Morgunblaðið - 19.06.2010, Side 46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 2010
SÝND Í SMÁRA- OG BORGARBÍÓI
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Stórskemmtileg
teiknimynd fyrir alla
fjölskylduna með
íslensku tali
The A-Team kl. 2:40 - 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára Leikfangasaga 3D kl. 1(950kr) - 3:20 - 5:40 íslenskt tal LEYFÐ
The A-Team kl. 2:40 - 5:20 - 8 - 10:40 LÚXUS Toy Story 3D kl. 3:20 - 5:40 - 8 enskt tal LEYFÐ
Get Him to the Greek kl. 5:30 - 8 - 10:25 B.i. 12 ára Húgó 3 kl. 1(650kr) - 2:30 - 4 íslenskt tal LEYFÐ
Robin Hood kl. 8 B.i. 12 ára Streetdance 3D kl. 1(950kr) - 10:20 B.i. 7 ára
The A-Team kl. 3:30 - 6 - 9 B.i. 12 ára Snabba Cash kl. 3:30 - 6 - 9 B.i. 16 ára
Streetdance kl. 3:30 - 6 - 9 B.i. 7 ára Get Him to the Greek kl. 3:30 - 6 - 9 B.i. 12 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI
„The A-Team setur sér það einfalda markmið
að skemmta áhorfendum sínum með látum, og
henni tekst það með stæl. Ekta sumarbíó!”
-T.V. - Kvikmyndir.is
ÞEIR VORU PLATAÐIR - ÞEIR VORU SVIKNIR - HEFNDIN ER ÞEIRRA
MISSIÐ EKKI AF FYRSTU STÓRMYND SUMARSINS!
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI
VIDDI, BÓSI LJÓSÁR OG HIN LEIKFÖNGIN ERU KOMIN AFTUR
Í STÆRSTU OG BESTU TOY STORY MYNDINNI TIL ÞESSA.
HHHH
"TOY STORY 3 ER ÞAÐ BESTA
SEM ÉG HEF SÉÐ Í BÍÓ Á ÞESSU
ÁRI HINGAÐ TIL OG ÉG GET
EKKI BEÐIÐ EFTIR AÐ SJÁ
HANA AFTUR!"
- T.V. KVIKMYNDIR.IS
HHHHH
- P.H. BOXOFFICE MAGAZINE
"...ÁN EFA MYNDIN SEM ÞÚ
VERÐUR AÐ SJÁ Í SUMAR"
"...BESTA TOY STORY MYNDIN
TIL ÞESSA - MEIRI HLÁTUR,
MEIRA FJÖR, MEIRA DÓT Í
FRÁBÆRI ÞRÍVÍDD"
"MEISTARAVERK!
LANGBESTA MYND ÁRSINS!"
STÓRKOSTLEG SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
HEIMSFRUMSÝNING
„Sumarið er komið
með kúlnaregni”
-S.V. - Mbl.
TILBOÐSVERÐ
merkt rauðu
3D MYNDIR - gleraugu seld sér
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann m
Það er ekki af frjálslegu orð-færi MC-anna einu semmarijúana-mærð tónlistinnær að fanga hangs-
stemningu á þessari plötu. Platan
byrjar á lagi sem gefur af sér
ákveðna speis-stemningu, þær pæl-
ingar eru ágætlega skemmtilegar en
ekki munu þær bera plötuna uppi að
lokum. Tjill-slagarinn „Hey Yo!“
sem fylgir fast á eftir fyrsta laginu
er meira einkennandi fyrir styrk-
leika plötunnar. Alveg fram að miðju
má finna gott hangs með ágætlega
öflugu sparki. Ágætis sömpl detta
inn og krydda plötuna en þegar plat-
an er búin má greina úr heildinni
mörg lög sem henta fyrir síspilun út-
varpsins og eftir nokkrar hlustanir
gætu þau náð einhverri fótfestu. Ég
bar kennsl á þessa eiginleika í fyrr-
nefndu „Hey yo!“ þó mér finnist það
svolítið kjánalegt, „Klukkan fimm“
og „Ringlaður“. Stundum þótti mér
eitthvað ódýrt við áferð laganna,
ekki af upptökuhliðinni heldur eins
og finna mætti betri hljóð. „Skyndi-
lega svona“ er þéttasta lagið með til-
liti til rappsins og virkar vel í sínum
sess á plötunni. Þá er „Blindaður af
myrkrinu“ skemmtilegt lag hjá Stef-
áni og eitt þeirra sem bjóða upp á
einhverja áhugaverða möguleika en
Stefán lagði engar ljóðlínur við þetta
lag og sú ákvörðun var hárrétt. Þó
að platan sé tjilluð merkir ekki endi-
lega að hún sé róleg. Mönnum gæti
þótt skemmtilegt að skella þessu á
fóninn með félögum og sum lögin
myndu sóma sér í almennri spilun,
hvort sem það er í partíi eða sem
framlag til íslensks útvarps-
hipphopps. Þetta er eitthvað sem ég
áttaði mig á í annarri og þriðju
hlustun. Að þessu sögðu verð ég að
velta fyrir mér hvers vegna hún
hreyfði ekkert við mér í fyrstu
hlustun. Þær væntingar sem vökn-
uðu í byrjun kölluðu á stóra hluti,
einhverjar J Dilla óskir sem bærðust
inni í mér en ég fann það auðvitað
ekki og þetta gerði því lítið fyrir mig.
Leit mín var auðvitað á villigötum
enda leit að gæðum í speisi og tökt-
um. Þar voru engar dýrðir fyrirfinn-
anlegar en ég þori að staðhæfa þó að
í þeim efnum á þessi plata fullt er-
indi í íslenskt hipphopp, ekki á
stærri mælikvarða.
Kanarnir hafa einfaldlega farið of
langt í feitum bítum og speisi sem
varir vikum saman til þess að hægt
sé að leggja þetta þeim til hliðar. Að
leita þess er hins vegar villan sem ég
gerði og ég fór á mis við mikilvæg
atriði sem á endanum gera þessa
plötu. Hún gerir tilkall til þess að
vera með gott speis en hún réttlætir
tilvist sína hvorki í framúrskarandi
töktum né speisi. Forté plötunnar er
tjill. Hún framkallar tjill-stemningu
og útvarpsmenn mega velta henni
vel fyrir sér.
Gott hangs plötunni til framdráttar
Steve Sampling
Milljón mismunandi manns
bbbnn
Öll lög, upptökustjórn og hljóðblöndun
eftir Stefán M. Sampling. Textar
eftir ýmsa höfunda. Tekið upp í Stúdíó
Sýrlandi. Útgefandi: No License
Recordings. Dreifing: Kimi Records.
GUÐMUNDUR EGILL
ÁRNASON
TÓNLIST
Rapparinn Steve Sampling eða Stefán Ólafsson á mixernum í hljóðverinu við upptökur.