Morgunblaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.06.2010, Blaðsíða 35
Minningar 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010 ✝ Karl Þór Þorkels-son fæddist í Vest- mannaeyjum 15. októ- ber 1939. Hann lést á heimili sínu í Reykja- vík 8. júní 2010. Hann var sonur hjónanna Þorkels Sigurðssonar, f. 16. janúar 1913, d. 25. desember 1998, og Rakelar Káradóttur, f. 4. sept. 1917, d. 10. ágúst 1980. Albróðir, Sigurður, f. 1943. Bróðir, samfeðra, Sig- urður Einar, f. 1937. 17. júní 1961, giftist Karl Sigrúnu R. Eymundsdóttur, þau skildu. Börn Karls og Sigrúnar. a) Þóra Guðrún, f. 3.3. 1972. Börn: Ingi Þór, f. 1989; Birta Líf, f. 1996; Júlíus Breki, f. 2001. b) Örvar, f. 14. 2. 1973. Sambýliskona, Aðalheiður Rut Önundardóttir, f. 1972. Börn: Tindur Örvar, f. 2001; Máni Örvar, f. 2004. Barn Aðalheiðar og stjúp- dóttir Örvars, Þuríður Kristín, f. 1989. Karl flutti með foreldrum sínum til Reykjavíkur frá Vestmanna- eyjum, þegar móðir hans veiktist af berklum. Faðir Karls var þá sjó- maður. Rakel móðir Karls var sjúk- lingur á Vífilsstöðum í mörg ár. Hluta bernskuáranna var Karl því í fóstri hjá vinafólki, Sigríði Guðmundsdóttur á Voðmúlastöðum í A- Landeyjum og börn- um hennar. Eftir að móðir hans hlaut þann bata að geta haldið heimili bjó hann hjá foreldrum sínum. Að loknu gagn- fræðaprófi lærði Karl útvarpsvirkjun hjá Landsíma Ís- lands og vann lengst af við fag sitt. Hann starfaði sem sjálfstæður at- vinnurekandi að iðn sinni, í nokkur ár á Selfossi og eins í Reykjavík. Lengi starfaði hann hjá Flugfélagi Íslands og síðar í mörg ár sem tæknimaður hjá ríkissjónvarpinu. Á yngri árum tók Karl þátt í ýmsum félagsmálum, var virkur í félagi ungra jafnaðarmanna og reyndi fyrir sér í leiklist. Karl var fróð- leiksfús og sótti námskeið af ýmsu tagi sér til afþreyingar og upp- byggingar á meðan heilsan leyfði. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey. Þegar ég minnist míns kæra frænda og vinar, Karls Þórs Þor- kelssonar, er mér efst í huga þakk- læti fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman. Við Kalli vorum systrasynir og fjölskyldur okkar bundnar sterkum vinabönd- um og var hann mér sem bróðir. Þegar Kalli var á áttunda ári veikt- ist móðir hans af berklum en faðir hans var þá sjómaður. Kalla var þá komið fyrir hjá vinafólki og var í nokkur ár á Voðmúlastöðum í A- Landeyjum hjá Sigríði Guðmunds- dóttur. Sigríðar og fjölskyldu hennar minntist Kalli með hlýju og þakklæti en auðvitað var það sár reynsla fyrir ungan dreng að eyða bernskunni án foreldra sinna. Þeg- ar svo móðir hans hresstist flutti Kalli til foreldra sinna og bjó hjá þeim uns hann festi ráð sitt um tví- tugt og stofnaði eigið heimili. Á Heimili Sigrúnar og Kalla var ég tíður gestur og naut gestrisni þeirra og vináttu. Ég var svo lán- samur að geta fagnað með þeim þegar þeim fæddust börnin, Þóra Guðrún og Örvar, og sá glæsilegt heimilið öðlast nýtt líf með tilkomu barnanna. Þau hjónin slitu sam- vistum eftir langan hjúskap. Sig- rún annaðist uppeldi barnanna af alúð og dugnaði eins og hennar er von og vísa. Kalli lærði rafeinda- virkjun, eins og fagið heitir nú, og starfaði