Morgunblaðið - 17.06.2010, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 2010
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU
TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALIAKKA SÝND Í KRINGLUNNI
Frá framleiðanda Pirates of the
Caribbean þríleiksins Jerry Bruckheimer
kemur ein stærsta bíóupplifun ársins.
HHHH
„Myndin er veisla fyrir augað
og brellurnar flottar“
„Fagmannlega unnin – Vel leikin
Skemmtileg – Stendur
fullkomlega fyrir sínu“
Þ.Þ. - FBL
‘A joy from start to finish.’
Daily Telegraph
‘The funniest and most
assured comedy in
all of London.
Not to be missed.’
Sunday Express
‘A treat – stylish,
hilarious and
unmissable.’
Sunday Times
tryggðu þér miða
í tíma á midi.is
eða í miðasölu
Sambíóanna
LEIKRIT Í BEINNI
ÚTSENDINGU Á
STÓRA TJALDIÐ!
28. júní kl. 18.00
Frá sviði á stóra tjaldið í
Sambíóunum Kringlunni
beint frá National
Theatre, London
‘A resounding hit.’
Independent
LEIKFANGASAGA 3 kl. 5:50 - 8 ísl. tal L
BROOKLYN'S FINEST kl. 10:10 16
SEX AND THE CITY 2 kl. 6 - 9 12
LEIKFANGASAGA 3 3D ísl. tal kl. 3:203D - 5:403D L
TOY STORY 3 3D m. ensku tali kl. 83D L
THE LOSERS kl. 10:20 12
PRINCE OF PERSIA kl. 6 10
SEX AND THE CITY 2 kl. 9 12
THE LAST SONG kl. 4 L
LEIKFANGASAGA 3 ísl. tal kl. 5:50 L
TOY STORY 3 ensku tali kl. 8 L
SNABBA CASH m. sænsku tali kl. 10:10 16
PRINCE OF PERSIA kl. 5:40 12
THE BACK-UP PLAN kl. 8 L
BROOKLYN'S FINEST kl. 10:10 16
/ KEFLAVÍK / SELFOSSI/ AKUREYRI
CARRIE, SAMANTHA,
CHARLOTTE OG MIRANDA ERU
KOMNAR AFTUR OG ERU Í
FULLU FJÖRI Í ABU DHABI.
HEITASTA STELPUMYND SUMARSINS
SKEMMTILEGASTI
VINKVENNAHÓPUR
KVIKMYNDA-
SÖGUNNAR ER
KOMINN Í BÍÓ
GLAUMUR, GLAMÚR OG SKÓR ERU MÁLIÐ Í SUMAR
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
Street Dance 3D er mikil flat-neskja sem augljóslega erætlað að höfða til dans-glaðra unglinga. Nokkrum
hæfileikaríkum, ungum dönsurum
var smalað í tökur og þeir látnir
sýna listir sínar. Utan um dans-
atriðin er svo örlítil saga sem er svo
fyrirsjáanleg að áhorfandinn veit
alltaf hvað gerist næst. Það er svo
sem ekkert nýtt í myndum á borð við
þessa, tilgangurinn er væntanlega
sá að selja myndina út á dansinn og
annað er bara uppfylling svo hægt
sé að kalla þetta kvikmynd. Dans-
ararnir ungu eru fagrir mjög og vöð-
vastæltir og tilþrifin í dansinum eru
glæsileg en það sama verður ekki
sagt leiklistina, enda býður hand-
ritið ekki upp á leiksigra.
Í myndinni segir af götudanshópi í
London sem stefnir á fyrsta sæti í
árlegri götudanskeppni. Sigurlaunin
eru ferð til Bandaríkjanna, á götu-
danskeppni þar, en Bandaríkin virð-
ast vera fyrirheitna landið þegar
kemur að slíkum dansi. Ríkjandi
götudansmeistarar eru The Surge,
vígalegur hópur karldansara sem
virðist ósigrandi, slík eru tilþrifin
hjá þeim töffurum. Carly, ung götu-
dansmær sem vinnur fyrir sér með
því að smyrja og selja samlokur og
færa viðskiptavinum úti í bæ, fær
það verkefni að stýra götudans-
hópnum eftir að leiðtogi hans og
kærasti hennar, Jay, yfirgefur hóp-
inn (segist þurfa að fá að vera út af
fyrir sig, þarf næði til sköpunar).
Danshópurinn missir æfinga-
húsnæði sitt og stefnir allt í að hann
geti ekki æft fyrir keppnina. Þá
býðst Carly æfingahúsnæði í ball-
ettskóla með því skilyrði skólastýr-
unnar að hópur ballettnema verði
með í götudansinum. Carly fær það
erfiða verkefni að kenna þeim réttu
sporin. Mikill rígur er í fyrstu milli
þessara ólíku danshópa en fer þó svo
á endanum að hvor hópur lærir að
meta list hins og Carly verður skotin
í ballettstráknum Tómasi.
Í grunninn er þetta ekki svo galin
hugmynd, skotheld unglingasaga
þar sem andstæður mætast (ballett
og götudans), ástin sigrar allt og
draumar rætast. En leikstjórarnir
fara illa með efniviðinn. Dansatriðin
eru það eina sem halda manni vak-
andi og lítið út á þau að setja, sum
þeirra eru hreint út sagt frábær og
þá sérstaklega hjá „vonda“ dans-
hópnum, The Surge. Myndatakan er
hins vegar ekki upp á marga fiska,
sjónarhornin fá og klippingar hefðu
mátt vera miklu hraðari. Undar-
legar senur með dönsurunum einum
að sprikla heima hjá sér (minna á
Flashdance) eða uppi á þaki draga
myndina á langinn og fá mann til að
líta á úrið. Þó er myndin aðeins 98
mínútur. Þessar senur virðast til
þess eins gerðar að sýna fagra
kroppa dansaranna og það kunna ef-
laust margir að meta. Hálffertugir
karlmenn eru ekki markhópurinn og
sá sem hér rýnir gerir sér það ljóst,
sjálfsagt hefði hann litið þetta öðr-
um augum fyrir 20 árum eða svo.
Street Dance 3D er sýnd í þrívídd
og fékk undirritaður sérstök gler-
augu til þess að geta séð myndina.
Þessi gleraugu voru býsna óþægileg
og þrívíddin gerði þar að auki afar
lítið fyrir myndina, nema þá kannski
í yfirlitsmyndum af London. Hefði
maður þá heldur kosið að sjá dans-
arana í hinni hefðbundnu tvívídd.
Vonandi heldur hún velli.
Illa farið með gott hráefni
Háskólabíó, Smárabíó,
Laugarásbíó
Street Dance 3D bbnnn
Leikstjórar: Max Giwa & Dania Pasquini.
Aðalhlutverk: Charlotte Rampling,
Nichola Burley, Rachel McDowall
og Richard Winsor.
HELGI SNÆR
SIGURÐSSON
KVIKMYNDIR
Götudans Andstæðingar götu- og ballettdansaranna í Street Dance 3D, danshópurinn The Surge.