Morgunblaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 2
Sumarið er tími námskeiða fyrir börn og ung-
linga og langflest tengjast þau hreyfingu og úti-
vist. Í Nauthólsvík fer fram siglinganámskeið
þar sem krökkum eru kennd undirstöðuatriði
róðurs og siglinga og fá þeir að kynnast árabát-
um, kajökum, kanóum og seglbátum.
Oft er brugðið á leik, t.d. er hlaupið á milli kaj-
akanna og þá ríður á að halda jafnvæginu og
muna um leið að enginn er verri þótt hann vökni.
Brugðið á leik á kajökum í Nauthólsvík
Morgunblaðið/Kristinn
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010
Grillosturinn
bráðnar
37% hraðar
en venjulegu
r ostur
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
I
/S
ÍA
–
1
0
-0
3
2
1
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Hollenskir embættismenn innan
Evrópusambandsins telja sig hafa
fullvissu fyrir því að Icesave-deilan
sé ekki lengur milliríkjadeila á milli
Íslands annars vegar og Hollands
og Bretlands hins vegar heldur deila
á milli Íslands og ESB-ríkjanna 27.
Þetta segir Leigh Phillips, blaða-
maður EU Observer. Í samtali við
fréttavef Morgunblaðsins í gær
sagði hann hátt setta embættismenn
hafa staðfest að José Manuel Bar-
roso, framkvæmdastjóri Evrópu-
sambandsins, hefði nýlega lýst yfir
áhyggjum af því hversu klofin ís-
lenska þjóðin væri gagnvart aðild-
arumsókninni.
Phillips telur ennfremur að ekk-
ert aðildarríkjanna sé beinlínis and-
vígt aðild Íslands. „Bretar og Hol-
lendingar vilja hins vegar að lausn
fáist á Icesave-deilunni áður en að-
ildarferlið getur haldið áfram.
Á fundi mínum með hollenskum
diplómötum í gær kom fram að þeim
hefði tekist að vinna hin Evrópu-
sambandsríkin á sitt band þannig að
þau litu ekki lengur á þetta mál sem
tvíhliða deilu á milli Íslands og
ríkjanna tveggja heldur sem mál er
varðaði allt Evrópusambandið. “
Engin tengsl á milli málanna
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra segir hins vegar eng-
um vafa undirorpið að engin tengsl
séu á milli Icesave-deilunnar og að-
ildarumsóknar að Evrópusamband-
inu. Spurður hvernig standi þá á því
að hollenskir diplómatar hafi talað
með þeim hætti sem Leigh Phillips
lýsir, segir Steingrímur: „Það getur
vel verið að þeir telji þetta sín meg-
in frá. Það er þá einhliða af þeirra
hálfu. Þetta er ekkert sem við höf-
um samþykkt eða skrifað upp á eða
getum þess vegna haft áhrif á.“
Ekki stuðningsmaður inn-
göngu
Steingrímur segist aðspurður
ekki hafa miklar áhyggjur af því að
Icesave standi í vegi fyrir aðild Ís-
lands að ESB. „Ég er nú þannig
staddur í því máli að ég er ekki
stuðningsmaður inngöngu,“ segir
hann, en ítrekar að einnig líti hann á
þetta sem tvö aðskilin mál. bald-
ura@mbl.is
Saman gegn Íslandi
ESB-ríkin standa saman í Icesave-deilunni, segir hol-
lenskur blaðamaður Óskyld mál, segir fjármálaráðherra
„Ég lít á þetta sem
tvö algerlega að-
skilin mál,“ segir
Steingrímur um
Icesave og ESB.
Ákvörðun héraðsdóms um lokað þinghald í hinu svokall-
aða vændiskaupamáli stendur óhögguð.
Hæstiréttur hefur vísað kærumáli Höllu Gunnarsdótt-
ur, blaðamanns og talskonu Femínistafélags Íslands, frá
dómi en Halla kærði til réttarins úrskurð héraðsdómara
um að þinghald skyldi vera lokað.
Meirihluti Hæstaréttar, sem voru tveir dómarar af
þremur, taldi Höllu ekki hafa lögvarða hagsmuni af mál-
inu og þar af leiðandi væri hún ekki aðili málsins og gæti
ekki haft uppi kröfur í því.
Forsaga málsins er sú að héraðsdómari ákvað að
þinghald skyldi vera lokað í málum ákæruvaldsins á
hendur 11 karlmönnum sem gefið er að sök að hafa
keypt vændisþjónustu. Halla taldi þá ákvörðun veita
vændiskaupendum meiri friðhelgi einkalífs en öðr-
um brotamönnum.