oft sem sjálfstæður at- vinnurekandi, m.a. um skeið á Sel- fossi. Lengi vann hann hjá Flug- félagi Íslands og eins lengi hjá ríkissjónvarpinu. Kalli var góður fagmaður og reyndar lék allt í höndunum á honum, hann var list- rænn og skapandi í verkum og átti mörg áhugamál.Kalli var fróðleiks- fús og bókhneigður og vel heima í ýmsum málum, hann ferðaðist mik- ið bæði innanlands og utan. Á yngri árum sinnti Kalli ýmsum fé- lagsmálum, hann sást á leiksviði, var virkur í stjórnmálum og hafði sterkar skoðanir á flestum málum. Ég minnist Kalla þegar hann sem unglingur kom, hlaðinn af flugeld- um, á gamlárskvöld og lífgaði upp á hversdagsleikann í sveitinni. Ég minnist örlætis hans og gjafmildi en hann gat jafnan tekið sinn síð- asta eyri til að gleðja aðra. Ég minnist tryggðar hans, vináttu og gestrisni. Ég minnist skemmtilegra stunda þegar hann var hrókur alls fagnaðar. Ég man alltaf eftir því að einu sinni í gamla daga, þegar Kalli var unglingur, skammaði pabbi Kalla fyrir, að honum fannst, glæfraakstur á traktornum. Það fauk í Kalla en hann viðurkenndi fyrir mér seinna að þetta hefði ver- ið réttmæt ábending hjá pabba. Pabbi sagði hins vegar við mig „það var leiðinlegt að segja þetta við hann Kalla Þór því hann er reyndar ekkert nema gæðin“. Kalli stóð jafnan með þeim sem minna máttu sín. Sárlega fann ég fyrir vanmætti mínum, þegar minn gamli vinur þurfti mest á vináttu að halda, ein- angraður í veikindum sínum. Hin- um látna helga ég tilvitnun í Dav- íðssálm 23: „Jafnvel þótt ég fari um dimman dal, óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér, sproti þinn og stafur hugga mig.“ Þóra og Örvar, þið reyndust föð- ur ykkar vel og þú Þóra mín varst stóra hjálpin í hans erfiðu veik- indum. Guð blessi þig fyrir það. Ég votta aðstandendum hins látna innilega samúð og bið þeim Guðs friðar. Ársæll Þórðarson. Karl Þór Þorkelsson Þegar ég frétti andlát Jóhönnu Sæ- mundsdóttur, kenn- ara míns, fannst mér ég þurfa að minnast hennar með fáeinum orð- um. Ég á bara ljúfar og góðar minn- ingar um þessa konu. Hún kenndi mér handavinnu í Barnaskólanum á Ísafirði. Það voru góðar stundir sem ég átti hjá henni. Hún var ekki menntaður kennari en hún var kennari af Guðs náð í þess orðs bestu merkingu. Enn þann dag í dag á ég alla handavinnuna mína sem ég gerði undir hennar leiðsögn. Og það sem meira er að ég nota þetta allt enn þann dag í dag. Hún hlustaði á okkur stelpurnar masa um það sem okkur lá á hjarta í það og það skiptið og hún bland- aði sér í umræðu okkar. Ekki með umvöndunum heldur eins og ein af okkur. Hún talaði við okkur sem jafningja. Ég mun aldrei gleyma einum tíma hjá henni. Ein skólasystir okkar hafði veikst mjög alvarlega og átti að flytja hana til Reykjavíkur þennan dag. Einmitt þegar flugvélin hóf Jóhanna Sæmundsdóttir ✝ Jóhanna Sæ-mundsdóttir, fyrrv. handavinnu- kennari og húsmóðir á Ísafirði, fæddist 28. ágúst 1919. Hún lést á hjúkrunarheimilinu á Vífilsstöðum 17. maí 2010. Útför Jóhönnu fór fram frá Neskirkju 1. júní 2010. sig á loft og flaug út fjörðinn stóðum við stelpurnar við gluggann á handa- vinnustofunni og horfðum á eftir vél- inni. Þessi skólasystir