Morgunblaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 20
20 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Yfirvöld í Svíþjóð verða með mikinn
öryggisviðbúnað í Stokkhólmi í dag
þegar Viktoría krónprinsessa giftist
Daniel Westling, fyrrverandi einka-
þjálfara sínum, í dómkirkju borgar-
innar.
Lögreglan í Stokk-
hólmi verður með meiri
viðbúnað en nokkru sinni
fyrr. Um 2.000 lög-
reglumenn verða á götum
borgarinnar í nýjum bún-
ingum vegna brúðkaups-
ins. Lögreglunni til að-
stoðar verða um 6.000
hermenn og sænska
ríkisútvarpið sagði
þetta umfangs-
mestu aðgerð sem
sænski herinn
hefði tekið þátt í.
„Þetta er mjög
stórt verkefni fyrir okk-
ur. Það er ekki svo að
við höfum aldrei gert
neitt þessu líkt áður en
umfangið er sérlega
mikið núna,“ sagði
sænski undirofurstinn
Richard Beck-Friis
Häll í viðtali við út-
varpið.
Á meðal hermannanna eru tón-
listarmenn í nítján herlúðrasveitum
sem eiga að leika fyrir brúðhjónin
og fylgdarlið þeirra þegar þeim
verður ekið um miðborgina. Átján
orrustuþotur eiga að fljúga yfir
borgina.
Kóngafólk hvaðanæva úr heim-
inum verður á meðal um
500 gesta sem boðið
var í hátíðar-
kvöldverð í konungs-
höllinni í Stokkhólmi
eftir vígsluathöfnina
í dómkirkjunni.
Á meðal boðs-
gestanna eru Margrét II
Danadrottning, Har-
aldur V Noregskon-
ungur, Beatrix Hol-
landsdrottning og
Albert II Belgíu-
konungur.
Frá fjarlægari
löndum koma með-
al annars Abdullah
Jórdaníukonungur
og krónprins
Japans. Játvarð-
ur prins verður
fulltrúi bresku
konungsfjöl-
skyldunnar. Í
brúðkaups-
veislunni
verða einnig nokkrir gestir sem titl-
aðir eru sem konungar eða prinsar
þótt þeir séu ekki þjóðhöfðingjar í
heimalöndum sínum. Þeirra á meðal
eru Konstantín Grikkjakonungur og
Simeon Saxe-Coburg, fyrrverandi
forsætisráðherra og konungur Búlg-
aríu.
Ólafur Ragnar Grímsson, for-
seti Íslands, og Tarja Halonen, for-
seti Finnlands, eru einnig á meðal
veislugestanna. Þau verða einu þjóð-
höfðingjar lýðvelda í veislunni, að
sögn fréttastofunnar AFP.
Umdeildir gestir
Gestalistinn er nokkuð um-
deildur því að á meðal gestanna eru
fulltrúar nokkurra einræðisstjórna
og ríkja sem hafa verið gagnrýnd
fyrir mannréttindabrot.
Á meðal umdeildra gesta kon-
ungsfjölskyldunnar eru sendiherrar
Norður-Kóreu, Írans, Simbabve,
Hvíta-Rússlands, Sádi-Arabíu,
Egyptalands, Kúbu, Líbýu og Sýr-
lands, að sögn fréttavefjar Svenska
Dagbladet.
Sænskir fjölmiðlar hafa einkum
gagnrýnt konungsfjölskylduna fyrir
að bjóða sendiherra Afríkuríkisins
Erítreu og telja það óeðlilegt í ljósi
þess að sænskum blaðamanni,
Dawit Isaak, hefur verið haldið í
fangelsi í landinu án ákæru í níu ár.
Allir ráðherrar sænsku
stjórnarinnar sitja veisluna og einn-
ig leiðtogar allra stjórnmálaflokka
landsins að einum undanskildum.
Lýðveldissinninn Lars Ohly, leiðtogi
Vinstriflokksins, afþakkaði boðið.
Hann kvaðst óska brúðhjónunum
velfarnaðar í hjónabandinu en hafa
ákveðið að mæta ekki í veisluna
vegna þess að hann þekkti þau ekki
og væri andvígur konungdæminu.
