Morgunblaðið - 17.06.2010, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2010
Heiða Kristín
Helgadóttir hef-
ur verið ráðin að-
stoðarmaður
Jóns Gnarr borg-
arstjóra. Heiða
Kristín er 27 ára
gömul og er
stjórnmálafræð-
ingur frá Há-
skóla Íslands.
Hún gegndi síð-
ast starfi sem almannatengill við
Vitvélastofnun Íslands. Áður starf-
aði hún m.a. sem alþjóðafulltrúi á
Alþjóðaskrifstofu Háskólans í
Reykjavík, Hún var kosningarstjóri
Besta flokksins fyrir síðustu borg-
arstjórnarkosningar.
Aðstoðarmaður
borgarstjóra
Heiða Kristín
Helgadóttir
Úthlutað hefur verið í annað sinn
styrkjum úr Náttúruverndarsjóði
Pálma Jónssonar stofnanda Hag-
kaups. Samtals var úthlutað
22.100.000 krónum til 26 verkefna
við hátíðlega athöfn í Iðnó.
Hæstu styrkirnir voru fjórir, að
upphæð 2 milljónir hver. Þá styrki
hlutu: Daníel Bergmann ljósmynd-
ari til útgáfu bókar um íslenska
fálkann, Norræna húsið til end-
urbóta á friðlandinu í Vatnsmýri í
samvinnu við Háskóla Íslands og
Reykjavíkurborg, Vanda Sig-
urgeirsdóttir kennari til dokt-
orsrannsókna um börn og náttúru,
og kvikmyndargerðarmennirnir
Steingrímur Þórðarson og Lind
Einarsdóttir til gerðar kvikmyndar
um náttúru Íslands séða með aug-
um sælkerans.
Markmið sjóðsins er að auka al-
menna þekkingu á íslenskri náttúru
svo að umgengni fólks og nýting á
verðmætum hennar geti í ríkari
mæli einkennst af virðingu og skyn-
semi. Samhliða er leitast við að
bæta tengsl Íslendinga við náttúru
landsins og efla með því gott hug-
arfar, mannlíf og atvinnustarfsemi
í sátt við náttúruna.
Stjórn sjóðsins skipa Lilja Pálma-
dóttir formaður, Skúli Skúlason
rektor Háskólans á Hólum og Guð-
mundur Oddur Magnússon prófess-
or í Listaháskóla Íslands.
Styrkveiting Verðlaunahafarnir ásamt stjórn sjóðsins.
Fjölmörg verkefni fá styrk úr Náttúru-
verndarsjóði Pálma Jónssonar
KÓR Öldutúnsskóla í Hafnarfirði
lagði af stað í tónleikaferð til
Kanada á laugardaginn 12. júní
sl. og kemur til baka á sunnudag
nk. Flogið var til Winnipeg þar
sem kórinn mun hafa aðsetur.
Dagskrá kórsins er margþætt
og heldur kórinn stutta tónleika
á öllum stöðum þar sem hann
kemur við.
Farið verður í heimsóknir til
Nýja-Íslands, Árborgar, Mikleyjar
(Hecla), Gimli og dvalarheimilis-
ins Betelstaða svo eitthvað sé
nefnt.
Hápunktur ferðarinnar eru
stórtónleikar í dag, þann 17. júní.
Fyrst mun kórinn syngja við
styttu Jóns Sigurðssonar í Þing-
húsgarðinum, síðan um kvöldið
verður farið til Winnipeg Art
Gallery þar sem aðaltónleikar
kórsins verða.
Kórinn hefur lagt metnað sinn
í að flytja íslenska tónlist og hef-
ur hann öðlast mikla færni í söng
og túlkun á íslenskum þjóðlögum
og verkum eftir íslenska höfunda.
Þá má að lokum geta að kórinn
tók nýlega þátt í gerð landkynn-
ingarmyndbands við lagið Jungle
Drum.
Kórinn Nú stendur yfir ævin-
týraferð um Kanada.
Kórferðalag til
Winnipeg
Hinn 19. júní nk., á kvenréttindeginum,
munu kvenfélagskonur í kvenfélaginu
Iðju standa fyrir áheitagöngu um Mið-
fjörð. Tilgangur göngunnar er að safna fé
til að koma rafmagni í Réttarsel við Mið-
fjarðarrétt sem er í eigu kvenfélagsins.
