Morgunblaðið - 19.06.2010, Síða 10
Vinnutæki
Öryggis-
vörður í kvik-
myndinni
Mall Cop
ferðaðist um
verslunar-
miðstöðina á
Segway
hjóli.
PRUFUTÍMINN
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Bara ef þetta gæti líka flog-ið,“ hugsaði ég með sjálfrimér, full af frelsistilfinn-ingu, þar sem ég nánast
sveif áfram á svokölluðu Segway-
hjóli á planinu við Morgunblaðs-
húsið í gærmorgun. Það hefði verið
ótrúlega flott að takast allt í einu á
loft, svífa um eins og fuglinn fljúg-
andi en ég varð víst að sætta
mig við að vera á jörðu niðri.
Ég geystist áfram með vind-
inn í hárinu og fannst ég geta
allt … eða þannig. Segway-
hjól komast takmarkað en
samt ótrúlega mikið
miðað við stærð.
Hjólin eru snið-
ug uppfinning,
koma í veg fyrir
að fólk þurfi að
labba og þar af
leiðandi tilvalin
fyrir letihauga
og þá sem komast
ekki leiðar sinnar
auðveldlega á tveim-
ur jafnfljótum.
Það setti nú smá-
geig að mér þegar
Bjarni Ólafur Guð-
mundsson hjá SegVeyj-
um, sem er Segway-
hjólaleiga, mætti með
hjól í vinnuna til mín til að
leyfa mér að prófa. Ég kýs
að hafa mína fáka lifandi,
ekki tvíhjóla tryllitæki sem
við fyrstu sýn virðist ekki
vera með neinar bremsur.
Listin við Segway, eins og
með margt ann-
að, er að ná
tökum á því,
halda jafn-
vægi og finna
bestu leiðina til
að stýra tækinu
og þá er þetta
ekkert mál.
Rassinn út
til að bakka
Hjólinu er
stjórnað með lík-
amanum og það
kom mér á óvart
hversu lítið þarf
að hreyfa sig til
að stjórna hjól-
inu, það þarf rétt
að halla sér fram
til að auka
hraðann, það
nægði mér
síðan bara að
setja rassinn
aðeins út til
að bakka og
stíga létt í
annan hvorn
fótinn til að
beygja.
Ótrúlega ein-
falt þegar
maður hefur náð tökum á því og að
sjá Bjarna á hjóli var eins og það
væri bara framlenging á líkama
hans, lét fullkomlega að stjórn án
þess að hann hreyfði sig sjáanlega
mikið. Öðru gegndi með mig, í
fyrstu ferð rak ég upp nokkra pí-
kuskræki, fannst ég vera að klessa
á allt og fara allt of hratt. En eins
og við var að búast kom jafnvægið
og stjórnin á tækinu og þegar það
var komið var þetta alveg frábært
og ég þaut óhrædd áfram, það var
svolítið sérstakt að standa kyrr en
fara samt áfram. Stjórnin á tækinu
kom samt ekki fullkomlega í þess-
um eina tíma, ég átti það til að halla
mér of mikið fram eða aftur, gleyma
að hugsa út í að beygja og ég bakk-
aði einu sinni á sjálfa mig. En mikið
lifandis ósköp var nú gaman að
prófa þetta þótt ég taki svona hjól
nú ekki framyfir mína tvo heil-
brigðu fætur.
Kemst fjörutíu kílómetra á
einum fullhlöðnum tanki
Hvert Segway-hjól er 47 kg að
þyngd, kemst mest upp í 20 km
hraða og getur farið í 360 gráður.
Hjólið er rafdrifið og algjörlega um-
hverfisvænt eins og Bjarni orðar
það. „Þú stingur bara í samband til
Píkuskrækir á
tvíhjóla „tryllitæki“
Nú er farið að bjóða upp á Segway-hjólatúra á Íslandi. Segway-hjól eru léttir og
auðveldir fararskjótar sem komast yfir ótrúlegustu torfærur. Eins og blaðamaður
fékk að kynnast þarf smátækni til að stýra þessu tryllitæki en stýripinninn er lík-
aminn sjálfur. Hjólin komast upp í 20 km hraða og 40 km leið á fullri rafmagns-
hleðslu en þau fljúga samt ekki eins og sumir óskuðu sér.
