Morgunblaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 27
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2010
Ýmislegt
Heitir pottar
Sími 565 8899
GSM 863 9742
www.normx.is
normx@normx.is
Blómaskór. Margir litir.
Eitt par 1.200 kr., tvö pör 2000 kr.
Ný sending af kínaskóm kr. 1500
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 44.
Sími 562 2466.
...þegar þú vilt þægindi
Kr. 8.900,-
Dömu leður sandalar með
frönskum rennilás. Litir: Svart -
Hvítt - Rautt.
Stærðir 36-42
Bonito ehf. Praxis
Faxafeni 10, 108 Reykjavík
Sími: 568 2878
Opnunartimi: mánud- föstudaag
kl. 11.00 - 17.00
www.praxis.is
VAR AÐ KOMA Í HÚS: HVÍTIR BH
Sérstaklega glæsilegir
í B,C,D,DD,E,F,FF,G skálum á kr.
7.680,-
Laugavegi 178, sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
Lokað á laugardögum.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
- vertu vinur
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Skokkar st. 42-56
Buxur st. S-XXXL
Sími 588 8050
Útsala
Útsala
Útsala
Skarthúsið,
Laugavegi 44
Sími 562 2466
Tískuverslunin Smart
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið – Skokkar
Skokkar, st. 42 – 56, litir:
fjólublátt, hvítt, grátt,rautt,galla.
Verð kr. 10.990,-
Röndóttir bolir, st. 42-56. Verð
4.990,- Litir, svart/hvítt,
rautt/hvítt.
Leggings : st. 42-56. Litir: hvítt,
svart.
Sími 588 8050.
Bílaþjónusta
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
✝ Jóhann AdolfPétursson fædd-
ist á Hellissandi 3.
júlí 1927. Hann lést
á heimili sínu í Hou-
ston, Texas 8. októ-
ber sl. Foreldrar
hans voru hjónin
Pétur Marías Guð-
laugur Guðmunds-
son, f. 3. október
1886, d. 4. maí 1965,
og Guðrún Ágústa
Þórarinsdóttir, f. 4.
ágúst 1894, d. 14.
september 1961.
Systkini Jóhanns voru Þórarinn
Breiðfjörð, f. 1913, d. 1993, Guð-
mundur Breiðfjörð, f. 1914, d.
1980, Hallgrímur, f. 1916, d.
1975, Ágúst Jóhann Guðlaugur, f.
1918, d. 1956, Hjördís, f. 1922, d.
Daniel, f. 13. júní 1982, og Peter
William, f. 5. desember 1984.
Ingvar og eiginkona hans,
Claudia Weiss Petursson, eiga
þrjú börn, Kristján Emil Jóhann,
f. 20. maí 1984, Katarína Rosem-
ary Elizabeth, f. 29, júní 1986, og
Jóhannes Stefan Frederick, f. 17.
febrúar 1989. Jóhann og Hulda
skildu 1967.
Jóhann lauk fyrri hluta verk-
fræði við Háskóla Íslands 1951 og
mastersprófi í rafmagnsverk-
fræði frá Kaupmannahafnarhá-
skóla 1954. Hann starfaði hjá
Orkustofnun fyrstu árin eftir
nám. Árið 1962 flutti fjölskyldan
til Ft. Worth, Texas og 1964 til
Houston, Texas, þar sem Jóhann
starfaði hjá verkfræðifyrirtækinu
Brown and Root. Starf hans var
að miklum hluta fólgið í eftirlits-
störfum með byggingu virkjana
víða um heim, m.a. í Noregi,
Skotlandi, Venesúela, Egypta-
landi, Sádi-Arabíu og víðar.
Minningarathöfn um Jóhann
fer fram í Bústaðakirkju í dag, 2.
júlí 2010, og hefst athöfnin kl. 13.
2007, Þorsteinn Lár-
us, f. 1925, d. 2006,
Sveinbjörn Breið-
fjörð, f. 1929, og
Ólafur Jens, f. 1933,
d. 2009.
Jóhann kvæntist
1952 Huldu Emils-
dóttur, f. 1930. For-
eldrar hennar voru
hjónin Niels Peter
Emil Weywadt
Björnsson, f. 28.
ágúst 1892, d. 7. júlí
1972, og Laufey Sig-
ríður Jónatansdóttir,
f. 27. júlí 1905, d. 17. júlí 1964.
