Morgunblaðið - 17.06.2010, Side 38
38 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2010
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
LÍSA, HVAÐ SEGIR ÞÚ
UM MAT Í KVÖLD?
ÉG VEIT UM
ÆÐISLEGAN STAÐ
MEÐ HLAÐBORÐI
MUNDU AÐ PANTA
BORÐ FYRIR ÞRJÁ
ÞRISVAR
Á DAG
DAG EFTIR DAG, VIKU
EFTIR VIKU, BORÐAR
HANN ÞAÐ SAMA
HVAÐ
ER ÞAÐ?
PÍTSA
ÚFF
EN FRÁBÆRT!
MAMMA MÍN
ÆTLAR AÐ VERA
HJÁ OKKUR Í
ALLAN VETUR!
Í
ALVÖRU?
ÉG VISSI
AÐ HELGA
ÆTLAÐI AÐ
FÁ AÐ RÁÐA
HVAÐ YRÐI Á
HEIMILINU...
EN EF ÉG
HEFÐI VITAÐ AÐ
EITT AF ÞVÍ
VÆRI MAMMA
HENNAR ÞÁ
HEFÐI ÉG
HUGSAÐ MIG
BETUR UM
ERTU EKKI
SAMMÁLA,
BLAÐ?
...BLAÐ?!?
ÞAÐ ER EKKI VIÐ
HANN TALANDI SÍÐAN
HANN BYRJAÐI Á ÞESSU
„ORIGAMI“ KJAFTÆÐI
ÞETTA
ER ALVEG
ÓÞOLANDI
JÆJA, STEINN
SKÆRI OG BLAÐ...
FRIÐARVIÐRÆÐUNUM
MIÐAR ÁGÆTLEGA HJÁ
OKKUR, EKKI SATT?
JÆJA... ÞÁ ER
KLUKKAN ORÐIN 9
JÁ...
HEIL NÓTT
AF ÚTSÖLUM
BÚIN
ÞETTA VAR LÖNG
OG ERFIÐ NÓTT...
EIGUM VIÐ AÐ KOMA
OKKUR HEIM?
MIG LANGAR
AÐ GERA EITT
FYRST...
HÆTTU
ÞESSU!
ÉG ER
ÞREYTT!
GERÐU MÉR GREIÐA OG
RAULAÐU LAGIÐ ÚR
„ROCKY“ FYRIR MIG!
EFTIR HVERJUM ER
MARÍA EIGINLEGA AÐ BÍÐA
UNDIR ÞESSARI KLUKKU?
ÉG
HELD
AÐ...
HÚN SÉ AÐ BÍÐA EFTIR ÞÉR!
HVAÐ?!?
OG ÞAÐ ER DÓNALEGT AÐ
LÁTA DÖMUNA BÍÐA!
UNNHH...!
Fyrir hvern er
sjónvarpið?
Er það aðallega fyrir
fótboltaáhugamenn?
Hvers vegna er ekki
hægt að sýna frá er-
lendum menningar-
viðburðum, t.d. dansi
eða tónlist? Ég legg
til að sérstök íþrótta-
rás verði stofnuð.
Eldri kona í
Vesturbæ.
Kettlingur óskast
Óska eftir tveggja
mánaða kettlingi,
verður að vera fress og orðinn
kassavanur. Vinsamlega hafið
samband í síma 551-0785.
Beta.
Taggart – Dómsdagur
Þar sem fátt er um fína drætti í
ríkissjónvarpinu fyrir oss gaml-
ingjana um þessar mundir er það
beiðni mín til sjónvarpsstjóra að
endursýndur verði saka-
málaþáttur um Taggart sem var í
sjónvarpinu þriðjudaginn 8. júní
síðastliðinn.
Guðrún.
Leiðarljós
Það er hætt að framleiða Leið-
arljós í Bandaríkj-
unum, þarf sjón-
varpið ekki bara að
koma með nýja
sápu?
Inga.