Um 2.000 blaðamenn eru í
Stokkhólmi til að fjalla um brúð-
kaupið og hjónavígslan verður sýnd
í umfangsmestu beinu útsendingu í
sögu sænska ríkissjónvarpsins. Um
Mikið um dýrðir í
brúðkaupi Viktoríu
Umfangsmesti öryggisviðbúnaður í sögu Stokkhólms
Margir Svíar hafa fengið nóg af fjölmiðlaumfjölluninni
Viktoría krón-
prinsessa
Bráðabirgðaforseti Mið-Asíulandsins Kirgistans
sagði í gær að líklega lægju um 2.000 manns í valn-
um eftir árásirnar sem hófust þar í vikunni sem
leið. Roza Otunbajeva, sem gegnir forsetaembætt-
inu til bráðabirgða, sagði þetta þegar hún heim-
sótti bæinn Osh þar sem vopnaðir hópar Kirgisa
hófu árásir á Úsbeka fyrir rúmri viku.
Embættismenn í heilbrigðisráðuneyti Kirgist-
ans sögðu að 192 hefðu beðið bana í árásunum en
Otunbajeva viðurkenndi að sú tala væri alltof lág.
„Ég myndi margfalda opinberu töluna með tíu,“
sagði hún. Hún bætti við að venja væri í Kirgistan
að bera fólk til grafar sama dag og það deyr, þann-
ig að mörg fórnarlömb árásanna hefðu verið graf-
in áður en fulltrúar heilbrigðisráðuneytisins gátu
skráð líkin.
Tugir þúsunda flúðu til grannríkisins Úsbekist-
ans vegna árásanna og talið er að 300.000 manns
til viðbótar séu á flótta í Kirgistan. Embættis-
menn Sameinuðu þjóðanna sögðust vera að búa
sig undir að hjálparstofnanir þyrftu að aðstoða allt
að milljón manna vegna ófremdarástandsins í
landinu eftir manndrápin. Mannréttindaráð SÞ
hvatti til óháðrar rannsóknar á manndrápunum.
Reuters
Á flótta Úsbekar frá Kirgistan í flóttamannabúðum í Úsbekistan. Talið er að um 100.000 Úsbekar hafi flúið þangað vegna árása vopnaðra hópa Kirgisa.
Talið að um 2.000 manns liggi í valnum
Matti Vanhanen, forsætisráðherra
Finnlands, sagði af sér í gær eftir að
hafa gegnt embættinu í sjö ár.
„Forsetinn hefur samþykkt af-
sagnarbeiðni forsætisráðherrans og
beðið hann að gegna embættinu
áfram þar til ný stjórn hefur verið
mynduð og ráðherrar skipaðir,“ sagði
Tarja Halonen, forseti Finnlands.
Vanhanen og ríkisstjórn fjögurra
mið- og hægriflokka verða því við
völd þar til á þriðjudag þegar þingið á
að kjósa nýjan forsætisráðherra. Tal-
ið er nánast öruggt að nýr leiðtogi
flokks Vanhanens, Miðflokksins,
Mari Kiviniemi, verði næsti forsætis-
ráðherra. Líklegt þykir að Kiviniemi
gegni embættinu fram að næstu
þingkosningum sem eiga að fara
fram í apríl á næsta ári. Gangi þetta
eftir gegna konur tveimur valda-
mestu embættum Finnlands í annað
skipti í sögu landsins.
Stjórnarandstæðingar kröfðust
þess í gær að kosningunum yrði flýtt
vegna afsagnar Vanhanens og sögðu
að ekki væri nóg að skipta um for-
sætisráðherra. Stjórnarflokkarnir
ætla að semja nýja starfsáætlun en
ekki er búist við miklum breytingum
á stefnunni.
Vanhanen er 54 ára og varð for-
sætisráðherra árið 2003. Hann til-
kynnti í desember að hann hygðist
segja af sér sem leiðtogi flokksins
vegna skurðaðgerðar á fæti. Finnskir
fjölmiðlar hafa þó verið með vanga-
veltur um að hann hafi ákveðið að
víkja vegna ásakana um að hann hafi
brotið lög um fjármögnun kosninga-
baráttu.
Matti Vanhanen Mari Kiviniemi
Vanhanen
segir af sér