okkar átti ekki aftur- kvæmt í okkar hóp lifandi. Þá var nú gott að vera í tíma hjá Jó- hönnu. Hún talaði við okkur og hughreysti og var okkur mikill stuðningur í þessari fyrstu alvar- legu lífsreynslu okkar aðeins tólf ára gamalla. Já, það er óhætt að segja að Jó- hanna markaði spor í barnæsku mína. Það gerði maður hennar, Björgvin, svo sannarlega líka. Ekki bara einasta voru þau hjón bæði kennarar mínir og auðvitað systkina minna heldur var vinskap- ur góður milli þeirra og foreldra minna. Foreldrar mínir bjuggu í Al- þýðuhúsinu á Ísafirði eins og Jó- hanna og Björgvin og þar fæddist Önundur, bróðir minn. Svo kenndu bæði pabbi og Björgvin við barnaskólann. Ég hitti Jóhönnu síðast við útför Björgvins. Hún var þá nánast orðin blind. Þegar ég heilsaði henni þekkti hún röddina mína. Og auðvitað spurði hún um Önund bróður sem hún lét sér alla tíð mjög annt um. Kæri Sighvatur, við systkinin sendum þér og þínum okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Við eigum bara fallegar minn- ingar um þessa góðu og fallegu konu. Blessuð sé minning hennar. Guðrún Helga Jónsdóttir. Legsteinar ehf, Gjótuhrauni 8 Hafnarfirði, Sími: 571 0400 legsteinar@gmail.com ✝ Elskulegur bróðir og mágur, JÓNAS JÓNSSON, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 15. júní. Útförin fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 24. júní kl. 15.00. Arnbjörg Jónsdóttir Waage, Geir Jónsson, Ingunn Stefánsdóttir. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GARÐAR HALLDÓRSSON pípulagningameistari, Álfaskeiði 72, Hafnarfirði, sem lést þann 15. júní, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju þriðjudaginn 22. júní kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Unnur Garðarsdóttir, Örn Þór Þorbjörnsson, Gylfi Garðarsson, Hólmfríður Garðarsdóttir. ✝ Elskulegur bróðir minn og frændi okkar, SUMARLIÐI MARÍASSON, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 15. júní. Útförin fer fram frá Foss- vogskirkju mánudaginn 28. júní kl 13.00. Matthildur Maríasdóttir og frændsystkini ✝ Innilegar þakkir fyrir þá vináttu og hlýhug sem okkur hefur verið sýnd við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, AÐALHEIÐAR SIGURÐARDÓTTUR. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki 4-B á Hrafnistu Hafnarfirði fyrir frábæra umönnun. Haraldur Þorsteinsson, Sigurður Haraldsson, Jóna Guðjónsdóttir, Þorsteinn Haraldsson, Lára V. Júlíusdóttir, Ingibjörg Haraldsdóttir, Sturla Þorsteinsson, Ástráður Haraldsson, Eyrún Finnbogadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR INGVARSDÓTTUR, áður til heimilis að Lokastíg 28, Reykjavík, Anna Sveinsdóttir, Jón Sveinsson, Guðrún Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, pabba okkar, tengda- pabba, afa og langafa, GUÐLEIFS SIGURJÓNSSONAR fyrrv. garðyrkjustjóra í Keflavík, Bröttuhlíð 17, Hveragerði. Guð blessi ykkur. Ástríður Hjartardóttir, Hjörtur Kristjánsson, Erna Guðlaugsdóttir, Sigurjón Guðleifsson, Cecilie Lyberth, Ásta Guðleifsdóttir, Magnús Jensson, Ragnar Guðleifsson, Hjördís Harðardóttir, Sigurður Guðleifsson, Margrét Guðleifsdóttir, Hörður Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.