Morgunblaðið - 19.06.2010, Side 52

Morgunblaðið - 19.06.2010, Side 52
LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ 170. DAGUR ÁRSINS 2010 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Klose fékk rautt og Þjóðverjar … 2. Lögreglumaður kýldi ungling… 3. Senda ekki út greiðsluseðla 4. 60 höfuð fundust í flugvél  Nýjasta myndin í Twilight-röðinni, sem fjallar um ástarþríhyrning hinn- ar mennsku Bellu, vampírunnar Edw- ards og varúlfsins Jacob, var frum- sýnd í Róm á dögunum. Af því tilefni voru Kristen Stewart og Taylor Laut- ner mætt á rauða dregilinn við gríðargóðar undirtektir. »45 Reuters Geðshræring á frum- sýningu Twilight  Diskurinn Grannmetislög kom út á dög- unum en hann hefur að geyma lög sem Haukur Tómasson tón- skáld samdi við ljóð Þórarins Eld- járns sem birtust í bókinni Grannmeti og átvextir. Guð- rún Jóhanna Ólafsdóttir syngur inn á plötuna en Caput-hópurinn sér um undirleik. »42 Orðaleikir og ein- kennilegar persónur  Blóðdropinn, glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags var af- hentur í Borgarbókasafni Reykjavíkur í gær. Blóðdropann hlaut Helgi Ing- ólfsson fyrir bókina Þegar kóngur kom. Bókin verður fram- lag Íslands til nor- rænu glæpasagna- verðlaunanna Gler- lykilsins árið 2011. Í dómnefndinni voru m.a. Anna Ing- ólfsdóttir og Katrín Jakobsdóttir. Helgi Ingólfsson hlaut blóðdropann FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hægviðri og bjart með köflum á Norður- og Austurlandi, en vestan 3-8 m/s og stöku skúrir. Hiti víða 12 til 18 stig, en allt að 20 stig á A- og SA-landi. Á sunnudag SV 5-8 m/s. Skýjað með köflum og skúrir á stöku stað um landið vest- anvert en annars þurrt að mestu. Hiti 8 til 18 stig, hlýjast til landsins austanlands. Á mánudag Hæg norðlæg eða breytileg átt. Skýjað með köflum og víða dálitlar skúrir en bjartviðri á SA-landi. Hiti yfirleitt á bilinu 6 til 16 stig, hlýjast sunnantil. Englendingar og Þjóðverjar ollu stuðningsmönnum sínum miklum vonbrigðum á HM í fótbolta í Suður- Afríku í gær. Englendingar gerðu að- eins 0:0 jafntefli við Alsírbúa og Þjóðverjar töpuðu 0:1 fyrir Serbum, eftir að hafa misst Miroslav Klose af velli með rautt spjald í fyrri hálfleik. Bæði lið eiga fyrir höndum harða bar- áttu um sæti í 16-liða úrslitum. »4 Enskir og þýskir í mikl- um vandræðum á HM Íslenska frjálsíþróttalands- liðið er komið til Möltu þar sem það tekur þátt í Evrópu- bikarkeppninni um helgina. Meðal keppenda er kúluvarp- arinn Óðinn Björn Þor- steinsson sem er í stöðugri framför og stefnir að því að kasta yfir 20 metrana á þessu ári. Morgunblaðið og mbl.is fylgjast með gangi mála á Möltu um helgina. » 2-3 Stefnir á að kasta 20 metra á árinu Sigurður Ragnar Eyjólfsson, lands- liðsþjálfari kvenna í fótbolta, gerði tvær breytingar á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Norður-Írum sem hefst klukkan 16 á Laugardalsvell- inum. Ís- lenska lið- ið þarf nauðsyn- lega á sigri að halda í barátt- unni um að komast áfram. »1-2 Tvær breytingar fyrir leikinn gegn N-Írum Gísli Baldur Gíslason gislibaldur@mbl.is Gítarleikarinn Daníel Friðrik Böðv- arsson komst á dögunum inn í einn virtasta tónlistarskóla Evrópu. Daní- el var einn af fimm einstaklingum sem komust í áheyrnarprufu ytra. Þaðan fór hann með sigur af hólmi, en skólinn innritar aðeins einn nem- anda í deild á hverju ári. „Hver umsækjandi þarf að senda upptökur af sjálfum sér. Ég sendi upptökur sem ég tók með nokkrum félögum. Þar spiluðum við gamla djassstandarda,“ segir Daníel. „Síð- an sendi ég frumsamin lög eftir mig sem við í hljómsveitinni minni, Reg- infirru, spiluðum.