Jóhann og Hulda áttu tvö börn,
Birnu, f. 11. september 1953, og
Ingvar, f. 18. mars 1957. Birna
og eiginmaður hennar, Daniel
Patrick Foley, eiga tvo syni, Eric
Þegar við minnumst pabba okkar,
Jóhanns, þá er svo margs að minn-
ast. Verkfræðin var honum alltaf
mikil ánægja, en hann hafði líka
mörg önnur áhugamál. Þegar við
vorum unglingar fór hann keyrandi
með okkur um stóran hluta Banda-
ríkjanna. Þar má nefna Yellowstone
National Park, Rocky Mountain
National Park, Grand Canyon og
Mount Rushmore. Við fórum bara í
bílinn og keyrðum um Bandaríkin,
næstum því án þess að stoppa. Ein af
minnisstæðustu ferðunum var þegar
hann fór með okkur til Cape Canave-
ral, Florida, 1969, til að sjá Apollo 11
byrja ferðina til tunglsins. Við tjöld-
uðum þar á ströndinni ásamt miklum
fólksfjölda, sem beið þess að sjá
geimfarið þeytast af stað út í geim-
inn. Síðan var farið heim til að sjá
Apollo 11 lenda á tunglinu. Eftir að
hann hætti að vinna, hélt hann áfram
að ferðast um landið á sumrin, sér-
staklega frá Houston til Seattle til að
heimsækja Ingvar og fjölskyldu.
Hann stoppaði á leiðinni á sínum
uppáhaldstjaldstæðum og veiðistöð-
um og hafði mjög gaman af að tala
við alla sem hann hitti.
Brown and Root sendi pabba til
margra landa, þar sem hann undi sér
vel og notaði þá tækifærið til að
kynnast nýjum verkefnum bæði í
vinnu og tómstundaiðju. Í Noregi
gerðist hann meðlimur í skíðafélagi,
þar sem helgarnar fóru í að reyna
nýjar skíðabrekkur og stunda „cross
country skiing“. Í Suður-Arabíu
lærði hann köfun, þar sem hann tók
margar framandi neðansjávarmynd-
ir, sem hann sendi okkur.
Heima í Houston eyddi hann flest-
um helgum á sínum stóra seglbát
sem hann skírði Njörð. Hann sigldi
um Galveston Bay og við strönd Tex-
as. Við fórum oft með honum og átt-
um þarna margar góðar stundir.
Hann átti marga siglingavini og var
hann þeirra upáhalds „víkingur“,
alltaf tilbúinn með sögur um Ísland
og önnur lönd.
Dansinn var stór þáttur í lífi
pabba, og vikulega var nokkrum
kvöldum eytt í dansiðkun, og eftir að
hann hætti að vinna fór mikill tími í
að aðstoða við dansinn og dans-
keppnir, þar sem hann var oft aðal-
kvikmyndatökumaðurinn. Hann
meira að segja fékk að sýna vals-
tækni sína í bíómynd, sem var tekin í
Houston.
Pabbi var góður veiðimaður og bjó
til sínar eigin flugur. Hann var afar
laghentur og var alltaf að dunda við
að laga bátinn, húsið og bílinn, eða að
byggja eithvað. Pabbi og Ingvar
byggðu alls konar rafmagnstæki
þegar Ingvar var ungur, meðal ann-
ars, sjónvarp, veðurathugunarstöð
og sveiflusjá. Ingvar vildi verða verk-
fræðingur út af þessu, sem hann
varð. Pabbi var alltaf reiðubúinn til
að miðla kunnáttu sinni og þekkingu,
sem bæði börnin og barnabörnin
nutu góðs af. Hann var líka alltaf
tilbúinn að passa barnabörnin og
taka þau með að veiða eða að kaupa
ís.
Pabbi, við minnumst þín með
þökkum fyrir þær góðu stundir sem
þú veittir okkur og barnabörnum
þínum.
Ingvar Jóhannsson Pétursson
og Birna Jóhannsdóttir
Pétursson Foley.
Kveðja stúdentaárgangs MR ’47
Sextugir stúdentar og þaðan af
eldri lifa það með stuttu millibili að
kveðja félaga sína á ævibrautinni, áð-
ur en þeir kveðja sjálfir að endingu.
Okkar kæri árgangur, MR-stúdenta
frá vorinu 1947, var um þessar mund-
ir að stíga yfir þau mörk, þar sem
fjöldi hinna föllnu vógst jafnt við tölu
okkar eftirlifenda. Eftir tæplega árs
grið fram að október síðasta hausts
hlutum við að sjá á bak tveimur góð-
um skólafélögum. Annar þeirra, Jó-
hann Adolf Pétursson, kvaddi heim-
inn fjarri heimahögum í Houston í
Texas hinn 8. október og er nú loks
komið að hinstu kveðju í átthögunum.