Yfirskrift göngunnar er „Orka fyrir Iðju.“
Gangan hefst kl. 8:00 að morgni dags og
verður gengið frá Melstað (vestan megin)
til norðurs. Bifreið mun fylgja hópnum og sjá honum fyrir vistum og þjón-
ustu. Miðfjarðarhringurinn er 40 km og er áætlað að gangan taki um 10
klst. Að henni lokinni verður grillað fyrir göngugarpana.
Í Kvenfélaginu Iðju eru 26 konur og var það stofnað árið 1935. Iðja er
mjög virkt kvenfélag og sér um ýmsar uppákomur í héraði.
Öllum er velkomið að taka þátt í göngunni og geta skráð sig í gönguna í
síma 8924101 eða síma 8918264.
Áheitaganga fyrir Kvenfélagið Iðju
Réttarsel Safnað er fyrir rafmagni.
Helgiganga í minningu Auðar djúp-
úðgu verður farin á laugardag nk. í
Dölum, þar sem hún nam land fyrir
rúmum 1.100 árum.
Göngufólki er ráðlagt að safnast
saman við bílastæðin við Kross-
hólaborg. Rúta fer þaðan kl. 14 að
Auðartóftum. Eftir stutta helgi-
stund verður farið að Hvamms-
kirkju, þar sem einnig verður helgi-
stund og gengið þaðan að
Krosshólaborg, þar sem Landnáma
segir að Auður hafi reist krossa og
haft bænahald sitt. Gangan er í allt
um 3 km. Um kl 16 verður svo
helgistund með altarisgöngu á
Krosshólaborg sem allir eru vel-
komnir til, líka þeir sem ekki geta
farið í helgigönguna.
Auðarganga
STUTT
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Óhætt er að segja að nóg verði um
að vera hér í höfuðstaðnum næstu
daga. Fjörið er reyndar byrjað því í
gær voru um hátt í þúsund manns –
gamlir MA-stúdentar, makar þeirra
og aðrir gestir – á MA-hátíð í
Íþróttahöllinni.
Löng hefð er fyrir því að gamlir
MA-stúdentar heimsæki skólann
sinn á þessum tíma. Nýstúdentar
verða svo brautskráðir í dag og skól-
anum slitið í 130. sinn. MA-ingar
setja ætíð upp hvíta kollinn á
þjóðhátíðardaginn.
Í dag hefjast árlegir Bíladagar
sem standa fram á sunnudag með
bílasýningu, sandspyrnu, torfæru,
kvartmílu og óviðjafnanlegu fyr-
irbæri sem bíladellumenn kalla
Burn-Out; þar keppast ökumenn við
að spóla afturdekk af felgunni á sem
skemmstum tíma. Sú athöfn verður
við stúku Akureyrarvallar annað
kvöld.
Árleg Flughelgi verður á laug-
ardag og sunnudag á Akureyr-
arflugvelli. Þar verður fjölbreytt
dagskrá í boði og nánast allt til sýnis
sem getur flogið.
Varla þarf að taka fram en þó
sanngjarnt, að spáð er sól og blíðu í
Eyjafirði í dag. Og logni. Skátar og
aðrir bæjarbúar gleðjast yfir því, en
skátafélagið Klakkur sér að þessu
sinni um hátíðardagskrá fyrir hönd
bæjarins.
Dagskrá í tilefni þjóðhátíð-
ardagsins hefst kl. 13 í Lystigarð-
inum. Skemmtanir verða svo í mið-
bænum um miðjan dag og í kvöld.
Í upphafi fyrsta fundar nýrrar
bæjarstjórnar í fyrradag var lesið
upp bréf frá Sigrúnu Björk Jak-
obsdóttur, sem kjörin var í bæj-
arstjórn fyrir Sjálfstæðisflokkinn,
þar sem hún baðst lausnar út kjör-
tímabilið af persónulegum ástæðum.
Var beiðnin samþykkt samhljóða.
Hermann Jón Tómasson, bæj-
arfulltrúi Samfylkingarinnar og frá-
farandi bæjarstjóri, sagðist myndu
sakna Sigrúnar. „Hún var góður og
öflugur bæjarfulltrúi sem vann vel
fyrir sveitarfélagið. Það verður
missir að henni sem bæjarfulltrúa.“
Hljóðfærasýning sem vakti
mikla athygli á Glerártorgi í fyrra
hefur verið opnuð aftur á sama stað.
