið- að og greri landið nokkuð. Verulega fór þó að ganga við uppgræðsluna eftir að farið var að vinna með skipulögðum hætti. Rofabörðin eru alltaf erfiðust viðureignar en segja má að þar hafi margir sigrar verið unnir. Eins og allstaðar annars staðar er gengið um landið með varúð og virðingu. Ofbeit þekkist ekki lengur enda hefur sauðfé fækkað mjög mikið hér sem annars staðar á landinu. Landgræðslufélagið sem stofnað var 2007 hefur notið mikillar vel- vildar góðra aðila við landgræðslu- starfið. Að þessu sinni fékk félagið styrki frá Landbótasjóði, Hruna- mannahreppi og Arionbanka. Grasfræ var gefið af versluninni Líflandi, Fóðurblöndunni og Land- græðslunni. Að loknu dagsverki var snætt glóðað lambakjöt í fjallaskálanum í Svínárnesi í boði sveitarfélagsins. Formaður Landgræðslufélagsins er Esther Guðjónsdóttir bóndi á Sól- heimum. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Að störfum Sigurður H. Magnússon og þýski háskólaneminn Julia Klauck vinna að uppgræðslunni. Julia er nú um stundir kaupakona á bænum Bjargi. Góður árangur af uppgræðslustörfum Í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosn- ingum hlutu sjálfstæðismenn í Mos- fellsbæ 49,8% atkvæða og fjóra full- trúa af sjö í bæjarstjórn. Vinstri-græn hlutu 11,7% og einn fulltrúa líkt og fyrir fjórum árum. Flokkarnir störfuðu saman í meiri- hluta á síðasta kjörtímabili. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einn hreinan meirihluta en hefur þrátt fyrir það óskað eftir áframhaldandi samstarfi við Vinstrihreyfinguna grænt framboð. „Samstarf síðustu fjögurra ára hefur reynst vel og hef- ur einkennst af trausti og samhug. Niðurstöður kosninganna eru skýr skilaboð um ánægju íbúa. Þessir tveir flokkar hafa því orðið sammála um að halda samstarfi sínu áfram á kjörtímabilinu 2010-2014,“ segir í fréttatilkynningu frá flokkunum. Haraldur Sverrisson oddviti D- lista verður bæjarstjóri, Karl Tóm- asson oddviti VG forseti bæjar- stjórnar og Herdís Sigurjónsdóttir D-lista formaður bæjarráðs. Samstarf VG og Sjálf- stæðisflokks í Mosfellsbæ Ómissandi Hrein íslensk náttúruafurð ms.is E N N E M M / S ÍA / N M 4 18 5 0

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.