Jóhann var upprunninn á Hellis-
sandi, þangað sem fólk var víða að
komið til sjósóknar. Þurfti það að
bregðast hart við að afla lífsbjargar
og koma sér upp varanlegri aðstöðu
til hennar. Þó spruttu þar fram tilvik
þróaðs listfengis og næms náttúru-
skyns. Ekki hafði ég pata af honum í
uppvexti mínum í Hólminum, þótt
hefði síðar spurnir af nærliggjandi
ættartengslum um Nesið og allt
norður á Strandir.
Það útheimti dugnað, kjark og
metnað ungmennis, ásamt hæfileg-
um skammti af ættmennavild, að
taka sig upp úr sjávarbyggð og koma
sér fyrir í yfirfylltu húsnæði og við
þéttsetin matborð höfuðstaðarins til
menntasóknar inn um hálfluktar dyr
skólanna í ókunnu og í meðallagi vel-
viljuðu umhverfi borgarsamfélags-
ins. Jóhann braut þann ís og aðlag-
aðist því umhverfi, fyrst með árs
námsdvöl hjá séra Guðmundi Ein-
arssyni á Mosfelli og svo ári í Ingi-
marsskólanum, þar sem hann kom
saman við nokkur okkar. Saman
héldum við til náms í undirbúnings-
deild Menntaskólans til gagnfræða-
prófs vorið 1943. Ekki var að svo
komnu við nema miðlungseinkunn að
búast, og björguðust þó flestir furð-
anlega. Um sama leyti fluttu foreldr-
ar Jóhanns í bæinn og flest systkinin.
Upp frá því var gata hans greið með
vaxandi árangri til stúdentsprófs
stærðfræðideildar með einni af
hæstu einkunnum bekkjarins vorið
1947.
Jóhann var vinsæll og vel látinn
skólafélagi, dagfarsprúður og hátt-
vís, lagði gott til allra og var hvers
manns hugljúfi. Hann tók eðlilegan
þátt í félags- og skemmtanalífi skól-
ans. Hann var með ásjálegri mönn-
um og naut hylli kvenna. Hann var
samtíða nokkrum samstúdentum við
verkfræðinám í Háskólanum og síð-
an til fullnustu þess náms í Kaup-
mannahöfn. Upp frá því strjáluðust
samskiptin innan árgangsins, sem
urðu að stórum hluta tímabilsbundin
við stúdentsafmæli á fimm ára fresti,
og gagnvart Jóhanni einkum eftir að
hann fluttist með fjölskyldu sína
vestur. Þó hélt hann vel sambandi og
var ötull að sækja samkomur okkar
og sumarferðir um langa leið, og þá
jafnan mikill aufúsugestur. Við höfð-
um spurnir af lystisnekkju, sem bar
fjölskyldu og vildarvini á Mexíkóflóa
svo sem heimsóknir þangað báru
vitni um.
Við skólasystkinin bjóðum Jóhann
velkominn heim í skaut fósturjarð-
arinnar, um leið og honum fylgja
hugheilar óskir um fararheill á fram-
andi slóðum. Fjölskyldu hans vottum
við innilega samúð okkar og virðingu
við minningu hans.
Bjarni Bragi Jónsson.
Jóhann Adolf
Pétursson
Elskulegur föður-
bróðir minn, Jónatan
Aðalsteinsson, lést á
hjúkrunarheimilinu
Barmahlíð á Reykhól-
um 14. maí, sá yngsti af 14 systkinum.
Ég var á leiðinni að heimsækja þig,
Nonni minn, þegar ég frétti af andláti
þínu.
Jónatan var hæglátur að eðlisfari
en hafði góða nærveru. Jónatan var
mikill dansari og dansaði á sunnu-
dagskvöldum með eldri borgurum.
Hann átti harmonikku og spilaði á
hana við ýmis tækifæri. Jónatan ók
Jónatan Aðalsteinsson
✝ Jónatan Að-alsteinsson fædd-
ist 5. ágúst 1927 á
Heydalsá í Tungu-
sveit. Hann lést á
hjúkrunarheimilinu
Barmahlíð á Reykhól-
um 14. maí 2010.
Útför Jónatans hef-
ur farið fram.
leigubíl, svo vann hann
í sláturhúsi á haustin.
Ég vil að lokum þakka
starfsfólki Barmahlíð-
ar fyrir góða ummönn-
un, honum leið svo vel
þar.
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar,
þegar ég á aðeins þig,
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik gef mér
trú
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér
svo lífsins veg ég finni.
Láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Gísli frá Uppsölum)
Ættingjum sendum við samúðar-
kveðjur.
Hvíl í friði, elsku frændi, megi Guð
geyma þig.
Þín frænka,
Þuríður, og Davíð.