Það er flott framtak! skapti@mbl.is
Flug og bíll og stúdentshúfur
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fegurð Lystigarðurinn er tilbúinn fyrir bæjarbúa og fjölmarga gesti.
Innköllun vegna rafrænnar
skráningar hlutabréfa í Högum hf.
Miðvikudaginn 23. júní 2010 verða hlutabréf í Högum hf. tekin
til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í
samræmi við ákvörðun stjórnar Haga hf. þar að lútandi. Þar af
leiðandi verður ekki tekið við tilkynningum um eigendaskipti á
bréfum félagsins 22. og 23. júní 2010. Frá þeim tíma ógildast hin
áþreifanlegu hlutabréf í félaginu í samræmi við ákvæði laga og
reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Högum hf. tekin til rafrænnar
skráningar en þau eru öll í einum flokki og gefin út á nafn hluthafa.
Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa
sem telja nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra sé
réttilega fært í hlutaskrá Haga hf. að staðreyna
skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár Haga hf.,
Hagasmára 1, 201 Kópavogi, eða í síma/tölvupóstfangi
530-5500/geg@hagar.is. Komi í ljós við slíka könnun að
eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa
sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð
réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að
koma þeim á framfæri fyrir skráningardag við fullgilda
reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfafyrirtæki eða
sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við
Verðbréfaskráningu Íslands hf.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins
verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins.
Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar hefur
engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í
félaginu að undanskildum framangreindum takmörkunum á
tilkynningum um eigendaskipti 22. og 23. júní 2010.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela
reikningsstofnun umsjón með eignarhlut sínum í félaginu til að geta
framselt hluti sína, svo sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun
stofnar í þessu skyni VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa.
Hluthöfum félagsins er kynnt
framangreint bréf leiðis.
Stjórn Haga hf.
Lögreglustjórinn
á Hvolsvelli hef-
ur ákveðið að af-
létta lokun á veg-
inum inn í
Þórsmörk að
höfðu samráði við
vísindamenn.
Vísindamenn
telja þó fulla
ástæðu til að fara varlega því lón
hefur myndast í toppi Eyjafjallajök-
uls og því hætta á vatnsflóði niður
Gígjökul. Vatn er að safnast fyrir í
lóninu og vísindamenn fylgjast náið
með því sem gerist við eldstöðina.
Lögreglan mun því takmarka um-
ferð á ný ef ástæða er til.
Þá er lónsstæðið neðan Gígjökuls
áfram talið hættusvæði en þangað
leita eitraðar gastegundir sem enn
eru að losna frá eldstöðinni og úr
nýja hrauninu að því er segir í til-
kynningu frá almannavarnadeild
ríkislögreglustjóra.
Magnús Tumi Guðmundsson,
jarðeðlisfræðingur hjá Jarðvísinda-
stofnun Háskóla Íslands, segist ekki
geta metið stöðu eða þróun lónsins
að svo stöddu. Hann kveðst brátt
ætla í flug yfir lónið og bera það
saman við myndir sem teknar hafa
verið af því síðustu daga. Þannig
muni hann meta hvort um sé að
ræða raunverulega hækkun á yf-
irborði lónsins en það gæti leitt til
flóðs yfir veginn til Þórsmerkur.
jonasmargeir@mbl.is
Þórsmörk opin
Mistök urðu við vinnslu fréttar um
framhaldsskóla, sem birtist í blaðinu
í gær. Rangt var haft eftir Inga
Ólafssyni, skólastjóra Verzl-
unarskólans. Samkvæmt fréttinni
sagði Ingi að „bestu skólarnir“ nytu
vinsælda. Í raun átti þar að standa
að „bekkjarskólarnir“ nytu vin-
sælda.
Ekki var að öllu leyti rétt greint frá
því hverjir væru vinsælustu skól-
arnir. Stóð í fréttinni að MR og
Borgarholtsskóli væru næstvinsæl-
astir á eftir VÍ. Hið rétta er að það
eru MH og MS sem verma annað og
þriðja sætið. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Bekkjarskólarnir,
ekki bestu skólarnir