Aðgát skal höfð
Eftirfarandi sms-
skilaboð birtust í
símanum mínum þar
sem ég var stödd á
ferðalagi í útlöndum:
Mannslát í Stykkis-
hólmi. Fór að synda
og drukknaði. Ég
hneig niður í næsta
stól því ég á syni
sem stunda sjósund.
Á næsta skjá kom í ljós að
þetta átti ekki við mig því undir-
skriftin var Óli og ég þekki eng-
an Óla sem myndi senda slíka
frétt með sms.
Ég var lengi að jafna mig eftir
skelfinguna. Sms-ið var frá Ja.is
svo ég gat ekki svarað sending-
unni. Því mælist ég til að Óli og
allir aðrir sem þurfa að koma vo-
veiflegum tíðindum á framfæri
með þessum hætti, vandi sig þeg-
ar númer viðtakanda er valið.
Guðrún Halla Guðmundsdóttir.
Ást er…
… kokteilar fyrir tvo.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Ljóðabókin Undir breðans fjöll-um kemur út í dag, en hún
hefur að geyma ljóð og lausavísur
Þorsteins Jóhannssonar Svínafelli
í Öræfum (f. 1918, d. 1998). Þor-
steinn var bóndi, en starfsvett-
vangur hans löngum bundinn
skólastarfi, verkstjórn í vegagerð
og sláturhúsi, félagsmálastörfum
og fleira. Ljóðin eru hefðbundin
og fela í sér reynslu hans, lífssýn
og ættjarðarást. Þar á meðal er
Sólarlag:
Gengur nú sól til sængur, –
saumuð gullbekkjuð rekkjan, –
lýsir af ári ljósu,
leggur varma frá barmi. –
Dagur þá höfði hneigir
hljóður og vangarjóður,
hægur af veraldar vegi
víkur og háttar líka.
En Þorsteinn orti einnig margar
vísur og bragi í léttum dúr:
Mörgum verður manninum
mein að heimsku sinni.
Segja má með sanninum
að seint þeim galla linni.
Í skólanum orti Þorsteinn oft
um það sem fór fram í skólastof-
unni, eins og í vísu undir yf-
irskriftinni „Í reikningstíma“:
Á reikningsdæminu rjóð og sveitt
reyndum við okkar viskukraft,
útkoman reyndist ekki neitt,
oft fyrir litlu er mikið haft.
Og þegar nemandi hallaði sér í
stólnum svo hann missti jafn-
vægið:
Drengur einn í sessi sat
og safnaði í andans hólfið
en stóllinn ekki staðið gat
og steyptust þeir á gólfið.
Lærdómurinn getur verið glopp-
óttur:
Vitið út í vindinn fór,
verður margur af því sljór;
en loksins þegar lægja fer,
leitina að því hefjum vér.
Að síðustu er hér teflt fram
tveim vísum eftir Þorstein um
ásatrú:
Óðinn guða æðstur var
Ásatrúarmanna,
kollinn hátt í Hliðskjálf bar,
húsráðandi Valhallar.
Hans á öxlum hrafnar tveir,
hyggjufróðir sátu.
Huginn og Muninn hétu þeir,
hvíslað mörgu gátu.
Vísnahorn pebl@mbl.is
Af Þorsteini og skólavísum
Að skrifa minningagrein
Ekkert gjald er tekið fyrir birtingu minningagreina.
Þær eru einnig birtar á www.mbl.is/minningar.
Skilafrestur minningagreina er á hádegi tveimur virkum
dögum fyrir útfarardag, en á föstudegi vegna greina til
birtingar á mánudag og þriðjudag.
Fjöldi greina í blaðinu á útfarardag ræðst af stærð blaðsins
hverju sinni en leitast er við að birta allar greinar svo fljótt
sem auðið er. Hámarkslengd minningagreina er 3.000
tölvuslög með bilum. Lengri greinar eru vistaðar á vefnum,
þar sem þær eru öllum opnar.