Eigin herrar Fjölskylda á ferðalagi um Vest-
mannaeyjar á Segway-hjólum.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010
Ármúla 13a | Borgartúni 26 | 540 3200 | www.mp.is
Varfærni, einfalt þjónustuframboð og örugg
vinnubrögð skipta öllu máli fyrir fólk og fyrirtæki.
Þannig á banki að vera.
Netgreiðsluþjónusta
Gjaldeyrisreikningar
Sparnaðarreikningar
Yfirdráttur
Debetkort
Launareikningur
Kreditkort
Netbanki
Viltu gerast viðskiptavinur
elsta starfandi banka á Íslandi?
Við sjáum um það fyrir þig.
Sigríður Einarsdóttir
útibússtjóri Ármúla
Fyrir þá sem sakna hávaðans frá fót-
boltaleikjunum á Heimsmeist-
aramótinu í fótbolta, þegar þeir eru
ekki að horfa, er komin netútvarps-
stöð í loftið sem útvarpar hávað-
anum.
Á vefsíðuni Vuvuzela.fm eru út-
sendingar Vuvuzela Radio sem er út-
varpsstöð sem spilar eingöngu hljóð-
ið frá vuvuzela-lúðrunum sem hafa
yfirgnæft allt annað hljóð á leikjum
heimsmeistaramótsins. Útsendingar
útvarpsins eru stanslaust allan sólar-
hringinn, án allra auglýsingahléa svo
hlustandinn getur fengið sinn
skammt af óhljóðum óáreittur.
Rætt hefur verið um að banna
vuvuzela-lúðrana á leikjum keppn-
innar en mikið hefur verið kvartað
undan þeim frá því keppnin hófst.
Vart heyrist mannsins mál á leikj-
unum vegna stöðugs lúðrablásturs
þannig að lítið heyrist af hefðbund-
inni hvatningu eða söngvum áhorf-
enda. Leikmenn, þjálfarar og starfs-
menn sjónvarps- og útvarpsstöðva
hafa kvartað mikið undan hávað-
anum og segja nær ógerlegt að tala
saman á vellinum.
Þeir sem hafa unun af lúðrablæstr-
inum þurfa ekki að örvænta ef hann
verður bannaður því hægt er að
hlusta á hann allan sólarhringinn á
Vuvuzela.fm.
Vefsíðan www.vuvuzela.fm
Reuters
Óhljóð Blásið í vuvuzela-lúður á áhorfendapöllunum í Suður-Afríku.
Stanslaus lúðraþytur
21. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í
dag, á sjálfan Kvenréttindadaginn 19.
júní. Er hlaupið í ár því tileinkað krafti
og elju íslenskra kvenfélaga.
Með samstöðu, áræði og dugnaði
hafa kvenfélagskonur á Íslandi hrint í
framkvæmd fjölmörgum framfara- og
velferðarmálum fyrir samfélagið. Fyr-
ir 80 árum stofnuðu þær Kvenfélaga-
samband Íslands, KÍ, sem samein-
ingar og samstarfsvettvang
kvenfélaganna í landinu. Undir merkj-
um KÍ starfa þúsundir kvenna á öllum
aldri og mynda þannig keðju góðra
verka og vináttu. Kvennahlaupið er í
samstarfi við Kvenfélagasamband Ís-
lands í ár og er slagorðið Konur eru
konum bestar.
Hlaupið verður víðast hvar á land-
inu og eru hlaupaleiðir 1 km til 10 km.
Allir geta tekið þátt. Á flestum stöð-
um byrjar hlaupið kl. 11 en sumstaðar
kl. 14 eða á öðrum tímum.
Kvennahlaupið fer nú í fyrsta skipti
fram í Viðey, þar verða farnir 3 km.
Einnig hafa íslenskar konur erlendis
tekið sig saman og verður meðal ann-
ars Kvennahlaup í Danmörku, Noregi,
Bretlandi, Færeyjum og Þýskalandi.
Kvennahlaupsbolurinn í ár er fal-
lega appelsínugulur og úr Dry-fit
efni.
Fyrsta Kvennahlaup ÍSÍ var haldið
30. júní árið 1990 í tengslum við
Íþróttahátíð ÍSÍ, þá var hlaupið í
Garðabæ og á sjö stöðum um landið.
Endilega...
..hlaupið konur
hlaupið
Morgunblaðið/Jim Smart
Kvennahlaup Árið 2005 var blátt.
10 Daglegt líf