Morgunblaðið - 17.06.2010, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2010
10 Daglegt líf
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Skemmtilegustu partíin eruþau þar sem er staddurgóður gítarleikari,skemmtileg söngbók og
mikið fjör,“ segir Kjartan Sverrisson
sem heldur úti vefnum Gítargrip.is
ásamt Sævari Öfjörð Magnússyni og
Arnari Tuma Þorsteinssyni.
Vefinn opnuðu þeir fyrst í októ-
ber 2008 en tóku sig til um áramótin
síðustu og endurhönnuðu hann.
„Við stofnuðum þá fyrirtæki í
kringum þetta, öfluðum okkur smá-
peninga og endurhönnuðum og end-
urforrituðum vefinn alveg frá
grunni. Afurðin er það sem fór í loft-
ið um helgina, kl. 23 á laugardags-
kvöldið nánar tiltekið,“ segir Kjartan
sem starfar sem netmarkaðsstjóri
hjá IcelandAir þegar hann er ekki að
sinna gítargripunum.
Dikta að sækja í sig veðrið
Á Gítargrip.is er að finna gít-
argrip og texta að 2304 lögum, ís-
lenskum sem erlendum.
„Notendur senda inn lögin að
megninu til sjálfir, við erum með
nokkra tónlistarmenn með okkur í
þessu sem fara yfir lögin og laga
gripin til eftir þörfum. Við reynum
að hafa þetta eins rétt og hægt er, en
við fáum ábendingar endrum og
sinnum frá höfundunum um að eitt
og annað þurfi að laga og þá gerum
við það í einum grænum. Það er að-
eins að byrja núna að tónlistarmenn-
irnir sjálfir sendi lög sín inn, eftir að
við urðum svona vinsælir. Fyrst voru
þeir bara að athuga hvort við værum
ekki örugglega búnir að ganga frá
samningum við STEF, en síðan til að
lýsa yfir ánægju með framtakið og
senda okkur ný lög og fleira. Er-
lendu lögin fáum við send inn frá not-
endum vefsins og þar ræður einfald-
lega hvað þeir vilja spila. Við erum
líka með óskalista þar sem fólk getur
sent inn beiðni um ákveðið lag,“ seg-
ir Kjartan. „Vinsælasta lagið á vefn-
um okkar er búið að vera „Hallelúja“
í ansi marga mánuði. Hinsvegar eru
önnur lög að sækja í sig veðrið, Dikta
eru að koma mjög sterk inn núna,
vinsældir þeirra síðustu mánuði end-
urspeglast í vinsældartölunum hjá
okkur. Það eru bein tengsl á milli
þess sem er vinsælt í útvarpinu og
þess sem er vinælt á vefnum hjá okk-
ur.
Bubbi Morthens er langlang-
vinsælasti listamaðurinn hjá okkur,
með flest lögin inn á vefnum.“
Toppar yfir sumartímann
Kjartan segir að umferðin á síð-
una sé mest yfir sumartímann. „Síð-
asta sumar sáum við gríðarlega
aukningu frá því um miðjan júní og
það voru þrír greinilegir toppar: fyr-
ir fyrstu góðu veðurhelgina í júní,
fyrstu helgina í júlí og fyrir versl-
unarmannahelgina. Þá var búinn til
alveg gríðarlegur fjöldi af söng-
bókum en á síðasta ári voru búnar til
yfir sexþúsund bækur í heildina,“
segir Kjartan og vísar þar til söng-
bóka sem innskráðir notendur geta
búið sér til á síðunni. Innskráðir not-
endur eru um 7500 en heimsóknir á
síðuna voru yfir þrjátíu þúsund í síð-
Góðan gítarleikara
þarf í gott partí
Ertu að fara í útilegu eða partí um helgina og langar til að slá í gegn? Á vefsíð-
unni Gítargrip.is er að finna gítargrip og texta að 2304 lögum, íslenskum sem er-
lendum, sem hægt er að nálgast sér að kostnaðarlausu. Síðunni er haldið úti af
þremur strákum sem finnst gaman að spila á gítar og taka lagið öðru hverju.
Þetta er hörkugóður grillaður kjúk-
lingur í anda bandaríska suðvest-
ursins þar sem mexíkóskra áhrifa
gætir mikir. Hægt er að nota hvort
sem er heilan kjúkling klipptan í bita
eða þá skinnlausar kjúklingabringur.
Með kjúklingnum höfum við svo
heimatilbúið Guacamole og papr-
ikusósu.
1 kjúklingur skorinn í 8 bita eða 3-4
kjúklingabringur
1 dós kryddlegnar paprikur, Ítalía
eða Sacla
Uppskrift að heimatilbúnu Guca-
mole má finna á www.vinotek.is og
www.mbl.is/matur
Í kryddlöginn fer eftirfarandi:
1-2 stilkar lemongrass, saxað niður
2 matskeiðar McCormick mes-
quite-krydd
4 hvítlauksgeirar, pressaðir
1 laukur, saxaður fínt
2 límónur, safinn pressaður
1 dl ólívuolía
1 dl Caj P grillolía
salt og pipar
Blandið öllu saman í skál. Veltið
kjúklingabitunum upp úr og leyfið
þeim að marinerast í nokkra klukku-
tíma eða allt upp í sólarhring í ísskáp.
Takið bitana úr leginum og grillið.
Á meðan er gott að undirbúa papr-
ikusósuna, sem er sáraeinfalt. Takið
paprikurnar upp úr leginum í dósinni
og maukið í matvinnsluvél ásamt ein-
um hvítlauksgeira. Setjið eina mat-
skeið af olíuleginum úr dósinni með.
Berið kjúklinginn fram með hrís-
grjónum, paprikusósunni og Guaca-
mole. Gott er að flatlaufa steinselju
fínt yfir diskana.
Með þessu ferskt og gott hvítvín,
t.d. Two Oceans Pinot Grigio eða
Lamadoro Bianco.
Steingrímur Sigurgeirsson.
Uppskriftin
Mesquite- og
lemongrass-
kjúklingur
Fleiri uppskriftir má finna á Matur
og vín-vef Morgunblaðsins: mbl.is/
matur og á vinotek.is
Hafðu samband
sími 444 7000 • arionbanki.is