“ Reginfirra vann ungliðakeppni norrænna djassleikara, Young Nor- dic Jazz Comets, síðasta haust. Daníel segir að umsóknarferlið hafi verið mikið umstang. „Þetta var svolítið hnoð. Allt þurfti að berast rétt til skólans og ekkert mátti út af bera. Úr hópi umsækj- endanna velja þeir svo nokkra til að koma í prufu. Ég var sem betur fer einn þeirra.“ Daníel segist ekki vita til þess að annar Íslendingur hafi numið við djassskólann. Góður undirbúningur í FÍH Daníel Friðrik hefur lært á gítar frá átta ára aldri. Fyrst um sinn stundaði hann klassískt gítarnám, til fimmtán ára aldurs. Þá skipti hann yfir í djassinn og hóf nám í Tónlistar- skóla FÍH. Þaðan lauk Daníel burt- fararprófi í síðasta mánuði. FÍH átti stóran þátt í góðu gengi Daníels í áheyrnarprufunni, að hans sögn. „Námið í FÍH var rosalega góður undirbúningur fyrir mig. Þótt skól- inn sé ekki á háskólastigi þá eru kennararnir í fremsta flokki.“ Fyrsta önnin hans Daníels hefst í október. Fram að því hyggst hann reyna að safna sér pening fyrir skólavistinni og koma sér vel fyrir úti, enda verður hann búsettur þar næstu fjögur árin. Námið í djass- skólanum er alfarið á þýsku, svo Daníel ætlar að skerpa aðeins á þýskunni. Ætlar að fleyta sér áfram á menntaskólaþýskunni „Ég er með einhvern grunn í þýskunni, en er alls ekki nógu góður. Amma mín er hins vegar þýsk, svo ég ætti að geta nýtt mér hana að ein- hverju leyti,“ segir Daníel og hlær. Hann útskrifaðist af málabraut í MR fyrir ári og er sannfærður um að stúdentsprófið muni koma að góðum notum. Daníel er bjartsýnn á að dyr tæki- færanna opnist eftir skólagönguna. Hann getur jafnvel hugsað sér að halda áfram að ganga menntaveginn að náminu loknu. „Skólinn er góður undirbúningur fyrir frekara nám hvar sem er í heiminum. Ég tek bara eitt skref í einu.“ Daníel mun njóta leiðsagnar góðra kennara í djassskólanum. „Til að mynda mun gítarleikarinn Kurt Rosenwinkel kenna mér næsta haust, en hann hefur spilað með öll- um frægustu djassistum sinnar kyn- slóðar,“ segir Daníel og tilhlökkunin leynir sér ekki. En vill hann ekki bara frægð? „Í mínum huga snýst þetta ekki um það. Þetta snýst einungis um að verða eins góður tónlistarmaður og ég get.“ Sest við fótskör fyrirmynda  Hefur nám við djassskóla Berl- ínar næsta haust Morgunblaðið/Árni Sæberg Gítarhetja Þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur hefur Daníel spilað með mörgum landsþekktum hljómsveitum. Skólinn var stofnaður fyrir að- eins fimm árum. Hann tilheyrir þó tveimur öðrum eldri skólum. Annars vegar Hans Eisler- skólanum og hins vegar listahá- skólanum í Berlín. Deildir skól- ans eru mjög litlar og fáir um- sækjendur komast að. Miklar kröfur eru gerðar til starfsfólks- ins, því kennararnir eru flestir þungavigtarfólk úr tónlistar- heiminum. Afkvæmi tveggja skóla JAZZ INSTITUT BERLIN

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.