Það er grundvallarregla að þinghald sé opið í
dómsmálum. Undantekningar má þó gera í sérstak-
lega viðkvæmum málum. hjaltigeir@mbl.is
Rétturinn segir blaðamann
skorta lögvarða hagsmuni
Ákvörðun um lokað þinghald
í vændiskaupamáli staðfest
„Þetta eru vægast
sagt furðuleg
vinnubrögð. Lúð-
vík lét hafa eftir
sér fyrir kosn-
ingar að þær
myndu snúast um
hann. Hann tók
síðan baráttusæti
og komst ekki inn.
Þar við situr,“
segir Jóhann
Skagfjörð, einn þriggja sem hyggjast
hrinda af stað undirskriftasöfnun í
Hafnarfirði til að knýja fram at-
kvæðagreiðslu um ráðningu Lúðvíks
Geirssonar sem bæjarstjóra. Sam-
kvæmt reglum Hafnarfjarðarbæjar
geta bæjarbúar knúið fram atkvæða-
greiðslu um ákvörðun bæjarstjórnar
ef a.m.k. 25% kosningabærra manna
krefjast þess. Slíkt var gert þegar at-
kvæðagreiðsla um stækkun álversins
í Straumsvík var knúin fram. Jóhann
er mjög bjartsýnn á að 25%, eða 4.500
manns, skrifi undir en söfnunin mun
hefjast í næstu viku og standa í mán-
uð. „Úrslit kosninganna, kjörsókn og
fjöldi auðra seðla segir sína sögu.
Kjósendur vildu breytingar. Þetta er
eins og einhver 2007 stjórnmál og við
viljum bara ekki sjá svona vinnu-
brögð.“ Jóhann segir að atkvæða-
greiðsla muni snúast um hvort ráða
eigi Lúðvík sem bæjarstjóra eða ekki
en hópurinn að baki undirskriftasöfn-
uninni mælist til þess að starf bæj-
arstjóra Hafnarfjarðar verði auglýst
laust til umsóknar.
Íbúar
kjósi um
ráðningu
Lúðvík
Geirsson
Undirskriftasöfnun
tilkynnt á mánudag
Ragnheiður Elín
Árnadóttir ætlar
ekki að gefa kost
á sér í embætti
varaformanns
Sjálfstæð-
isflokksins.
Segist hún ætla
að einbeita sér að
þeim verkefnum
sem hún hafi þeg-
ar tekið að sér.
Hún er nú þingflokksformaður og
oddviti Suðurkjördæmis.
Gefur ekki
kost á sér
Ragnheiður Elín
Árnadóttir
Hjördís Hákonardóttir, hæstaréttardómari, skilaði
sératkvæði í kærumálinu. Hún segir Höllu Gunn-
arsdóttur geta átt aðild að málinu á þeim grund-
velli að hún sé blaðamaður. Þá taldi Hjördís að
kæran ætti að fá efnislega umfjöllun Hæsta-
réttar.
Vitnar Hjördís þar m.a. í skyldu Höllu sem
blaðamanns til að upplýsa almenning um
meðferð og framgang dómsmála.
Telur Hjördís að blaðamaður falli þann-
ig undir 2. mgr. 10. gr. laga nr. 88/2008
um meðferð sakamála.
Blaðamenn eigi að
upplýsa almenning
SÉRATKVÆÐI HJÖRDÍSAR HÁKONARDÓTTUR
Lögreglan á Selfossi handtók þrjá
karlmenn í gær vegna tilraunar til
að smygla sterum inn á Litla-
Hraun. Mennirnir fóru með bíl í bón
á fangelsislóðinni en við leit í öku-
tækinu fannst mikið magn af ster-
um í föstu og fljótandi formi. Öku-
maður bifreiðarinnar vissi ekki af
smyglinu. Að sögn lögreglunnar á
Selfossi er málið upplýst enda hafi
höfuðpaurinn játað.
Lögreglan segir að þó algengt sé
að menn reyni að smygla sterum í
fangelsið hafi hún ekki séð þessari
aðferð beitt áður.
Morgunblaðið/Ómar
Í bón á Hraunið Mennirnir fóru með bíl
fullan af sterum í bón á fangelsislóðinni.
Keyrðu með stera inn
á lóð Litla-Hrauns